Vaknaði í morgun og gat varla staðið fram úr rúminu fyrir bakverkjum. Hélt að nú væri aldurinn farinn að segja til sín og ég þyrfti eitthvað agalegt heilsu-spring-air-neverturn-betra bak rúm. Þegar að verkurinn lagaðist ekkert eftir heita sturtu var mér hætt að litast á blikuna. Það var vont að sitja, standa, liggja, hlaupa, ganga, hjóla, hoppa, hreyfa hendurnar og eiginlega hræðilega erfitt að hreyfa sig yfir höfuð.
Fattaði svo núna áðan að ég er ekki orðin svona gömul að IKEA rúmið mitt sé orðið of lélegt fyrir mig. Nei, verkurinn er í raun ekki bakverkur heldur harðsperrur. Og hvernig fær maður harðsperrur í bakið?
Prufið að eyða heilum sólardegi á huge trampolíni og sjáið hvað gerist daginn eftir.
Vil ekki vera leiðinleg, en í gær var fyrsti í grilli hérna í Hrossanesinu. Sól og blíða...
4 ummæli:
Ok nú veit ég að þú heldur að ég sé geðveik...en what the hell. Sko mér finnst bakvöðvarnir ógeðslega flottir. Þessar línur sem fólk fær sinn hvorum megin við hrygginn.
Keep jumpin for joy froggie!
HAHAHA!
Mér finnst það líka reyndar.
Er með svoleiðis. Bara undir þykku spiklaginu. múhaha!
Au bara heppin þú ;)
mér langar í bakvöðva, þarf að verða mér úti um svoleiðis!
En það var annars rosa gott veður hér í dag, sól hjá mér allavena, pínu kallt en ég er viss um að það jafnast ekkert á við danska veðrið!
Skrifa ummæli