13.3.07

Vorið

Það er svo mikið sól og sumar hjá mér að það er eiginlega bara fyndið.

Froggie bara búin að rífa hjólið útúr bílskúrnum og farinn að hjóla um allt með Ipod í eyrunum og D&G sólgleraugun á hausnum. Stefnir á að kaupa línuskauta sem fyrst, því hann er kominn með særindi í rassinn sökum hjólasportsins. Leiðinlegt ef að hann þarf að sitja á klakapokum það sem eftir lifir vors.
Nú Froggie er búinn að ná sér í frekar slæmt tilfelli af tanorexíu og hugsar nú einungis um það hvernig hann getur náð að worka tanið sem mest.

Afmælis á morgun og er Froggie að standa sig eins og hetja í bakstirnum, ef einhver skildi líta við í kaffi hérna í Stensballe slotið í dag og á morgun í næstum því stórafmælið.

Hí á ykkur í kuldanum.

1 ummæli:

Brynja Björk sagði...

Gaman að heyra þetta. Í gær stóð ég upp við vegginn í hvítri skyrtu og spurði Guðjón hvað ætti að vera í matinn. Hann spurði hvar ég væri og horfði beint á mig.