Sjá allt þetta fallega fólk þarna í Kórsölunum. Þetta er bara rugl.
Nú græt ég ennþá meira því að það er svakalegt teiti hérna í kvöld. Eða kannski ætti maður ekkert að vera að fegra þetta neitt. Það er Fyllerí hérna í kvöld.
Ekkert sorglegt við það. En ég þarf að taka til, raka á mér lappirnar og vera í pilsi í kvöld. Sorg.
En ég er samt glöð í hjartanu.
2 ummæli:
Vertu nú ekki að fella tár kristín mín, þú veist að bloggið sýnir ekki hávaðann sem okkur fylgir.
Annars eru krakkarnir sífellt að verða meiri systkini, Salka farin að þola Kötlu í mun stærri skömmtum og Sindri er eins og skemmtimaskína fyrir þær báðar. Treður upp eftir pöntunum.
Þau eru ansi skemmtileg þegar þau mæta uppí á laugardagsmorgnum um átta leytið.
Hey bjútíbombu myndin! Sæta sæta:)
Skrifa ummæli