18.4.07

Þættinum hefur borist bréf.

Fékk meil frá kontakt kennaranum mínum áðan. Þetta meil var sent á allan bekkinn.

Så kan i godt spænde hjelmen.

Der er kontaktlærertime på torsdag d. 19 april. Kl 13.00 i lokale 602.
- det forlyder at Kristin er bagermester, - det bliver godt, vi har f.eks aldrig fået lagkage – mon det bliver denne gang ?

Hilsen, Lars Henrik

Við höfum sem sagt haft það fyrir reglu að koma með köku í þessa tíma. Því þetta er svona hyggetime. Núna er komið að mér, greyið fólkið veit ekki hvað það er að biðja um.


Ekki séns að ég komi með lagköku, það er ógeðslegt - Svo ég tók bara útlendinginn á þetta og sagðist ekki kunna að baka þannig.
Spurði hvort ég ætti ekki bara að koma með sjónvarpsköku, en nei, þeim fannst það ekki nógu spennandi. Spurðu hvort ég kynni ekki að baka bananaköku. Danir!

Þau geta bara étið það sem úti frýs þá!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

alveg sé ég þetta fyrir mér! En þar sem móðir þín er fyrirmyndarbakari þá held ég að þú ættir að "dobbla" hana í að baka skúffuköku fyrir þig.. ooohvað ég sakna hennar, án efa besta skúffukaka i heimi!!!

Kristín Alma sagði...

Veit. En hún er í Köben á Sálinni og Stuðmönnum.
Ég er ein í þessu :(

Nafnlaus sagði...

i feel your pain honey! Annnars er kökudagur hja okkur á föstudaginn.. Ég var ekki lengi að panta að koma með mjólk, glös, diska og gafla!