22.8.07

Það sem af er þessari önn hef ég ekki kíkt neitt á Perez félaga minn. En ég er búin að lesa rekstrarhagfræði tvisvar.
Eitthvað öfugsnúið dæmi. Ég hef nefninlega átt það til, einstaka sinnum að fara á einhverjar svona sniðugar síður þegar að ég á að vera að læra.
Nú get ég ekki lært neitt í tvær vikur því að það er svo mikið búið að ske á Perez síðan ég kíkti síðast.

Ég held annars að ég þurfi gleraugu - Hvert fer maður í sjónmælingu?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bara í gleraugnabúð. Hjá næsta optiker :)

Kristín Alma sagði...

Okay, ekki flókið. Hélt að þetta væri eitthvað svaka dæmi.
Takk fyrir - tjékka á þessu :)

Nafnlaus sagði...

Fyrirgefðu en, hvað er í gangi? Á ekkert að blogga, eða?