9.7.07

Toto

Ég er örugglega eina 19 ára manneskjan í heiminum sem þráir ekkert heitar en að fara á tónleika með Toto. Þeir eru að spila í Laugardalshöllinni annað kvöld og mig langar svooo að fara.
En vinir mínir vita ekki hvað Toto er og fannst ég ekki töff þegar að ég byrjaði að syngja Rosanna og Africa fyrir þau. Hef reyndar ekki heyrt í þeim síðan þetta var, svona þegar ég pæli í því. Meira að segja pabbi myndi ekki vilja fara. Hann sagði að ég væri hallærisleg að langa að fara.
Ég er svo gömul sál, að stundum er það hálf fyndið. Í dag var ég til dæmis að keyra Sæbrautina á 58km og hlusta á Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Ef ég fæ mér mann sem er um fertugt skulið þið ekki vera hissa.

En ef það er einhver þarna úti sem vill koma með Kristínu gömlu á Toto annað kvöld, þá endilega verið í bandi.

I'll be over youuuu!!

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blessuð drífðu þig bara, við mamma þín fórum að sjá þá úti í DK, og þeir voru snilld:-)

Nafnlaus sagði...

Já ég mæli með því að fara að sjá þetta, tónleikarnir í DK voru alveg þrusugóðir

Nafnlaus sagði...

einn fertugan? Þú ættir nú ekki erfitt með það, eru þeir hvort sem er ekki allir á eftir þéR:)

Kristín Alma sagði...

Ég ætla að fara, ef ég fæ miða.

Helga: Nei, kommon, 33 og 37. Alltof ungt fyrir mig ;)

Nafnlaus sagði...

eg væri alveg til... elska svona ;)

Nafnlaus sagði...

Ji hvað það yrði krúttlegt að eiga tengdason sem væri eldri en ég....
En Toto....hví sástu þá ekki með okkur og Stjána í Dk ???
Maður bara spyr .....

Kristín Alma sagði...

Svanhildur: Ertu ekki í sveitinni?

Mamma: Já, mér finnst að það gæti verið skemmtilegur twistur á kokteilfamelíuna. Hann þyrfti helst að eiga börn, svo þetta verði enn flóknara.
Hann myndi kannski vilja koma með mér á Toto!!!