Ég hef búið erlendis síðastliðin 3 ár. Fyrst í Danmörku, svo Bandaríkjunum og svo Danmörku aftur, eftir stutt stopp á Íslandi.
Þegar að ég kom út til Danmerkur fyrst, skildi ég ekki neitt. Ekki bofs. Leyst ekkert á þetta. En ákvað samt að láta mig hafa það að sitja í skólanum og skilja ekki neitt í mánuð. Eftir það var þetta kökusneið. Nú tala ég svona nokkurn veginn reiprennandi dönsku, eða svona. Kartaflan er löngu komin í hálsinn og á sér fastann stað þar. Maður talar dönsku allan daginn í skólanum. Heyrir dönsku í útvarpinu, sjónvarpinu og út í búð. Stundum hugsar maður á dönsku, og hefur það aukist til muna núna síðustu mánuði.
Núna er maður orðinn svo danskur í sér að mér finnst alveg fullkomlega eðlilegt að það taki tvo mánuði að setja upp eina internettengingu, borða gulrótarbollur með lifrakæfu og að það sé allt lokað á sunnudögum. Aðlögunarhæfnin, sjáiði til.
Annað sem ég hef tekið eftir er að ég tala ekki sömu íslensku og fólk sem býr á Íslandi. Þetta er eiginlega ekki íslenska, bara svona kokteill. Þetta er eitthvað sem við íslensku-danirnir eigum sameiginlegt.
Hér á þessu heimili er talað um
matkassa og
drykkjardunka, en ekki nestisbox og vatnsbrúsa. Við fáum okkur stundum
drúur og
cola, voða sjaldan vínber og kók. Við erum ekki með handakrika og fætur, heldur
armhholur og
bein. Við spurjum ekki hvar við megum leggja bílnum okkar, heldur hvar við megum
halda honum. Það er ekki talað um að einhver hafi ýkt eitthvað, heldur
yfirdrifið. Það er aldrei neitt eftir af kvöldmatnum, en það er oft hellinginur
tilbaka. Það koma ekki göt á sokkana okkar heldur
holur. Í Horsens eru sjaldan spilaðir tölvuleikir, en ótrúlega oft
tölvuspil og það er aldrei ég sem á að gera, heldur er það minn
túr stundum.
Það er ekki skorað mark í fótboltaleikjunum heldur
mál. Mótherjar er eitthvað sem fótboltaliðið okkar þekkir ekki, en þeir eru kunnugir
mótstöndurum. Bjór þekkist ekki í danmörku, en
öl er eitthvað sem við könnumst mjög vel við.
Í ameríku
tók ég líka sturtu og
gerði þvottinn minn.
En svo eftir að hafa verið á Íslandi í 5 daga þá stamar maður og hikstar á dönskunni. Og ég á rosalega erfitt með að skipta yfir í enskuna þessi fáu skipti sem ég þarf að tala hana.
Ótrúlegt alveg.