Ég er með endalaust vesen.
- Fyrst þurfti ég að fara í sturtu (Maður getur ekki lært í þynnkulyktinni af sjálfum sér)
- Svo þurfti ég að fara í náttbuxur og sweatshirt (Lærir ekki í gallabuxum og armani t-shirt)
- Aðeins að lesa netið (ALLT netið og horfa á fréttir, veður og Kastljós fyrir síðustu 2 vikur)
- Fá mér kvöldmat, því ég uppgötvaði að það var sólarhringur síðan ég borðaði eitthvað síðast.
- Aðeins að hvíla mig í sófanum og hlusta á tónlist. (Því ég var ekki búin að hvíla mig neitt í dag. *Hóst*)
- Skutla eldri borgurum heimilisins á Félagsvistarkvöld (Því ég gæti þurft á bílnum að halda meðan ég er heima að læra)
- Skutla tvillunum á Blockbuster (Þá er allavega friður til að læra ef þær eru að horfa á video)
- Aðeins að lesa netið, aftur (Spaugstofan var komin inn, nauðsynlegt að sjá það áður en maður lærir)
- Fékk óstjórnlega löngun í sódavatn og fór útí sjoppu eftir svoleiðis (Vissi að ég þyrfti að nota bílinn!)
- Opnaði word skjalið.
- Skrifaði fyrirsögnina
Nei, þá datt mér í hug að henda í eina þvottavél.
Hverjar eru líkurnar?
5 ummæli:
Hehe. Hver kynslóðin af annarri uplifir þetta. Flest höfum við getað hrist okkur í gegnum það. Gangi þér vel kerlingin mín.
Kveðjur frá ömmu Stínu
hæ veit ekki alveg hvernig ég datt inn á síðuna þína... var bara eitthvað að vafra :S En bara svona fyrir kurteisis sakir þar sem ég var nú að lesa um lærdómstruflanir þínar þá varð ég bara að segja "hæ"
þú ert verri en ég!
Ja því miður virðist athyglisbresturinn alltaf vera í botni þegar maður þarf að læra eh:/
Fyrst þú last ALLT NETIÐ þá hefurðu afrekað að komast á síðustu blaðsíðuna:) http://www.internetlastpage.com/
Kveðja
ókunnugur les-andi
Skrifa ummæli