15.7.07

Á morgun fáum við úr því skorið hvort ég sé góð í að keyra bíl. Ökumatið ógurlega og ég kvíði svo fyrir að ég þarf næstum að æla.
Æfði mig pínu í dag með að keyra Lincolnin hennar ömmu útum allt í dag. Hann talar við mann, voða fínt fyrir fólk eins og mig sem á enga vini ;)

Má ekki vera að því að blogga, þarf að fara að læra munin á hægri og vinstri..

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já elskaaaan mín góða, þetta verður ekkert mál fyrir þig, það er ekki svo langt síðan ég sat með þér í bíl og það var bara alltílaj. Hefðir samt mátt sleppa því að fara yfir þessi 3 rauðu ljós, en það er annað mál

Nafnlaus sagði...

Break a leg...

(hvað er annars ökumat?)

Kristín Alma sagði...

Helga: Takk fyrir þetta, nú líður mér miklu betur.. ehh?

Gúmmípabbi: Ökumat er þegar að maður er búinn að vera með bílpróf í tvö ár. Þá fer maður í svokallað ökumat til að fá fullnaðarskirteini, keyrir í 50 mín með ökukennara um borgina og hann metur hvort maður sé hæfur til að keyra um göturnar.
Ef maður hefur verið punktalaus í eitt ár frá því maður fær prófið þá má maður fara í þetta mat og fá fullnaðarskirteini...

Unknown sagði...

Ha, er þetta ökumat eitthvað nýtt? Ég fékk mitt fullnaðarskírteini bara sjálfkrafa eftir tvö ár, reyndar eru alveg 10 ár síðan.
Kristín ókunnuga.