Ég og Katla verðum góðar saman.
Finn það á mér.
Hlakka til að sjá hana, hvernig hún lítur út.
Svo fyndið, búin að þekkja Kötlu síðan í janúar og vita af henni ennþá lengur, en samt aldrei séð hana.
Ég pota oft í hana og oftast sparkar hún í mig eða gefur mér olnbogaskot í staðinn.
Læt mömmu hennar borða nammi og Katla fer á flug.
Þannig tölum við saman.
Vona að hún fari að koma til okkar.
(Þetta var skrifað korteri eftir að ég sat inní sófa með Þóru og Kötlu og potaði í bumbuna og fékk spark og olnbogaskot frá Kötlu til baka.
Sagði líka við Kötlu að nú mætti hún fara að koma til okkar.
Á meðan ég skrifaði þetta efsta, um okkur Kötlu, þá Fór vatnið.
Nú eru þau á fæðingardeildinni og ég veit ekki hvernig ég á að vera.
Ég, Salka, Sindri og kisa erum heima.
Alein.)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli