8.4.07

Blaaa!

Græðgin var svo mikil að ég nánast gleypti málsháttinn. Skyrpti honum útúr mér og las á hann. "Ánægjan er auði betri" - Nokkuð til í því svosem.
Held reyndar ég sé vaxin uppúr þessu páskaeggjadæmi. Fátt spennandi við þetta. Ég ætla bara að fá mér gulrót og fara svo út að hlaupa.
------
Gleymdi alltaf að segja frá því að ég skrapp aðeins í smá road trip hérna síðasta sunnudag. Stjáni og Jón Pétur rifu mig upp á rassgatinu fyrir allar aldir og eftir 3 tíma svefn. Og út fór ég, svefndrukkin og með hreiður í hnakkanum. Held að ég hafi náð að halda geðvonskuni í skefjum, eða ákvað bara að segja ekki neitt, nema það yrði talað við mig. Þannig var það fram að hádegi. Svo fór ég að mala.
Ferðinni var annars heitið á Skagen, sem er nyrðsti tangi Danmerkur að mér skilst. Þar mætast líka tvö höf. Eða tveir sjóar eins og ég orðaði það svo skemmtilega. Sum sé hægt að standa í tveim höfum í einu. Létum okkur nægja að horfa bara samt.
Aldeilis skemmtilegur sunnudagsbíltúr, allavega ekki hægt að kvarta. Étinn hamborgari í Friðrikshöfn, (Nú er ég eins og fjölmiðlarnir) skoðuð einhver kirkja sem átti að vera grafin í sandinn, (hefði ekki fyrirgefið sjálfri mér ef ég hefði sleppt því að skoða hana.) svo komið við í Árósum á leiðinni heim, rölt um borgina og étinn McDonald's ís.
Nú er ég allavega búin að sjá rjómann af Danmörku, svo ég get bara farið að pilla mér heim.

Þessa mynd tók JP af okkur Stjána.
Þetta er ljót mynd. En eina sönnunin fyrir því að ég hafi farið á skagen.
------

Njótið þess sem eftir er af páskunum. Merenerið ykkur í bjór og farið í sleik. Fagnið Jesús - eða ekki.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað er málið........þetta er yndisleg mynd af ykkur systkinunum ;-)

Ragga Rokkar sagði...

Gleðilega páska elskan.