20.7.07

Í fréttum er þetta helst:

Flíspeysumálið ógurlega: Peysan fannst loksins eftir að hafa verið týnd í 3 vikur. Þóra fann hana í skottinu á bílnum hennar SóleyjarTó. Ég hef ekkert verið að væflast þar, þannig að þetta er dáldið dularfullt mál.

Þjóðhátíð: Búið að borga í dallinn, förum út á föstudeginum og komum "uppá land" á mánudeginum. Íris og Garðar eru búin að beila þannig að ég verð eina stelpan. Hópurinn samanstendur af: Mér, Stjána, JP, Danska gaurnum og Villa bróðir (held ég). Verður áhugavert. Ég er búin að pannta að sofa í miðjunni - og núna er ekki hægt að setja mig í annað herbergi..
Þetta verður feiknar fjör og er mikil tilhlökkun. Ég og sá danski erum að fara í fyrsta skipti svo þetta verður þvílíkt ævintýri fyrir okkur, túristana.
Kvíði reyndar pínu fyrir einu og það er að miða við hvað strákarnir eru búnir að tala mikið um hvað þeir ætla að gera í Eyjum er ég hrædd um að ég komi lesbísk heim. Það á nefninlega að fara í Dalinn og finna sér KJÉLLINGAR. Ég verð annað hvort að gjöra svo vel að fara með, þar sem að ég er kjúklingur og þori ekki að vera ein í kringum svona fullt fólk sem ég þekki ekki eða bara vera heima í tjaldi og prjóna. Því ekki fer ég á fyllerí eða kallafar, (Er það orð til?) Geri ekki svoleiðis.

Ferming: Nú er famelían mín öll komin til landsins og fermingarstúlkurnar þylja trúarjátninguna, faðirvorið, ritningarorðin og boðorðin alveg útí eitt, bæði á Íslensku og dönsku. Fermingarfötin eru tilbúin og allt að verða klappað og klárt.
Ég reyndar get ekki með nokkru móti fundið föt á mig. Mér finnst allt ljótt og asnalegt, enda eru þessar heimsku útsölur í gangi núna og bara eintómt drasl á þeim eins og vanalega. Ég er búin að þræða hverja einustu búð í bænum og finn ekki neitt. Þetta hlýtur að reddast.

Vinnan: Það er svona líka þrælskemmtilegt í vinnunni alltaf hreint. Eða ég lýg því að mér að minnsta kosti. "Góðan daginnnn Gjössoveeeeel" Okkur Óskari semur alveg fínt, ennþá allavega. Konurnar í vinnunni duglegar að ota að mér sonum sínum og segja mér frá hvað þessi Siggi í Innflutningi sé agalega huggulegur og á lausu. Fengu svo taugaáfall þegar ég sagði að ég væri nú meira fyrir hann Gunna í landflutningum. Þá hljóðuðu þær upp yfir sig að hann væri að verða þrítugur og væri fráskilinn. Baneitraður greinilega.

Fjölskyldan: Það dró aldeilis til tíðinda í gær. Litli frændi minn Almarsson fékk nafn. BALDUR FREYR. Baldur í höfuðuð á afa og Freyr er víst bara Freestyle að mér skilst.
Gaman að segja frá því að ef að ég hefði verið strákur þá hefði ég verið skírð Baldur. Ég hefði orðið góður Baldur. En litli frændi ber þetta nafn svo sannarlega vel, enda er hann miklu myndarlegri en ég.
Til hamingju með þetta fallega nafn.

Helgin: Frænkufyllerí á morgun, hlakka mikið til. Síðan er það afslöppun útí eitt.

Þessi færsla: Er alveg ógeðslega leiðinleg. Með þeim leiðinlegri, enda er löngu komin háttatími á mig og ég er því ekki alveg í sambandi í hausnum.

Ble

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sorry sorry finnst þetta ýkt leiðinlegt sko en ég hefði þá misst af sunnudeginu það hefði ekki verið gaman hmm En þið skemmtið ykkur geggjað vel veit það

Brynja Björk sagði...

Mig tekur thad sárt ad hér eru engar fréttir ad finna af nýja unnusta Kristínar, Baltasar Kormák!

Kvedja frá Perú

Jane.

Nafnlaus sagði...

usss... þetta er glæsilegt :) teldist til afreka hjá mér... þar eru bara gúrkufréttir í gangi :)

hvað gerum við án stjána í haust... knúsaðu hann frá mér ;)