29.3.07

Kristín skoðar heimin

Mér var tilkynnt það í morgun að ég væri að fara að skella mér til London með bekknum mínum. Í fjögurra daga Studietur. Ekki slæmt. En auðvitað kom það svo uppúr dúrnum að skipulags-sjúku danirnir væru að plana þetta þannig að við förum ekki fyrr en á miðri næstu önn. Eða í viku 40 eins og danirnir segja (Byrjun Okt).
En þetta er ágætt.
Svo er hugsanlega, kannski, mögulega spánarferð í bígerð, svo ég verð aldeilis orðin veraldarvön þegar að þetta ár er á enda.

Það er svo fyndið hvað maður fær alltaf sömu viðbrögðin frá fólki þegar að maður er að tuða um að manni langi til útlanda. "Hva, þú býrð nú í útlöndum, getur bara komið til íslands ef þú vilt fara eitthvað." Vissulega er það rétt að ég búi erlendis. En það þýðir ekki að hér sé tívolí, verslunarferðir og máltíðir á fínum veitingastöðum daglegt brauð. Síður en svo. Líf mitt hefur ekkert mikið breyst þó að ég búi hérna, þetta er alltaf bara sama gamla rútínan og heima. Ég vakna bara klukkan 7 á morgnana og mæti í skólann eins og aðrir. Fer í vinnu og vinn heimilisstörf. (Ok, geri ekki mikið af því, en samt)
Maður þarf bara stundum smá tilbreytingu frá hversdagsleikanum. Hvort sem maður búi á Florida eða í Kína.
Svo er ég bara þannig gerð að ég vil sjá heiminn og ferðast...


3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú? Að gera heimilisverk? góð:D
Mér finnst þú bara alveg eins geta komið hingað í staðinn fyrir að fara að vesenast e-ð til London.. það er ekkert annað en peningaeyðsla og þar er engin Helga;)

Nafnlaus sagði...

Kl. 7.......HMMMMMMMMMM. Kannski meira svona 7.55;-)

Kristín Alma sagði...

Ohh.
hver ert þú??
Og af hverju veistu þetta?