Ég hef oft íhugað að hella mér útí pólitík. Stofna jafnvel minn eigin flokk og hendast á þing. Eins og Ómar Ragnarsson. En þar sem að ég er hræðilega léleg í að bulla og enn lélegri í að ljúga þá gengur það ekki. En ég er svolítill snákur í mér, þannig að það væri líklega hægt að þjálfa mig upp í að svíkja.
Skil ekki þessa Íslandshreyfingu. Yrði eitthvað skrautlegt ef þeir kæmust til valda. Fíla heldur ekki þessa Henry Ford dýrkun í Ómari. Er Henry Ford í flokknum eða?
Vorkenndi Helga Seljan alveg ótrúlega mikið í gær. En hló samt pínu. Ekki af honum samt heldur kjánalátunum í viðmælandanum. Dásamlegt.
Fleira var það ekki.
1 ummæli:
jú rétt.. hahah store bededag er næsta föstudag.. kræst hvað ég er dumb blonde stundum.. æðislegt.
Bið að heilsa mömmu þinni ;) þekki hana. Kv. Maja
Skrifa ummæli