Mamma hefur miklar áhyggjur af því að ég sé þunglynd. Hún spurði mig um daginn hvort að ég væri í ástarsorg, skuldaði pengina og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég er reyndar búin að vera eins og hálfgerð vofa uppá síðkastið. En er ekki í ástarsorg, skulda ekki og er ekki í dópi eða rugli , þó að ég dansi ekki og syngji einhverstaðar útá túni allan liðlangan daginn og segi hvað allt sé dásamlegt og yndislegt eins og Pollýanna á spítti.
Er bara með skólaleiða á mjög háu stigi, eiginlega á svo háu stigi að mig langar bara að hætta. Hef engann áhuga á því sem ég er að gera og er bara eitthvað löt.
Ég er alveg búin á því í hausnum þegar að ég kem heim, þrátt fyrir að vera ekki mikið dugleg að læra. Held reyndar að það sé bara danskan sem er að þreyta mig svona. Eftir skóladaginn þá kem ég heim, leggst uppí rúm, dreg sængina upp fyrir höfuð og ligg þar. Í 3 tíma.
Núna er reyndar ekki mikið eftir af kennsludögum. Mánuður eftir af kennslunni. Síðan eru það bara verkefnavinna, framleggingar og skemmtilegheit. Próf í lok júní og svo kem ég á Íslandið, atvinnulaus því það vill mig enginn.
2 ummæli:
Veit ekki hvort þetta sé rétti tíminn til að segja þér það, en eftir tæpar tvær vikur þá byrja ég í prófum. Eki nema vika eftir að kennslu. Þegar þú verður í prófum þá verð ég úti á Rhodos í 30 stiga hita í sólbaði og slaka á:)
Sorry:(
hlakka samt mjög svo til að fá þig honey;*
Kveðjur frá klaken;D
Ég verð í 30 stiga hita. Það er ekki málið.
Skrifa ummæli