16.8.07

Nokkrir góðir dagar án..Mömmu

Jæja, þá er maður fluttur aftur heim. Reyndar bara yfir helgina því ég er með unglingana í minni umsjá meðan kynmóðir okkar er í saumaklúbbaferð í Amsterdam. Ekkert djamm fyrir mig um helgina. Bara gera eitthvað sem húsmæður gera.
Ég er alveg komin með to do lista og allt.
  • Ryksuga
  • Viðra hundinn
  • Þrífa skjaldbökubúrið - hefur víst ekki verið gert síðan í maí að mér skilst
  • Þvo þvott
  • Þrífa heima hjá mér
  • Fara í genbrug
  • Gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með unglingunum
Spennandi helgi frammundan eins og þið sjáið. En hvað gerir maður ekki fyrir yfirvaldið.

Ég hefði kannski átt að hafa hærra um það að ég eldi ekki. Tók mig til í gær og eldaði þessa líka dýrindis máltíð fyrir okkur systur. Hafði einfaldlega ekki í mér að bjóða unglingnum (Unglingur B er í næturgistingu) uppá serjós í kvöldmatinn. Þannig að það var skundað útí Rema 1000 og keypt kjúlla og eitthvað sem ég gat hugsað mér að malla með. Þegar heim var komið var þetta steikt, sullað í eldfast mót og hálftíma seinna var komin þessi líka dýrindis réttur. Maður er ekki lengi að hrissta kræsingarnar fram úr erminni þegar maður tekur sig til. Ónei.
Mamma heldur að ég hugsi ekki nógu vel um systkini mín þegar að ég er með þau svona í nokkra daga í einu. Þess vegna tók ég video og myndir til þess að sanna að ég leggji mig virkilega fram í að vera góð við þau greyin.
Ég kann ekki að setja myndbönd á netið þannig að myndirnar verða að duga.


Kveikt á kertinu góða


Að fá sér


Afvelta


Fróði vildi ólmur smakka

Annars vil ég bæta því við að Móðir mín í föðurætt á afmæli og vil ég nýta tækifærið og senda henni hamingjuóskir í tilefni dagsins. Orðin heilum 9 árum eldri en ég. Geri aðrir betur.
Hún ákvað að svara ekki símum í tilefni dagsins, eða allavega ekki svara mér svo kveðjan er netvæn í ár.


Pabbi og afmæliskonan

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er svo stoltur að ég er að rifna.

Þú ert snilldarkokkur;-) greinilega með það í blóðinu, það er ekki öllum gefið að geta eldað.

Finn það á mér að systkyni þín og gæludýr eru í góðum höndum:)

P.s.

Mundu nú að blogga reglulega, ég verð alveg hundfúll þegar þú gleymir því.

Nafnlaus sagði...

Kristín mín! Ef þú tekur til hjá kynmóður þinni, eldar þar mat og hreinsar skjalbökubúr - hversvegna í andskotanum gastu þá aldrei drullast til að taka til hjá kynpabba þínum?

Kristín Alma sagði...

Prufaðu að skilja mig eftir eina með Sölku heila helgi og sjáðu til hvort að það gerist ekki eitthvað.

Neyðin kennir naktri konu að spinna.