Ég fann lækningu við ofsapirringnum og skapbrjálæðinu.
Inga Rós sótti mig í morgun og á leiðinni sagði hún mér alvega ótrúlegt slúður.
"Oh, my god" og "Sjitt, í alvöru?" var svo það helst sem að var sagt þegar að við ræddum þetta slúður, fram og til baka á Sæbrautinni í umferðarstöppu.
Þetta hélt mér góðri fram að hádegi.
Eftir hádegi átti ég svo samtal við nokkra vinnufélga, þar á meðal yfirmann minn sem að er mjög fínn maður, en við erum samt ekkert bestu vinir.
Hann sagði við mig "Kristín Alma, þú mátt nú eiga það að þú ferð aldrei í fýlu, þó þú sért greinilega með skap, þá kanntu að nota það og ferð aldrei í fýlu!"
Mér þótti vænt um að heyra þetta frá honum.
Vinnufélagarnir sem voru þarna með okkur sátu og göptu.
Svo kom ein, sem er búin að vinna með honum í hundrað ár og sagði mér að þetta væri sko þvílíkt hrós!
Þetta gladdi mig þangað til að pabbi hringdi í mig um kaffitíman og sagðist ætla að ná í mig í vinnuna, sem er auðvitað bara toppurinn á tilverunni, því að þá þurfti ég ekki að taka strætó, en ég er auðvitað of góð fyrir það drasl.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli