27.3.07

Ekkert að frétta. Ekkert að ske.
Eða jú, Zygmarr er alltaf fyrstur með fréttirnar.
Geðheilsa mín er af skornum skammti þessa dagana.
Algjörlega komin með uppí kok af Horsens. Fínn bær og allt það, en er með einhvern vorfiðring í kroppnum og langar burt í smá tíma. Sjá nýtt fólk og nýja staði. En það er víst ekki í boði og ekki er mikill áhugi hjá fólki að skella sér í ferðalag með mér, þannig að ég verð bara hérna í Horsens að bora í nefið. Var reyndar að íhuga að skella mér bara til Svíþjóðar. Ein. En það er er ekki að slá í gegn hjá yfirvöldum hér á bæ.
Nú, það er að koma apríl og ég hef ekki fengið nein svör um sumarvinnu. Áhugavert. Ég verð bara atvinnulaus í kvennahlaupsbol og Rúmfatalagersflíspeysu í sumar. Það er líka töff. Þá getum við bara gleymt Þjóðhátíð og öllu þessu skemmtilega sem átti að ske í sumar.
En hey það er sól. Og ég kann að fara heljarstökk á trampólíninu. Og ég fór í klippingu í dag. Fékk mér svona týpuklippingu sem ég á aldrei eftir að nenna að blása og greiða nema þegar að ég fer í bæinn. En verð allavega töff þá.
Og Amma og Afi eru í heimsókn. Allir fengu Íslenskar bækur frá þeim. Ég fékk að sjálfsöðgu matreiðslubók. Framandi og Freistandi. Nokkuð ljóst að amma veit að ég er ekki mikið í að elda slátur og hrútspunga. Æðisleg bók.
Best að halda áfram að lesa menningardoðrantinn sem ég keypti mér um daginn. Aldeilis merkilegar bókmenntir sem maður les. Shopaholic in New York. Ekki segja neinum.

Engin ummæli: