Af einhverjum ástæðum býst ég alveg eins við því að verða kölluð á foreldrafund í framtíðinni útaf svona.
Þeir sem að hafa verið með mér í bíl skilja þetta. Road rage dauðans.
Reyndar gætu svo foreldrar hinna barnana kallað mig helvítis kellingu, því að ég kann ýmislegt betur en að keyra. Er líka örugglega eina manneskjan sem hefur ratað á forsíðu Séð og Heyrt fyrir að vera léleg í að keyra. Og verið aðal umræðuefnið í vinnunni hjá pabba, vegna þessa. En sjaldan fellur eplið langt frá eikinni...
P.S. Ég er ekki ólétt.
4 ummæli:
ÆÆ: Skil ekkert hversvegna þú blótar svona. kveðja frá ömmu Stínu
Hvernig var fyrirsögnin aftur, Simmi í Kastljósinu, með lífið í lúkunum!
Þú ert æði:)
Ég býð nú bara eftir því að þú stoppir á rauðu ljósi hlaupir út og gangir í skrokk á einhverjum en ég hef nú alveg verið í bíl með verri bílstjórum.
Amma: thetta er sagt í auglýsingunni. Thú verdur ad klikka á "SVONA" í textanum svo thú fattir thetta. thessir stafir eru bláir.
Brynja: Ehh, thad var meira "heppinn ad vera á lífi"
Stjáni: Thad hefur nú oft næstum thví gerst. Enda eru allir hálfvitar og fífl thegar ad ég er undir stýri.
Skrifa ummæli