3.11.06

Tjatlan, Froggie Bergmann og Zygmarr

Ekki á hverjum degi sem að það næst mynd af þessu frægasta þríkeiki sögunnar. En það gerðist nú samt hérna um daginn. Kórsalasyndromið á sínum stað og svona.
Ripp Rapp og Rupp geta bara varað sig. Hversu cool er þetta?
(Svo er ein af 1/4 mér og heilli Tjötlu.)





















2.11.06

Já og það er komin helgi!

Ekki slæmt að vera komin í helgarfrí klukkan 10.07 á fimmtudagsmorgni.
Þessi verkefnatörn er búin. Búin að framleggja. Gekk bara vel. Kennarinn minn sem að ég framlagði fyrir er svo yndislegur að mig langar að ættleiða hann.
En þetta er allavega búið og mikið er ég fegin.
Fór heim, lagðist uppí rúm og lá þar í einhverju móki í allan dag.
Það er ekki hægt að fara út fyrir hússins dyr vegna kulda. Er að krókna þó að ég sé í 66°norður úlpunni, flíspeysunni og vettlingunum.
Er að fara að passa Breka dreka núna. Við ætlum að hugga okkur saman í kvöld. Eða ég ætla að hugga mig og hann ætlar að sofa...

1.11.06

Miss Money Penny

Jólafarið mitt er eitthvað að hækka í verði.
30. þús kall - Hver vill kaupa útlimi í góðu standi? (hmmm)
Svo er skattmann með REX við mig. Ég þarf að fá upplýsingar frá þeim, sem ég hef áður fengið sent á e-mail og borgaði ekki krónu fyrir. Núna má ég ekki fá þetta á e-mail, heldur verð ég að fá umboð, það þarf að senda þetta á lögheimili foreldra minna og ég þarf að sjálfsögðu að borga milljón og eina fyrir þetta. Þetta eru upplýsingar sem ég þarf til að fá SU, sem er styrkur sem ég fæ meðan ég er í menntaskóla hérna úti(bundinn við innkomu foreldra þangað til ég verð 20 ára, og þar sem foreldrar minir, sem eg by hja eru namsmenn, a eg rett a meira en adrir). Núna hljóðar þessi styrkur uppá 1030 dkk. á mánuði. Gæti hækkað um 1000 dkk, ef ekki meira á mánuði ef ég fæ þetta frá skattmann. Hvernig á ég að borga skattman fyrir þetta, þegar að ég á ekki peninga, vegna þess að ég get ekki fengið þessar upplýsingar frá þeim til þess að fá peningana mína!
Verð að fá mér vinnu.
Hef bara ekki hugmynd um hvar ég á að fara að vinna. Langar ekkert voðalega að vaska upp einhversstaðar fyrir 20 dkk á tímann. Efast um að það séu margir sem vilja fá einhvern útlending sem að talar dönsku með skrýtnum hreim í vinnu. Gæti tjékkað á vöggustofunum hérna, það er svo gott að læra tungumál hjá litlum börnum. En veit ekki hvort að það sé vel liðið af foreldrum að það sé útlenskur pædagogmedhjælper að passa börnin þeirra.
Ég fer kannski bara áð vinna á einhverjum bar. Fullt fólk er ekki mikið að pæla í hvort stelpan sem sörverar bjórinn tali með hreim eða ekki...

Toff

Rosa Toff.
En thetta er stolin hugmynd fra mer. Mer fannst alltaf svo osanngjarnt thegar ad eg var i umferdarskolanum fyrir litlum 13 arum, an thad væri alltaf grænn og raudur KALL. Vildi hafa stelpu i kjol.
Feministinn eg.

30.10.06

Afmælishundurinn Fróði

Fróði á afmæli í dag.
2ja ára þessi litli orkubolti og gleðigjafi.
Í dag tók hann á móti gestum að heimili sínu, Skovglimt 38 í Danmörku. Eftir mikil ræðuhöld og skemmtilegheit þá voru opnaðar gjafir. Fróði fékk meðal annars; hundakex, þurrkaðar pylsur, derhúfu og hávært dót sem að vakti mikla kátínu hjá afmælishundinum, en kannski aðeins minni hjá heimilisfólki. Dótið verður fjarlægt við fyrsta tækifæri.
AfmælisHundurinn fékk svo uppáhalds matinn sinn í kvöldmat. Íslenskt slátur og harðfisk. Meðan við hin fengum grjónagraut (og ekkert slátur).
Fróði er mjög hrifinn af íslenskum mat og sælgæti. Þar ber að nefna: Bingokúlur, djúpur, skyr, nóakropp og Serjós (Þó það sé Amerískt, það fæst ekki í danmörku, þannig að það kemur alltaf með í sendingum frá ömmu og afa).
Hann er samt sjálfur alveg rammdanskur.

Læt fylgja með nokkrar myndir frá hinum ýmsu atburðum í lífi Fróða.
-Fróði kemur í hús
-Fróði lítill og sætur
-Fróði tók ástfóstri við tuskubangsa sem hét Fífí. Varð mjög leiður þegar að hann tók aðeins of harkalega á henni.
- Fróði elskar 100 fermetra trampolínið sem að við eigum. Eyðir ófáum stundunum þar. Enda ætlar hann ad verda sirkushundur thegar hann verdur stor.
Osofin, reytt og tætt med magasar.
Tharf kaffi, fleiri tima i næsta solarhring og meiri donskukunnattu.
Farin uti apotek ad kaupa heftiplastur i metravis vid magasarinu minu og roandi.

Redda mer kannski lika brunum brefpoka i leidinni...

28.10.06


Í dag þjáist ég af ofsvefni. Svaf of mikið síðasta sólarhringinn. (Það er svosem ástæða fyrir því, óverdósaði af panodil, maður verður að taka 14 töflur til að þetta slái á einhverja verki. Þá virkar þetta bara eins og svefnlyf). Sofnaði klukkan 13.00, vaknaði um 15.00 til að taka fleiri verkjalyf og sofnaði svo aftur til klukkan 18.00. Þá vaknaði ég nú bara því að ég heyrði raddir sem ég kannaðist ekki við. (S.s ekki þessar í hausnum á mér) En þá voru þetta bara heimalingarnir okkar þegar að betur var að gáð. Komnir í föstudagspizzu og Öl.
Gerði mér lítið fyrir og svaf svo í tíu tíma í nótt. Án þess að hafa drukkið áfengi eða tekið pillur. Vaknaði klukkan 12.00 eins og úldin kjúklingur. Ég er kannski bara þunn af pillunum, veit ekki.
Núna er ég að læra og að bíða eftir að einhver bjóði mér í bíó í kvöld. Er að spara djammkraftana fyrir næstu helgi. Þá verður laglega tekið á því. Þá er nefninlega J-dagur í baunaspíruveldinu. Klukkan 20.59 kemur jólabruggið frá Tuborg allir fá einn frían og þetta er sjúkt djamm. Jólabruggið smakkast alltaf eins og skítugir táfýlusokkar þannig að ég er að pæla í að taka video af þegar að við tökum fyrsta sopann.
Hvernig tölvu á ég annars að fá mér? Ég er alveg að fara að kasta þessari útum gluggann og mér á eftir.

26.10.06

I simply adore you're black leather pants...

Fíla Togga. Fíla Drengjakór Breidholts. Alla saman fíla ég í klessukoku. (Geri rád fyrir ad thad sé fíla, en ekki fýla, thví their "stínka" ekki. En samt eru their ekki fílar - hvernig í andskotanum skrifar madur thetta?)
Sjáidi bara hvad their eru litlir og sætir. Og falskir og einbeittir. Krúsímúsí. Er ekki frá thví ad thad sé einn eda tveir huggulegir tharna líka. En thad er annad mál.

Toggi og Drengjakór Breidholts í Kastaranum...





Annars hef ég thad sæmilegt bara. Komin aftur í Danaveldid og er ad reyna ad ná úr mér KórsalaSyndrominu. Skólinn byrjadur i 5 gír. Eitthvad verkefni sem ég a eftir ad fá magasár útaf í næstu viku, thví thá er deadline. Skil og Framlegging. Ég dey.
Vantar nýja tolvu.Tolvan mín er hæææg. Tók ekki nema einn og hálfann tíma ad setja inn tvo geisladiska i Itunes og henda theim svo inná Ipodinn. Held hún sé endanlega ad gefa upp ondina, litla skinnid. Thá tharf madur ad fá sér nýtt kvikindi, thvi tolvulaus er ekki hægt ad vera.
Nú, thad eru 8 vikur og 2 dagar i næstu Íslandsferd mína. Sem thýdir ad thad eru 8 vikur og 1 dagur thangad til ég fæ Jólafrí. Sem er einmitt thann 22. desember. Tharf ad pannta mida ekki seinna en í gær. Erfitt ad kaupa flugmida og tolvu thegar ad aleigan er 40 dkk. Verd ad fresta ollu svona thangad til..?
Ég er ad fara til tannlæknis a eftir. Hvad ætli madur geti grætt mikid a thvi ad standa nidra gongugotu og syngja??

24.10.06

Auknar vinsældir

Sjitt hvad siminn minn/gæludyrid er ad meika thad nuna.
Eg er adalgellan i skolanum - Allir vilja vera med mer thvi eg a svona toff sima/gæludyr.
Nuna sitja 5 manns vid bordid mitt og skoda gripinn.
Segja ad thau hafi aldrei sed svona flott(ann) sima/gæludyr og eg veit ekki hvad. Fint, thau eru ad finna fullt af trixum og fitusum sem eg kunni ekki. Buin ad kenna mer a Bluetooth og eg veit ekki hvad.
Fokk hvad eg elska gæludyrid mitt mikid.

P.s. Gæludyrid er stutfullt af myndum af rugludum donum. Vissi ekki ad thad væri tæmer a myndavelinni...

21.10.06

Mér finnst ég vera mjög fötluð núna.
Er billaus og þarf að gera milljón hluti.
Hvað gera danir þá?

-Get ekki tekið strætó
-Gæti stolið hjólinu hans pabba, en þá þarf ég að setja upp ljótasta hjálm í heimi.
-Beðið einhvern um að koma og skutla mér.
-Fengið lánaðann bíl hjá einhverjum, hverjum þá?
-Get beðið eftir að Pabbi og Þóra komi heim úr húsdýragarðinum.
-Þá verður kannski runnið af mer hvítvínið síðan í gær

20.10.06

Strembið lif

Síðan ég kom hafa verið endalausar kaffihúsaferðir, út að borða, bíó, heimsóknir, rölt í bænum, frumsýningar, kokteilboð, Airwaves, despó kvöld og meiri heimsóknir.
Helgin verður svo meira Airwaves, Kokteilpartý hjá Sjálfstæðismönnum, Fjölskylduhátíð hjá Sjálfstæðismönnum (kem þunn eftir kokteilpartýið), búðarrölt, kaffihúsahangs, partý, út að borða, vesturbæjar ís, djamm, djamm, djamm og svo Bláa Lónið.
Ég hata þetta ekki.

En að öðru.
Fór á frumsýninguna á Mýrinni í Smárabíó í gærkvöldi. Partýplanarinn sem að planaði þetta gigg var nú ekki að vinna vinnuna sína vel. Jú,þetta var fínt og flott, allt rétta fólkið og mikið af því. Mikið, mikið af fólki. Mjög gaman, boðið uppá drykki, Balti hélt ræðu og svona, allt eins og það átti að vera. Nema þegar að það átti að fara að sýna myndina. Hún var sýnd í 3 sölum, en ekki sal eitt samt. Það vantaði sæti fyrir allavega svona 40 manns. Fólk sat á gólfinu, á stólum og sumir fóru nú bara heim. Gólfið í salnum sem við vorum í var til dæmis troðið af fólki, sem sat bara í tröppunum og á einhverjum hörðum plaststólum. Þarna fór glamúrinn alveg. Mjög lélegt að hafa ekki nóg af sætum, betra að hafa of mikið af sætum heldur en of lítið. Dáldið súrt að sjá fræga fólkið sitja á gólfinu.
En myndin var mjög góð, verð ég að segja. Ég hef ekki lesið bókina, en myndin náði mér alveg. Allur tilfinningaskalinn, grátur, hlátur og viðbjóðslega spennandi. Sigurður Óli er náttúrulega dásamlegur karakter, eða kannski bara gæjinn svona sætur sem leikur hann..?
Ágústa Eva segir alveg heilar 3 línur í myndinni. Merkilegt, hún er búin að vera í öllum blöðum og í einhverjum hjúts viðtölum útaf þessari mynd, en svo er hún bara eitthvað "aukahlutverk". Væri nær að taka fleiri viðtöl við gæjann sem leikur Sigurð Óla...

18.10.06

Bla..

Vááááá hvað ég er þreytt. Búin að vera á milljón í allan dag en samt ekki búin að gera rass. Skondið.
Ég og Katlan vorum á þeytingi í allan dag, með Togga og Lay Low í bílnum og svo tjilluðum við á Kaffihúsi með Jeff who? gæjanum. Það hötuðum við ekki.
Á morgun ætlum við að fara á búðarráp og finna eitthvað flott sem að kostar ekkert. Eitthvað svona ArtýFartý sem að kostar ekki neitt. Því að ég á engin svona ljót föt svo að ég fitta ekki inní Íslenzkan kúltúr lengur.
Svo þegar að við erum búnar að finna (ókeypis) ljót föt á mig þá ætlum við að setjast á Lífræntræktaða kaffihúsið, fá okkur dredda og hlekkja okkur við vinnuvélar á Kárahnjúkum.
Drullaði Spútnik á alla meðan ég var í burtu?

17.10.06

Danish lifestyle

Spennandi að sjá hvernig ferðalagið gengur eftir að hafa eytt gærkvöldinu og nóttinni á djamminu. Var reyndar edrú (Nei, ég lýg, fékk einn túborg), en ég er samt hálf þunn eftir þennan tveggja tíma svefn. Reykurinn inná skemmtistöðunum er greinilega ekkert að fara alltof vel í mig.
En ég er að verða skotheld og vel undirbúin fyrir svefn í lest og flugvél. Hettupeysa, koddi og Ipod. Þá verð ég úthvíld þegar að ég lendi á Ísnum á eftir.
Jæja, klukkan að verða átta svo það er best að dröllast af stað svo að ég missi ekki af lestinni.
Sjáumst á eftir!!!

15.10.06

The land of Ice

Jæja, þá er það klappað og klárt.
Búin að kaupa miða til Íslands. Mér líður vel, en ekki vísakortinu.
Lendi í Leifsstöð klukkan 15.10 á þriðjudaginn. Býst að sjálfsögðu við sömu móttökum og Magni fékk þegar að hann kom til Íslands eftir Ameríkudvölina.
Ætla að vera á Ísnum í 6 daga. Á þeim tíma mun ég vera dagmóðir fyrir Kötlu, allavega eitthvað, heimsækja vini og vandamenn, tjútta, smygla mér inná Airwaves og fara að minnsta kosti einu sinni sem túristi í Bláa Lónið. Svo ætla ég líka að liggja í sundlaugunum, fá skyr og kókómjólk.
Ætla að knúsa alla, Pabba, Þóru, Sölku, Sindra, Kötlu, Ömmurnar og afana (fyrir utan ömmu Stínu sem er stödd heima hjá mér akkúrat núna, búin að knúsa hana) frændurnar og frænkurnar, vinkonurnar og vinina, Hitta gamla kollega og svo mætti lengi telja.
Þarf líka að byrgja mig upp af allskonar sem að fæst ekki í DK. Snyrtidóti (ákveðin merki sko) Serjósi og tyggjói. Jú, svo þarf ég að nota innleggsnótu sem ég á og þarf að skíra mig uppá nýtt á hagstofunni.
Þetta verður æði.
Nú er ég bara að hugsa í hausnum hvað ég eigi að taka með mér. So far er ég komin með 10 pör af skóm. Ætli ég bæti ekki við nærbuxum og tannbursta. Vííí, spennandi.
Svo í tilefni af vetrarfríi þá er djamm á morgun, mánudag. Það er svolítið spes að vera að fara að djamma á mánudagskvöldi. En það er opið á skemmtistöðum hérna alla vikuna.
Ég og Amma ætlum svo að skella okkur í bæinn og versla aðeins á morgun. Því afi sendi hana með pening, sem að ég átti að velja mér eitthvað fallegt fyrir. Litla dekurrófan ég.

Stundum finnst mér fjölskyldan mín eitthvað svona dáldið...

I wonder why

12.10.06

Ég er of sæt!


Alltaf gaman að finna svona góðar myndir af sér á netinu.
Virðist samt vera eins og ég sé annað hvort hrædd eða ofsa glöð.
Var á Gay-pride balli, edrú. Gæti verið bæði bara.

10.10.06

Ég held að ég ætti að fá nóbelsverðlaun fyrir leti.
Eða allavega fyrir það að nenna ekki neinu. Nenna ekki að læra, nenna ekki að fara út að hlaupa, nenna ekki að taka til, nenna ekki að elda mat. En gera þetta svo alveg tussu vel þegar að ég æði í verkið. (Oftast, allavega stundum)
Eldaði fyrir systikni mín á sunnudagskvöldið. Voða flókinn námsmannamat. Kjúklingaréttur með allskonar. Skammaðist mín smá þegar að systir mín (12 ára) sagði við móðurina að "Kristín væri nú ekkert svona ósjálfbjarga eins og þau hefðu haldið".
(Þess má geta að börnin átu eins og enginn væri morgundagurinn, meira að segja litla skrímslið.)

Ég þarf að eignast Sjálfshjálparbækur og Jamie Oliver.

9.10.06

Kominn tími á tuð.

Það var reið ung kona sem að mætti á æfingu í kvöld. Búin að vera rosalega vængbrotin,litil og móðursjúk eftir atburði og drama síðustu helgar, en allt í einu breyttist þetta bara í þvílíka reiði. Fór í einhvern ham þarna í "bútkampinu" mínu. Einhver auka orka sem að leystist úr læðingi og ég breyttist í villidýr þarna um tíma. Mjög gott, var líka búin á því eftir það, þar sem að það var eitthvað lítið innbyrgt af mat síðustu daga.
En allt komið í lag núna, eftir þessa æfingu. Læknaði líkama og sál.

Nú, ég og Lára skelltum okkur í bíó eftir æfingu. Ég meikaði ekki meira Uma Thurman/Meril Streep viðbjóð aftur, þannig að við skelltum okkur á World Trade Center myndina. Já, betur sleppt því. Hélt að ég væri aldeilis að fara að sjá góða ræmu, því þetta fjallar nú einu sinni um mjög merkilegann atburð. Nei, Amerískt tilfinningaklám gjörsamlega útí gegn. Tveir tímar af einhverju goddem "Tell Donna I love her" krappi. Bjóst við að ég myndi gráta voða mikið, því síðustu vikur er ég búin að grenja yfir ÖLLU sem ég sé í sjónvarpi. (Fór meira að segja að gráta yfir Go'aften Danmark hérna um daginn því að það var verið að sýna albinóabroddgölt) Ég grét á einum stað í þessari mynd. Það var í lokinn þegar að það var spítalasena. Mér fannst svo sorglegt hvað allar hjúkkurnar í Ameríku þurfa að vera í ógeðslega ljótum fötum.

Gangið hægt í gegnum gleðinnar dyr, börnin mín
- Bergmann er farin að sofa.

4.10.06

Hætt að dissa Bootcamp

Í dag fengum við Lára mjög sniðuga hugdettu, að okkur fannst. Eftir að hafa setið á kaffihúsi allan eftirmiðdaginn, slúðrað, étið og drukkið datt okkur í hug að fara og kíkja á boxklúbbinn hérna í bænum. Sem við gerðum.
Komum inn í svona típískan boxsal, svona eins og maður sér í bíó. Allt svona frekar sjabbí, en samt ákveðinn sjarmi. Stóðum þarna og sáum svo einn þann stærsta, sköllóttasta, tattúveraðasta mann sem að ég hef augum mínum litið. Hann rumdi eitthvað um hvað hann gæti nú gert fyrir okkur. Við mjálumuðum eitthvað um að við værum bara að kíkja og sjá hvort það væri eitthvað sniðugt í boði fyrir okkur. Hann rumdi eitthvað um að það væri "boxerobikk" eftir einn og hálfan tíma og við gætum bara komið og fengið frían prufutíma ef við vildum. Sagði að þetta væri nú bara svona hopp og skopp, armbeygjur og magaæfingar. Bara svona kellingatími, eins og hann orðaði það svo smekklega. Þar sem að hvorug okkar gat komið með afsökun fyrir að mæta ekki, þá ákváðum við að við skildum bara drífa okkur. Sem við gerðum.
Mættum klukkan 18.15 til að geta nú græjað okkur fyrir leikfimina. Löbbuðum í gegnum salinn til að komast í búningsklefann, mikill sviti í loftinu sem við Ojuðum yfir. Hættum því fljótt þegar að við löbbuðum aðeins lengra þar sem að nokkrir strákar voru að æfa, já berir að ofan og eitthvað svo eins og karlmenn (Sem ég hef bara ekki séð síðan í fór frá íslandi þann 8 ágúst). Jæja fórum inní búningsklefan og ég hélt, án djóks að ég væri kominn í karlaklefann. Þarna inni var sama sjón, nema þetta voru víst konur, vaxnar eins og karlmenn. Mér leist nú ekki alveg á þetta, en lét mig hafa það. Nú svo byrjaði ballið. Kellingingatíminn var nú bara hreinasta helvíti. Ég var byrjuð að grenja í upphituninni takk fyrir. Og get sagt ykkur það að þetta var ekki bara eitthvað því að ég er í svo lélegu formi. Nei, konukallarnir öskruðu í armbeygjunum og hvað þessar æfingar nú heita. Svo hjálpaði ekki að maður var með annan svona stórann, massaðann, tattúveraðann gæja (var reyndar með hár, á hausnum allavega) standandi yfir sér öskrandi á mann að maður skildi bara drullast til að klára þetta á "full fart" annars gæti maður bara fokkast heim til sín!
Svo boxuðum við líka. Í svona púða. Guð minn góður hvað ég fílaði það. ímyndaði mér að púðinn væri sá stóri, tattúveraði og varð ýkt reið og brjáluð. Þvílík útrás. En það var líka drulluerfitt, fann ekki fyrir fótum og höndum eftir boxhálftímann. Samtals var þetta einn og hálfur tími af keyrslu, eða pynntingu eins og ég kýs að kalla það.
Ég hef nú prufað margt um dagana, en þetta var ekki neitt í líkingu við, spinning, bodypump eða hlaup. Sem ég sjamma alveg eins og ekkert sé, belive it or not.
Nú sit ég hér, get varla pikkað því að ég titra í öllum líkamanum af áreynslu, hugsa að ég geti því miður ekki mætt í skólann á morgun, alla vega hjóla ekki, það er nokkuð ljóst.
Ætla á morgun að fara og skrá mig sem meðlim í boxklúbbinn og mæta samviskusamlega í þessa tíma, aftur og aftur og aftur. Finnst þetta geggjað!!

Bergmann Miljón dollarabarnið.

Ein yfirlýsing í lokinn, bara fyrir Lindu og Helgu.

"Ég ætla aldrei á klósettið aftur með annari manneskju, sérstaklega ekki í miðjum tíma."

3.10.06

Ég vil pásu núna!

1.10.06


Tillykke með afmælið elsku Lindan mín.

Ég er ekkert í mikilli fílu þó að ég hafi misst af partý-i aldarinnar.

Hafðu það gott, sjáumst eftir 15 daga ca.







Kannski ekki okkar besta móment, en heldur ekki það versta ;)

29.9.06

Heyrt í skólanum...

Kenneth: Jenne kaffekanne
Janne: Jeg er sku da ikke kaffekanne
Omar: Jenne Yogurt
Janne: Ej, det er jeg altså ikke
Kenneth: jo du er
Janne: NEJ!

Omar: Hello, Kristín
Kristín: Ja
Omar: Spiser i så is på Island?

Ég hef eitthvað misskilið, hélt að ég væri í Handelsskole en ekki Vuggestue.
Þroskað lið.

Danir eru ruglaðir. Var að fá stundarskrána mína fyrir viku 40,41,42,43. Segir mér ekki rass. Veit ekki hvenær þessar vikur eru.
Nú föstudaginn í viku 40 er dagur sem að allur skólinn fær að velja sér einn hóp til að vera í allan daginn, m.a. spila fótbolta, handbolta blómabindingu eða botsía. Frá átta til tólf verðum við í þessu. Svo klukkan tólf er reyndar barinn settur upp og fyllerí í skólanum og vetrarfríinu startað.
Föstudaginn eftir vetrarfríið erum við svo að fara í hjólatúr. 17 kílómetra út fyrir bæinn og aftur til baka. HALLO - Haldiði að mér finnist þetta stuð?
Ég var eitthvað að tjá mig við kennarann að þetta væri nú eiginlega dáldið barnalegt. Nei, þetta verður svo hyggeligt. Hyggeligt er svar við öllu hjá þessu liði. Pirrandi, þar sem ég sé ekki mikið huggulegt við það að hjóla með öllum á fyrsta ári 34 kílómetra, allir sveittir og viðbjóðslegir. Ef einhver sér hyggið í þessu, látið mig vita.

Þar sem að ég orka ekki meira svona danskt kjaftæði í dag, þá tók ég stóra ákvörðun. Ekki djamm í kvöld. Ætlaði á L.O.C. tónleika, ákvað að vera heima og slaka á. En nei, eina sem er í sjónvarpinu er SEXSKOLEN!? Danskt fólk að geraða. Újé...

28.9.06

Hef ég einhverntíman sagt ykkur hvað mér finnst móðir mín í föðurætt ógeðslega fyndin?

Allavega, hún er massa fyndin...

Tjékk it: www.sigmarg.blogspot.com

Gó Þóra!


Svo má til gamans geta að ég kom sá og sigraði, þegar að ég mætti í skólann í morgun. (Þrátt fyrir að vera með púffý augu, úfið hár og mjög ósofin) Mér tókst nefninlega að fatta þetta helvíti sem ég var að slást við til klukkan 3 í nótt. Með Ipodinn í eyrunum og kaffi á kanntinum þá massaði ég þetta, sat í tvo tíma og leysti fullt af verkefnum og reiknaði hellings. Ég er náttúrulega bara djíníus.
Nú er það bara markaðsfræðin og svo er komin helgi áður en maður veit af.
Jibbí skibbí!

27.9.06

Klukkan er hálf tvö um nótt.
Ég er ekki farin að sofa ennþá.
Ekki það að ég sé eitthvað þekkt fyrir að vera farin uppí rúm á skynsamlegum tíma, en ég er heldur ekki þekkt fyrir að vera að lesa Rekstrarhagfræði fram á nótt.
Langar að skæla núna, er búin að vera að lesa sama kaflann í tvo tíma og skil ekkert í þessu. Þarf að mæta í tímann á morgun og væla í kennaranum að útskýra þetta fyrir mér. En hann nefninlega fer yfir þetta á ljóshraða, mér finnst allir vera að kvarta yfir því hvað þetta sé erfitt og hann fari hratt yfir þetta og blabla. Engar glósur, engar útskýringar, bara keyrsla. Verkefni, verkefni, verkefni. Veit ekki hvort að það sé verið að æfa okkur í að skilja fagið eða bara hversu hratt við getum gert verkefnin.
Bara tveir tímar af Rekstrarhagfræði á morgun. Er búin með markaðsfræðiverkefnið í ensku þannig að ég slepp við tvo heila klukkutíma af ensku, búin í skólanum klukkan 10.05. Æði. Þá þarf ég að vera lengur í skólanum til að gera markaðsfræðiverkefni, á dönsku. Sem á að framleggja á föstudag. Reyndar skemmtilegt verkefni, miklar pælingar í svona einhverju sem ég nenni að pæla í.
Ahhhh verð að fara að soooofa!!!

Froggie Bergmann er farin að gráta sig í svefn.

26.9.06


Nú sakna ég aldeilis vinkvenna minna, þeirra Kötlu og Ronju. Veit að þær eru yfir sig spenntar fyrir því að ég láti sjá mig á klakanum. Ekki eru þið hin að rifna úr spenningi, svo ég kem bara til Íslands og Ignora alla nema Kötlu og Ronju.

Við saman í sólbaði í sumar...

25.9.06

Are you ready Iceland?

Eg thjaist af svo miklum valkvida ad eg get ekki gert markadsfrædiverkefnid sem ad eg a ad vera ad gera nuna. Reyndar er eg eiginlega buin med thad thvi ad thetta er a ensku. Eg er svo dugleg.

Valkvidi dagsins: Vetrarfriid er ad ad dukka upp handan vid hornid. 13-23 oktober. Helgina 12-15 okt er eg reyndar i sma djobbi. En 16-23 okt er bara fri hja mer. Sem thydir thad ad ef ad eg fer til Islands, tha næ eg Airwaves ef ad eg timi ad borga milljon fyrir thad thad er ad segja. Næ ad hitta alla og komast i annad umhverfi og svona.
Hitt er ad thessi vika herna i DK er su besta sem ad er allt arid. Magnad helviti. Tvhiverdur ekki lyst med ordum.

Er Island til i ad fa stelpuna a klakann??

Orlog min eru i ykkar hondum...Vote now!

24.9.06

Systur mínar eru farnar að vera ansi kræfar á fataskápinn minn. Núna til dæmis eru þær á leið í afmæli, önnur í buxum af mér (sem eru ekki nema 5 nr of stórar á hana. Toff) og hin í skóm af mér. Svo heimta þær að nota sléttujárnið mitt, sjónvarpið mitt, geisladiskana mína, skartgripina mína og auðvitað misstu þær lappirnar og strætó hætti að ganga þegar að ég fékk bílpróf.
Magnið af dóti sem ég fæ frá þeim; Ipodinn fæ ég stundum lánaðann þegar að ég fer út með hundinn OKKAR, D&G belti sem önnur á hef ég fengið einu sinni, í nótt svaf ég í bol af systir minni, en hún var líka í AC Horsens bolnum mínum, skrúfblýantur og strokleður.
Af hverju stel ég ekki fötunum þeirra? Því þau eru ekki nógu töff. Sem er einmitt af hverju þær taka mín föt.
Mjög fegin að Katla og Salka séu enn svona litlar. Þó að Þóra sé mjög kræf á sokkana mína.
Ok, gleymið færslunni hérna á undan.
2 sek eftir að ég var búin að ýta á "publish post" þá fékk ég símtal. Á hinum enda línunar var spurt "ertu ekki að koma?" Þá var auðvitað partý í hvíta húsinu og ég vissi ekkert af því. En hennti mér í pils, aðra hæla, hrissti faxið, setti Cult í poka og keyrði í hinn enda bæjarins.
Þar fann ég meðal annars fólk sem að ég talaði dönsku við, fann svo út að þau voru Íslensk, ætlaði að tala íslensku en fékk svar á dönsku. Já, Krakkar sem kunnu ekki Íslensku eftir að hafa búið hér í 4 ár. HALLÓ? Hálf-fullorðið fólk sem að talar ekki sitt eigið tungumál.
Jæja, ég sat og þambaði Cult þar til að ég sá stjörnur og koffein magn líkamans var orðið óbærilega mikið, þá dróg ég liðið í bæinn. Fólk þorði ekki með mér í bílinn því að það hélt ég væri full. Sem ég var jo ekki.
Mættum í bæinn, ég blikkaði alla sem að ég gat hugsanlega blikkað og kom mér inná staði þar sem að ég átti ekkert að vera. Gott að vera vinkona dyravarðanna.
Mikið stuð. Dansað og malað. Kíkt á "kremfressin" eða stelpustrákana.
Drakk Cult, var í Friis og Co frá toppi til táar, (einhver sem vill kannast við þetta tvennt?) Stúderaði hversu mikið meik væri hægt að spassla framan í sig, hversu mikið af hárgeli/vaxi væri hægt að hafa á hálfum fermetra, hversu mikið silicon væri hægt að hafa í einu brjósti án þess að það myndi springa og hvernig maður getur orðið svona appelsínugulur og aflitaður...
Já gott fólk í nótt var ég á Pravda Danmerkur. SKÁL.

23.9.06

Konulíf

Ómæ.
Vaknaði klukkan 10.30 í morgun, þykk þrátt fyrir djamm kvöldið áður. Tók til, náði í Gumma&Kristínu á lestarstöðina, fór í bakaríið í spandexinu svo allir myndu nú örugglega vera með það á hreinu að ég hefði verið búin að skokka 5 km fyrr um morguninn.
Átum, kjöftuðum, héngum í sófanum, ég var pínd, bitin, klóruð og kitluð af ástkæra (móður)bróðir mínum.
Lagði mig. Vaknaði, fór í sturtu og blés hárið fyrir matinn. Borðaði mat með 5 settum af hnífapörum og með servíettu í kjöltunni. Fór með unga í bíó, át haribo.
Nú er mér illt í maganum, með maskara, gloss, blásið og sléttað hár í mjög dýrum stígvélum, klukkan er 23.44 á laugardagskvöldi og ég er ekki búin að opna bjór. Það sem meira er þá sit ég fyrir framan tölvuna og nenni ekki einu sinni að kíkja á SMS-ið sem ég var að fá.
Líður illa.
Ég er að verða kona!!!!!!

-Bergmann

22.9.06

Ohh, ég nenni ekki að blogga á ykkur.
áðan sjoppaði ég þangað til ég droppaði.
Keypti bara lífsnauðsynlega hluti eins og vanalega. Rótaði á útsöluslám í H&M ótrúlegt en satt. Gerði nokkuð góð kaup verð ég að segja, nærbuxur á 20kr, hlíraboli á 30kr og svona hitt og þetta. Svo var ég búin að vera svo hagsýn, allir hlutirnir sem ég keypti í H&M eru hlutir sem að eru mjög praktískir nefninlega, þá fór ég í Friis og Co og kaupti stígvél fyrir aleiguna. Ég og Afgreiðslukonan vorum báðar að réttlæta þessi stígvélakaup fyrir mér. Að þau pössuðu nú við allt, buxur, gallabuxur, pils og kjóla. Voða gott að labba í þeim því að hællinn er ekki of hár og blabla. Endaði með að ég straujaði kortið.
Nú þarf ég bara að æfa mig að labba á þeim og líka æfa mig að melta loft því að það eru engir peningar til að kaupa mat út mánuðinn.

Gleðilegt djamm.

Bergmann Out

16.9.06

Tár, bros og takkaskór

Fór á Aðalfund Íslendingafélagsins áðan.
Tróð mér ekki í neinar nefndir, kaus bara í stjórn og rétti upp hendi þegar að mér fannst það viðeigandi. Tróð mér og annari í fótboltalið kallana. Sé til hvort ég nenni að mæta svo, sagðist ætla að keppa á klakamótinu og allt, því að þetta væri bara eitt stórt helvítis pulsupartý. Sjáum til hvort að ég mæti á æfinguna á þriðjudag.
Á einhver legghlífar og takkaskó?

Byrja íþróttaferil minn á því að fara á djamm í kvöld. Íslendingaball og læti.

Rock on dudes!

15.9.06

Veiii!!!

Eg var spurd um hvort eg væri uppalin i Danmorku....!

Tala kannski ekki eins og spassi eftir allt???

14.9.06

Ofurskipulogdu danirnir eru svo miklir kjanar.
Af hverju i fjandanum er eg til dæmis med tvær stundaskrar fyrir næstu 3 vikur? (onnur stundaskrain min sidan eg byrjadi)
Adalstundaskrain segir ad eg eigi ad mæta klukkan 10.00 a manudogum. En hin segir ad eg eigi ad mæta klukkan 8.00 Semsagt adalstundaskrain segir ad eg se med eydu einhversstadar, eigi ad mæta seinna eda buin fyrr. tha verdur madur alltaf ad kikja a hina stundaskrana til ad sja ef ad madur eigi kannski bara ad vera i tima a thessum stodum. Their geta ekki sett bara thessar tvær stundaskrar saman, nei thad er ekki hægt.
Nu eftir 3 vikur fæ eg svo nyja stundaskra og thad verdur spennandi ad heyra hvernig programmid verdur tha. Meeeen hvad eg hata thetta ad thad se ekki bara ein stundaskra fyrir hverja onn, ekki 3 timabil og 2 stundaskrar i gangi a sama tima. Thad er natturulega ekki nogu erfitt ad muna i hvada fogum madur er hvada dag, i hvada stofu thad er, a hvada hæd, innum hvada inngang er best a fara til ad komst ad stofunni, hvada krokkum madur er med og allt thetta. Nei best ad flækja thetta nu og lata okkur gera thetta 3 a onn. Kulijo!

Jæja, 10 min i ad ensku timinn byrji. Hvar ætli stofa 601 se??

12.9.06

Svona er maður fyndin!

Þrjár íslenskar stelpur setjast við barinn á dönskum skemmtistað, spjalla, flissa kíkja eftir einhverju góðu.
Eftir 5 min kemur barþjónninn og spyr hvaðan þær séu. Íslandi segi ég. Hann hefur komið til Íslands og finnst það æðislega fallegt og blabla.
Stuttu seinna kemur strákur og spyr hvaðan þær séu. Svona gengur þetta og þessar píur nennar nú ekki að vera að eyða kvöldinu í að tala við einhverja lúða. Ákváðu að fyrst þær vöktu svona mikla athygli fyrir að vera frá öðru landi, þá skyldu þær nú skála bara við alla gæjana sem voru þarna.
Þeir voru til og spurja hvernig maður segi "Skál" á Íslensku. Þær svara og þeir reyna að segja það en það gegnur ekkert vel fyrst, en eftir langa og stranga kennslu tekst þeim að segja það. Allt kvöldið koma fleiri strákar og tala við þessar útlensku stelpur og þær kennar þeim að segja skál á íslensku.
Svo fengu þær nú nóg af því að sitja eins og heftaðar við barinn, kvöddu barþjóninn vin sinn og héldu út.
Á leiðinni í gegnum barinn heyrðist "SÍMASKRÁ!" og glösum lyft úr öllum áttum þegar að þær löbbuðu fram hjá.

Love this..!!

P.S. Vona bara að enginn þeirra þekkji aðra Íslendinga..muhaha

10.9.06

Að grípa gæsina meðan hún gefst?

Ég á mjög erfitt með að læra það.
Kunni það einu sinni og var íkt góð í því.
Núna uppá síðkastið er ég búin að horfa á eftir of mörgum gæsum fljúga burt.
Fucking gæsir!

En men hvað var gaman í gær, takk fyrir kvöldið allir.

(Sé til hvort að það sé hægt að þurka út það versta af því sem gerðistá djamminu um helgina og setja það innan í internetið án þess að amma fái hjataáfall fyrir aldur fram)

7.9.06

Ástin...

Spyr ekki um aldur, nöfn né skóstærð.
Heldur ekki peninga.
Nú er ég tildæmis ástfangin. Fangi ástarinnar. Mjög dramatískt.
Fjarband eins og er, kikna í hnjánum alltaf þegar ég sé mynd af henni.
Alltaf.
Verð að fá hana til mín, hún þarf að koma til mín og hjálpa mér í gegnum skólann.
Halda á bókunum, pennaveskinu, tyggjóinu, glossinu, gemsanum og hjólalásalyklinum fyrir mig, ég er ekki fær um að gera það ein, ekki með stíl allavega. Núverandi reyndar er sæmileg, en ekki nógu góð. Enda er hún bara Topshop, samt viss klassi yfir henni en engin Gucci eins og ástin.
Dusta rykið af vísanu og þakka fyrir að ég á ekki börn sem ég þarf að fóðra.

Hér er orginalið, þessi elska


















Ég hef ekki fundið feikið á netinu (kaupanlegt), þannig að ef einhver er að fara til fakemerkjalanda eins og Tyrklands, Búlgaríu eða kína þá má hinn sami kontakta mig og taka vísað mitt með (samt á það bara að notast til að kaupa þessa elsku).

Langaríana núna!
Hefði ekki átt að segja ykkur að ég væri í bloggátaki.
Ég hef ekkert að blogga um nema skólann.
Það er leiðinlegt að blogga um hann á hverjum degi, þó að það gerist mjög mikið á hverjum degi.

Rendar er ég komin með "fritidsjob" tvisvar í viku, þrjá tíma í senn. Passa Breka meðan mamman er í skólanum og pabbinn er í skólanum. Fínt, smá peningur og ekkert voðalega leiðinlegt að snúllast eftir skóla með svona litinn kút. Við kíkjum bara á barinn og svona. Dejligt.

Hefði átt að byrja þessa færslu á "kæra dagbók"

6.9.06

Solheimar




Pabbi, Thora, Salka og Katla voru ekki a Lanzarote eins og folk helt.
Heldur voru thau a Solheimum.

Sja mynd.

P.S. Eg er i bloggataki i thessari viku.

5.9.06

Våååå hvad ErhversØkonomi væri sjuklega lett fag ef ad madur skildi eitthvad af thessum 15.thusund ordasambondum sem eru notud. Eg er reyndar voda klar i ad finna utur thvi sjalf en thad tekur tima, thannig ad hausinn a mer er vid thad ad springa loksins thegar eg er buin ad lesa (tharf reyndar ekki mikid til) og a ad fara ad gera verkefni.
Svo er annad daldid fyndid i thvi fagi ad madur tharf ad thekkja allskonar "fræg" fyrirtæki, budir og verksmidjur. Vei, eg veit hvad Bang og Olufsen er, SamsøSamsø og Deres. Svo i morgun thegar ad vid attum ad vera ad vinna verkefni med einhverja rugbraudsverksmidju og slåturhus, tha var eg dåldid mikid uta tuni. En thad reddadist.
Ole Harby, kennarinn minn i thessu fagi var kennari a Grænlandi i einhver år og thegar hann var ad lesa okkur upp i fyrsta sinn i morgun så hann nafnid mitt og sagdi...Nohh, Island hva? Svo kom rædan um ad hann hefdi nu verid a Grænlandi i nokkur ar og jarijari. So, mer er sama!! Island og Grænland er ekki sami hluturinn. Nu halda krakkarnir sem eg verd med i tima næstu 5 vikurnar ad eg se einhver Grænlenskur ålfur....

to be continued - Kristin Grænlenska

31.8.06

Þakka kommentin sem hafa ringt yfir síðustu færslur.
Ég þurfti að taka mér frí í skólanum til þess að geta svarað öllum þessum kommentum.

Greinilega einn diggur lesandi og það er AMMA!
Takk fyrir.

Tikkerinn segir samt oftast um 100 heimsóknir á dag, spurning um að amma ætti að fara að fá sér hobbý, en ekki bara ýta á refresh allan daginn.

Nú er það bara comment or die!

Töff löv beibís.

Miss pirrípú

28.8.06

Skolalif

Vika 3 ad hefjast. Getur varla versnad. Er ekki aaaalveg ad fila thennan skola, nåmid fint, folkid utur ku. Er med nokkrum 16 åra krøkkum i bekk, sem eru i thessum tøludu ordum ad stata sig af thvi ad hafa komist inna skemmtistad um helgina. Eins og eg hafi åhuga å ad vita thad, eg ordin svo gømul ad eg er komin med aldur til ad fara i bæinn. Ordin svo reyndur djammari ad thetta er ekkert merkilegt fyrir mer.
Talandi um djamm. Thå var tekid a thvi um helgina. Passadi Breka og lika Petur vin hans å fimmtudaginn, thvi Madonna sjålf var med huge tonleika i Horsens. Vid såtum bara heima hjå Breka (hann svaf reyndar bara) og horfdum a kjulla litla 2 sinnum. Hlustudum lika a Madonnu utum gluggan og svo veiddum vid Petur osynilega fiska af stofugolfinu sem breyttist i sjo, thannig ad ekki var hægt ad ganga a milli stada, nema blotna i fæturna.
Føstudag var bærinn stutfullur af allskonar folki, thvi midaldafestivalid fræga var um helgina. Rosa gaman a thessu festivali, samt skemmtilegast a næturnar thegar fameliufolkid er farid heim og madur getur slett ur klaufunum. Sem var einmitt thad sem var gert. Hittum mjøg marga Islendinga og syndum theim hvernig a ad djamma danish style.
Laugardagurinn for i hang, McDonalds og BILKA. Laugardagskvøldid skrapp eg nidri bæ og kikti a festivalid. Smygladi hvitvini thangad inn. Gangster. Svo var bara partyast og farid aftur nidri bæ a tonleika med Nik og Jay, sem voru reyndar bara haldnir a svona frekar storum skemmtistad her i bæ. Vorum komin thangad inn um klukkan 01.00, heldum ad vid værum med theim fyrstu, en NEI. Rosalega mikid af folki, tha reyndar rann thad upp fyrir mer ad Nik og Jay eru engin wannabe, their eru frigging storstjornur. Jæja, vid letum okkur audvitad hafa thad ad vera tharna inni, Godur DJ, en mjøg lett ad tynast a thessum 3 hædum. (Minu tilfelli, stinga af, eg er god i thvi) Jæja, Nik og Jay a svidid og min sa eitt lag, nennti ekki meira og pilladi mer ut ad finna Laru sem ad ætladi ad hitta okkur inna stadnum. Fann hana fyrir utan og stakk hana af. For aaaaadeins ad tala vid vin, sem eg hefdi betur latid ogert thvi thad var svo gaman ad eg gleymdi Nik og Jay og missti alveg af theim. Algjør bjani. En thetta var vist bara prump og eg hef nu sed tha a storum utitonleikum adur svo eg lifi af.
Sunnudagurinn for i ad hlusta a skammir fra hinum og thessum um ad eg hafi alltaf verid ad stinga af. Ekki i fyrsta skipti sem madur heyrir thad svosem. Hvad heldur folk ad eg nenni ad hanga endalaust inna sama stadnum med sama folkinu - nope, madur verdur ad skoda meira.

Jæja, held ad eg hafi geta ælt thessari helgarsøgu utur mer an thess ad lata folk fa hjartaafall, sleppti svona thvi grofasta.
Nuna er thad bara skoli, skoli, skoli, Afi Lewis kemur a morgun i heimsokn og verdur i einhvern tima. Tha fær madur 3ja tungumalid og eg verd ørugglega kolruglud/rugladri eftir nokkra daga, thvi thad er nogu fjandi erfitt ad vera alltaf med sitthvort tungumalid, eitt i skolanum og eitt heima. Nu er thad eitt i skolanum og tvo heima.
Spennandi.

16.8.06

Móðir mín í föðurætt!


Á víst afmæli í dag. (samkvæmt þjóðskrá)
Orðin töttuguogsjö, svo nú eru heil 9 ár á milli okkar í stað 8 - reiknið nú.
Well afmæliskonan svarar ekki smsum, er greinilega búin að afneita mér, en bið hana samt vel að lifa.

Afmæliskonan og Katla bjúúútí:












8.8.06

Dánarfregnir og Jarðarfarir

Ég hata millilandaflutninga.
Núna til dæmis þá er ég að pakka síðustu 7 mánuðum niður í tösku. Ógeðslega erfitt. Að sjálfsögðu er ég búin að vera brjáluð í skapinu síðustu daga. Grenja og hlæ til skiptis.
Ótrúlega mikið búið að ske á þessum stutta tíma sem ég er búin að vera hérna á Íslandi. Langar ekki að fara aftur heim, Þó það verði mjög gott að komast þangað aftur.
Er að hlusta á SigurRós núna er sjúk í þá, enda búin að elta þá um landið eins og versta hljómsveitarpíka. Drööööllu góðir í Ásbyrgi á föstudaginn, svo flott umhverfi og góð stemning líka. Er orðin dáldið artýfartý núna, var samt stoppuð af þegar að ég heimtaði að við færum á Sirkus í gærkvöldi, þegar að við vorum á röltinu niðrí bæ. Þakka mjög vel fyrir mig, þú sem neitaðir mér um það. Sirkus er ógeð.

Var annars á Akureyri mestmegnið af helginni, þó að við höfum nú farið í Mývatnssveit og Ásbyrgi, Gist í bílnum og drukkið volga kókómjólk. Sundlaugin á Akureyri var mikið notuð, Brynjan var heimsótt og Sjallinn(aðeins) skoðaður. Það var að mínu mati aðeins of mikið af fólki, en samt ótrúlega gaman. Pabbi og pakkið voru í Kjarnaskógi þannig að maður skrapp þangað og lagði sig eftir langa nótt í bílnum og át eldaðan mat og svona, mjög henntugt.

Komum svo heim í gærkvöldi. Arna mín kom svo til mín og við smelltum okkur í gallann, opnuðum bjór og gerðum okkur klárar fyrir feitasta bæjardjamm sem um getur (var það allavega hjá mér) Fórum í smá teiti og skelltum okkur svo á Sólon til að hitta Ingu Jónu. Svaka stuð á okkur. Stakk stelpurnar af og hitti Aron. Við fórum svo á röltið og máluðum bæinn rauðan. Svoddan partýljón, við tvö plús 10 vinir hans.
Tjékkuðum á nokkrum stöðum og fórum svo heim - var komin í háttinn klukkan átta um morguninn, svo það má segja að stelpan hafi verið á skralli í tólf tíma, plús allt djammið um helgina.
Verð þunn framá miðvikudag.

Takk fyrir mig Ísland.

4.8.06

Svo gaman á svona íslenskum sumarnóttum þegar að maður er úti að spássera til klukkan að verða átta á morgnana.

Hver þarf að sofa þegar að það er svona gaman?

Ég er annars á leiðinni í heljarinnar road trip á eftir. Ég og Brynja Rún ætlum að skella okkur norður og vera þar fram á sunnudag, koma þá heim og djamma rækilega í bænum, svona one last time áður en ég fer heim aftur á þriðjud.
Langar ekki að hugsa um það einu sinni að ég sé að fara, meeeeen hvað það verður erfitt...

En ég er farin, reyni að drepast ekki í sveitinni.

31.7.06

Sigur Rós




Við hér í Kórsölunum ákváðum að skella okkur á Sigur Rósar Tónleikana sem að voru haldnir á klambratúninu í kvöld. Auðvitað þurfti maður að gera sig tilbúinn, þið vitið, klæða sig rétt og vera samt vel til hafður og ekki of útilegulegur.

Hér eru myndir af annars vegar Pabba sem að vildi reyna að fitta inn og vera með Sigur Rósar húfu, dáldið ArtýFartý. Svo var það hún Þóra sem að var meira í því að vera klædd í hlébarðamunstur, máluð um augun og með nýlagað hár. (það var reyndar altalað á tónleikunum hvað hún var fín...segir hún.) Katla gerði ekki mikið til að undirbúa sig, enda fór hún bara í pass til ömmslu sinnar. En hún kann samt öll lögin.
Það náðust ekki myndir af mér í undirbúningnum, en þar sem að það var bara 18 stiga hiti þegar að við lögðum af stað þá þurfti ég að fara í síð ullarnærföt og kraftgalla á tónleikana. Svo rúllaði ég um tónleikasvæðið, gat ekki labbað sökum ofklæðnaðs.

Tussugóður Tónleikur. Get ekki beðið eftir næsta.

26.7.06

Yes you did, Mr. Hopkins


Ætla bara að koma mér beint að efninu, engar lélegar afsakanir fyrir bloggleysi eða Footlooseferðum.

Rakel mín og Benni eru búin að eignast svona litla sveskju. Fæddist 14 Júlí, eftir 12 daga bið, takk fyrir takk. En stjörnurnar láta víst bíða eftir sér, það þekki ég nú.

Svaka sæt - finnst voða gaman að sofa þegar að ég kem í heimsókn samt, eins og alltaf skilst mér.

Til hamingju dúllurnar mínar, þið eigið eftir að upplifa næstu átján árin, svefnlaus og áhyggjufull :)



Ég er annars búin að gera mikið síðan ég dritaði inn hérna síðast.
Var til dæmis í fríi í vinnunni á föstudaginn í góða veðrinu. Fékk Sölku lánaða og við skelltum okkur í útréttingar. Svo heimtaði barnið ís svo ég fór með hana niðrí samskip til Óskars og lét hann bjóða barninu ís. (alltaf að spara) Skilaði henni svo heim þegar hún var næstum klístruð við gólfið niðurfrá, hennti henni inní bíl hjá pabba sem að brunaði með sinni kokteilfamelíu á Snæfellsnes í tjald. Restinni af deginum eyddi ég á Austurvelli með Guðrúnu og hennar fylgifiskum og sleikti sólina. Bókstaflega. Vaknaði upp við vondan draum klukkan sjö, þegar að ég fattaði að það var búið að bjóða mér í leikhús klukkan átta. Brunaði heim, náði í litlu systir útá nes til ömmu og afa og við skelltum okkur á Footloose. (Gummi bauð okkur, en var svo veikur þannig að hann komst ekki)
Þetta var alveg fínt, ekkert stórkostlegt, en ágætt. Voru eiginlega tveir karakterar þarna sem redduðu sýningunni gjörsamlega, held að þið sem hafið séð þetta vitið hvað ég á við.

Fór svo í allskonar matarboð og ég veit ekki hvað og hvað um helgina.

Þetta er það eina sem ég hef gert, fyrir utan að vinna, vinna og vinna.
Mörkin í næstu viku, kvíðinn farinn að gera vart við sig....

Bæjó

12.7.06

Froggie Schumacher

Ójá.Náði prófinu með stæl, þrátt fyrir að hafa gleymt að gefa stefnuljós þegar að ég bakkaði inní stæði og keyrði á rúmlega 60, þar sem að 60 var speed limit.

Nú bíð ég bara eftir að Séð og Heyrt hafi samband...

6.7.06

Crazy

*Það er allt á fullu hjá mér þessa dagana.Vinna og svo sef ég þegar að ég er ekki að vinna.

*Óstjórnleg þreyta hefur gert vart við sig hjá mér uppá síðkastið. Þarf að sofa í minnst 10 tíma á nóttu og leggja mig aðeins í svona 1-2 klst þegar að vinnudegi lýkur.Skil þetta ekki.Held að þetta sé skammdegisþunglyndið sem heldur bara að það sé velkomið núna, þar sem að það er alltaf grámyglulegt. Skammdegisþunglyndið er velkomið í janúar/febrúar - þá er hægt að tækla það þar sem að það er önnur hver manneskja í alheiminum sem að þjáist af því, svo maður fer bara til doksa og fær smá prósak. Í júlí er öllu erfiðara að tækla þunglyndið.Hræðilegt ástand.

*Skötlaðist útum allan bæ á ömmu og afa bíl um daginn. Amma var með, mjög róleg. Kom svo og ætlaði að skila bílnum og ömmu til afa, og fá mér eldaðan mat. Afi heilsaði ekki, en spurði bara "hvað margar rispur" náfölur í framan. Svo kíkti hann á bílinn og kom aðeins húlitaðri inn.
Át hjá þeim og afi fékk smám saman aftur á sig manneskjulegan lit. Svo þurfti ég nú að komast heim svo að ég og amma ætluðum í bíltúr. Ég ákvað að vera kurteis og bjóða afa með í bíltúr. Han afþakkaði pent og sagði að í reglunum stæði að það mætti nú ekki hafa fleiri en einn farþega með sér. Ég sagði að það væri nú ekki rétt. Hann var fljótur að hugsa og sagði að það mætti alls ekki keyra með ellilífeyrisþega, Amma benti honum á að hann væri nú faktískt ekki "Þegi" ennþá. Þá lagðist hann niður og þóttist sofa - Afi deyr ekki ráðalaus.
Reyndar skil ég ekki hvaða áhyggjur maðurinn hefur. Þessi bíll sem að þau eiga er sko sá besti í heimi til að keyra, hann segir við mann þegar að maður er að fara að bakka á eitthvað og ef maður er kominn of nálægt. Voða skemmtilegir svona bílar sem að tala við mann, þá er maður ekki eins einn þegar að maður er úti að keyra. Samt kannski líka krípí, á sinn hátt.
Viðurkenni reyndar að ég er ekki besti bílstjóri í heimi, en svona er þetta þegar að maður er að taka þetta bílpróf núna á gamalsaldri. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja.

*Nú er salkan mín í Svíþjóð. Hún var ekki viss hvert hún væri að fara til útlanda, vissi bara að hún ætlaði í flugvélina og í flugfreyjuna. Hún spurði mig svo hvert hún væri nú að fara, ég sagði nú til Svíþjóðar - hún varð alveg brjáluð og sagðist sko ekki vera að fara í neitt þríhjól!!
(Þríhjól-Svíþjóð, same shit þegar að maður er 3ára ;))
Svo gat ekki sagt svíþjóð, þannig að hún sagði bara "Sss-sjóð". Svoddan brandarakerling.

*Rakel mín var sett á sunnudaginn. Það er ekki komið barn ennþá. Ætli það komi nokkuð fyrir jól?

*Hvað ætli það séu margir sem tóku út sumarfríið sitt akkúrat meðan HM var/er? Ég veit um nokkuð marga, en þið?

*Þetta var useless blogg í boði frogz.is

**Berrössuð**

Djamm um helgina??
Verið í bandi, I need some Djamm ;)

30.6.06

í dag var ég barnapía.
Kötlubarnið var í pössun hjá mér í heila tvo tíma.
Við gerðum allskonar saman. Það var mjög gaman hjá okkur. Spjölluðum mikið saman og ég er ekki frá því að barnið hafi sagt "Kristín Alma" og fleira. Nú auðvitað talaði hún líka smá um pólítík og efnahagsmál. Annars var það mest bara Agúuuh og fruss. Við lékum okkur svo saman í dágóða stund á leikteppinu með gíraffann og páfagaukinn, vorum í leik með þeim alveg þangað til að Katla ákvað að pissa 3 lítrum í bleyjuna og krafðist þess að ég myndi skipta á henni. Þegar að því verkefni var lokið þá skellti ég barninu í alklæðnað frá 66°norður, en reyndar sleppti ég treflinum, svona útaf því að það er hásumar og hlýtt úti eftir því. Barnið hraut úti í klukkustund, tæplega. Þá vildi hún koma aftur inn í fjörið. Nema hvað að þá var svengdin farin að segja til sín og barnið var ekki sátt við að vera kjurr í fanginu á mér, svo ég skellti Kötlunni í apapokann og gekk um gólf með hana, málaði mig, fékk mér kvöldsnarl, hlúði að sárlösnum kettinum og ýmislegt fleira. Á meðan Agúúúúaði barnið í pokanum og slefaði örlítið yfir mig, pokann og sjálfa sig. Merkilegt að hún skuli virkilega halda að hún geti troðið báðum krumlunum uppí sig í einu. Dáldið vitlaus svona lítil börn.
Móðirin kom svo heim og barnið var fyllt af mjólk. Eftir það lá hún í sófanum og frussaði, þar sem að það er það nýjasta hjá henni, frussa útum allt. Komumst að því að hún er hin fínasta latte maskína, þar sem að hún freyðir mjólkina - Ekki allir sem eiga svona sniðugar Kötlur.

Helgin framundan. Ég verð að vinna á laugardag og svo tek ég að mér Almarsdætur á sunnudag. Maður er alltaf í börnunum.
Reyndar ætluðum við Inga Rós að fá smá útúr þessari helgi og kíkja útá lífið annað kvöld. Hjálmar á NASA og svona, gæti verið að maður kíkji aðeins á það.

Barna og skemmtana- Froggie

28.6.06

Dáldið hræðilegt

Mér er svo illt í hendinni að ég get bara pikkað með einari.
Bólgin og ég held eg verði að fara uppá slysó í myndatöku, til að tjékka hvort að um beinbrot sé að ræða.
Vildi óska þess að ég hefi bara dottið eða meitt mig á einhvern eðlilegan hátt.
En, nei. Ég varð reið útí kerru (smábarnakerru) sem að ég var að smella saman (vildi ekki smellast) svo ég bara bombaði í hana. Það virkaði en ég sit uppi með ónýta hendi.

Líður dáldið kjánalega. Ef einhver spyr "hvað kom fyrir" þá segi ég að ég hafi rotað karlmann í boxi...

Slasaður Froggie

27.6.06

3,5



Hljóp 3,5 kílómetra áðan.
Sá hvítar doppur þegar að ég kom inn.
Þegar að ég náði svo loksins andanum þá varð ég voða montin.
Ætla að skella mér í pottinn, því að það er mjög mikilvægt fyrir svona langhlaupara eins og mig að hvíla sig vel eftir hvert og eitt hlaup.
Ömmu fannst mikilvægara að ég fengi mér nú eitthvað hollt þegar að ég væri búin að hlaupa þessi ósköp og pressaði ávaxtasafa fyrir mig.

Kv, Froggie afreksíþróttakona

24.6.06

Timburmenn

Já, líklegt.

Ígær var svaka stuð. Kastaði mér uppí sófa og horfði á Beverly Hills með Arsenal sængina. Ætlaði að horfa líka á Melrose place en var sofnuð löngu áður en það byrjaði.
Vaknaði klukkan 7.45 búin að sofa í 11 tíma.

Þetta hefði kannski verið afsakanlegt hefði ég verið með háan hita eða þá að þetta hefði verið mánudagskvöld eftir langa og stranga vinnu eða djamm helgi.

Ekki hægt að afsaka að sofa svona yfir sig á Föstudagskvöldi.

Nema að það sé bara svona gott að sofa með Arsenal sængina hennar Sölku?

22.6.06

Nú er stuð í Kórsölum.
Ég og Ronja erum einar heima.
Ronja er eiginlega úti allan daginn að láta ólétta sig svo ég er ein.
Pabbi, Þóran, Salka og Katla eru í sveit að elta gamla geit.
Best að fara að taka til....

á nærbuxunum.

21.6.06

Eins og sjá má á fyrri færslu þá er ég komin á ísinn aftur eftir stutta dvöl í danaveldi.
Flaug út á laugardagsmorgun. Tók reyndar á mig örlítin krók og flaug til Oslo og þaðan yfir til Sjöppen. Fyrsta skiptið mitt í Oslo, ekki svo slæmt. Drakk goslaust pepsimax og keypti mér Samsonite dót á skít á priki.
Nú eftir að ég var búin að koma mér í gegnum skandinaviu þvera og endilanga, búin að rífast við 34 starfsmenn SAS og Icelandair, Búin að setja upp leikrit á flugvellinum hérna heima þar sem nokkuð mörg tár og veik frænka komu við sögu, eftir að hafa setið við hliðiná illa lyktandi þjóðverjum á leið til Oslo, eftir að lítil krumpuð kona var næstum búin að stela símanum mínum og eftir að ég lamdi litlu krumpuðu konuna og fékk símann aftur þá var ég loksins komin til Sjöppen. Þar var mannsæmandi loftslag, töttugu og femm stiga hiti og sól. Gummi og Kristín náðu í mig, ég setti upp sólgleraugun (loksins) og við brunuðum á vestur jótland, eða í gegnum alla danmörku.
Þegar að við komumst á leiðarenda biðu Amma, Afi, Mamma, Pabbi2, Systkinahrúgan, Fróði (hundurinn minn.) Óskar, Lija, litlufrændaskrímslin tvö eftir okkur í þessu líka svaka stóra sumarhúsi sem var með einkasundlaug, heitum potti, gufu, stórum garði og huge hvítri strönd
rétt við. Æðislegt. Ótrúlega gaman að hitta alla, sérstaklega mína famelíu sem ég hef ekki hitt í hálft ár. Þetta var æðislegt út í gegn, bara slakað á, sofið til hádegis,farið út að skoða ströndina og kíkt í legoland, svo var komið heim og maður lagði sig aðeins. Voðalega ljúft.
Ég þakka kærlega fyrir mig og legg til að þetta verði árlegur viðburður. Hvað segiði um að hittast næst á spáni? Hafið það sem best og vonandi getið þið skemmt ykkur jafn vel án mín.
Ég, Gummi og Kristín brunuðum svo í hádeginu á þriðjudag til Sjöppen aftur. Komum þangað um fjögurleytið þannig að við Kristín skelltum okkur á strikið, sem er handan við hornið frá staðnum sem þau búa á. þægilegt að eiga svona vel staðsetta ættingja. Ég setti evrópu met í fatakaupum innanhús án atrenu, keypti 2o kíló af fötum, slatta af skóm, töskur, glingur og aðrar nauðsynjar. Takið eftir því að ég verslaði allt þetta í tvem búðum. Geri aðrir betur.
Var mætt útá kastrup 22.00 og flaug svo heim klukkan 22.50.
Dröllu fallegt fólk í vélinni á leiðinni heim, en ég var látin sitja fyrir framan heila íslenska fjölskyldu. Börnin töluðu dönsku við hvort annað og görguðu. Mamman og pabbinn voru full.


Ég fékk gjöf frá systkinum mínum þegar að ég var að fara. Það var froskabangsi, því þeim finnst ég svo mikill froskur. Þau lesa ekki bloggið mitt - þetta var sætast í heimi :)

Já gott fólk.
Ég er lennt á klakanum og tók heldur betur sólina með mér.
Sjáum til hvað hún endist lengi...

Froggie ferðalangur

17.6.06

Farvel Kalda frón


Froggie.is er farin til Danaveldis að hitta stórfjölskylduna í huge sumarhúsi einhversstaðar á vesturströndinni. Fékk sendan miða á e-mail í fyrradag í boði Gummi group. Ákvað að skella mér.
Flogið í nótt til Köben og keyrt þaðan með Gumma og Kristínu.
GamanGaman.
Vona að ég geti notað sólgleraugun mín þar.

Gleðilegan 17.júní.

Ef einhver nennir þá má hann sækja mig útí Leifsstöð klukkan 23.55 á þriðjudagskvöld. Það eru allir sem ég þekki í útlöndum...

Verið góð hvort við annað...

13.6.06

Dæmigerður Íslendingur

Á sunnudaginn var hræðilega mikil rigning.
Ég ákvað nú samt að gera eitthvað sniðugt úr deginum og skella mér í sund. Það var reyndar alveg ógeðslega þægilegt að liggja í pottinum, hálf berrassaður, innan um 176 aðra berrassaða einstaklinga og láta rigninguna dúndrast á andlitið á sér, eftir að hafa synt marga kílómetra.
Þegar að ég var komin uppúr ákvað ég að fara út í stuttum gallabuxum og opnum skóm, því ég hélt að rigningin myndi ganga yfir. Kannski full mikil bjartsýni. Ég þurfti að labba tvo metra undir berum himni og á þeim tíma rigndi svo að ég hef aldrei kynnst öðru eins. Orðatiltækið "það rigndi eins og hellt væri úr fötu" fölnaði við hlið þessarar dembu.
Jæja, ég orðin blaut aftur og fötin líka, eins gott að ég var með handklæði í töskunni. Kíkti við í Smáralind, pælingin var sú að ég myndi kaupa mér einhver viskuleg föt, skó eða eitthvað sem að gerði gagn á þessu blauta landi.
Nei, ég kom út með Dolce og Gabbana sólgleraugu. Bráðnauðsynlegt að eiga svoleiðis í blíðunni hérna á Íslandi. Hefði betur keypt mér vöðlur, örugglega hægt að fá einhverjar súper góðar og flottar vöðlur fyrir sama pening - MIKIÐ meira notagildi.
Í dag var í fyrsta skipti sem að ég hef farið út með gleraugun. Labbaði úr vinnunni og útí matarbúð í hádeginu. Svo tók ég á mig extra krók á leið heim úr vinnunni, fór niður laugarveginn, svo það væri nú hægt að nota gersemina eitthvað.

Nú er ég hjá ömmu og afa, nema þau eru ekki heima. Er búin að fara í pottinn og liggja þar eins og skata. Svo gott, best í heimi.

10.6.06

Litlu-skrímsla-blogg







Já, þetta blogg verður tileinkað litlum börnum útum allan heim og foreldrum ungra barna, sem ég dáist að.
Passaði litla skrímslið mitt í gær, hún var ekki jafn stillt og vanalega, eða reyndar bara þreytt og ekki sátt við að vera sett í pössun í heilar 40 mín. En svo var núðlunni okkar bara skellt í bað og þá varð hún sátt og sofnaði í stólnum sínum.
YNDI þetta barn.

Nú, eins og flestir hafa tekið eftir, þá er óléttan að ganga og greinilegt að þegar að vorvindarnir fóru að blása að það hafi borist eitthvað annað en birkifræ með þeim. Best að passa sig, því að ég held að þetta sé smitandi. Get svarið fyrir það, það er önnur hver kona á Íslandi ólétt. Mjög skæð pest. Þori ekki út, ef maður á það á hættu að smitast.
Fékk einmitt óléttufréttir númer 37 áðan, hitti fyrrverandi vinnufélaga úr Samskip sem sagði mér það að þau hjónin ættu von á litlu kríli. Loksins :)
Gaman Gaman.

En jæja, best að fara að sofa í hausinn á sér, þarf að vinna eins og mófó næstu vikur til að eiga fyrir öllum sængurgjöfunum, eins gott að maður er á sérdíl hjá BabySam...

6.6.06

Froskurinn.is virðist bara ekki geta rifið sig uppúr blogglægðinni, ætti kannski að ræða við Sigga Storm um það hvernig spáin verður næstu daga.
Partý stand er líklega það sem einna helst hefur einkennt síðustu daga.
Þrítugsafmælið hjá Gumma var auðvitað ekki af verri endanum og ekki neitt venjulegt partý þar á ferð skal ég segja ykkur. Mætti klukkan 5 í mínu fínasta pússi, með gloss og allt. Þá var matur sem undirbúinn var af meistarakokkum, auðvitað. Gott vín og engar djöfuls knorr sósur skal ég segja ykkur. Svo klukkan 20.00 var svo partýið, þjónustufólkið merkt, huge banner á húsinu, golfkúlur fyrir alla, merkt, hljómsveit, flæðandi áfengi, bjór í fiskikörum, sem voru full af ís og ég veit ekki hvað og hvað. Mjög gaman og ég vil nota tækifærið hérna til að þakka kærlega fyrir mig!
Sunnudaginn var svo BS djamm, og það ekki af verri endanum. Byrjað á að borða saman á Ítalíu, mjög góður matur og fín þjónusta. Svo var farið heim til Elfu, setið og spjallað fram yfir miðnætti. Þá tíuðum við okkur í bæinn, fórum á Sólon, Hressó og Pravda. Enduðum með einhverjum ameríkönum í einhverju "vip" herbergi á pravda. Get svarið fyrir það, ALDREI ALDREI AFTUR (á pravda)! Var lokuð inní rými með 1000 aflituðum, appelsínugulum karlmönnum, 50 gellum sem voru með svo mikið sílicon í hinum ýmsu líkamspörtum að það kæmi mér virkilega ekki á óvart ef einhverjar þeirra væru í heimsmetabók ginnes - Svossem kannski gott að fylla uppí það sem hægt að er fylla uppí til að tómarúmið í hausnum verði ekki jafn áberandi. En hvað veit ég, bráðgáfaður kvennmaður með ekta brjóst, glötuð pía? (lennti sko í atviki inná Pravda, þar sem tvær svona píur komu við sögu, svo vitlausar!)
En í heildina var nú ótrúlega skemmtilegt þetta kvöld, mjög vel heppnað. Takk fyrir síðast skvísur.
Í gær átti (lang)Amma Ragga svo níræðisafmæli, að því tilefni var liðinu smalað saman í flottan dinner á skólabrú. Þarna vorum við samankomin, börnin hennar, barnabörn og svo við Skúli, tvö elstu langömmubörnin. Svaka gaman, voða flottur matur, vín, flott fólk og ræður. Amma Ragga er bara svo mikill töffari að ég held að ég eigi töffuðustu langömmu í heimi, gamaldags er nú varla til í orðabók þeirrar gömlu.
Hafdís frænka sagði við mig, Jæja Kristín Alma mín, það er nú meira hvað þú ert ORÐIN falleg og yndisleg stúlka. Fór heim á bömmer yfir því að hafa verið svona ljótt og glatað barn.
Þetta var reyndar ekki það sem hún átti við, sagði svo að ég hefði nú alltaf verið þetta, bara orðin meiri dama núna heldur en fyrir 10 árum.
Svo verður meira partýhald með gömlu 24-25 júní - útí sveit, þar sem að ég hef ekki komið síðan að beljan sleikti á mér eyrað forðum daga, verð að horfast í augu við óttann.
Áðan hitti ég svo Helgu á Oliver, fengum okkur að borða og planið var nú að spjalla saman, en það varð eitthvað minna af því þar sem að Helga var nánast óviðræðuhæf, bæði því hún var svo upptekin af matnum og svo þegar að hún leit upp frá disknum þá var það til að kíkja aðeins á danska barþjóninn og segja svo "frígging heitur gaur" Ég er ekki sammála. Sagði henni að allir væru svona sætir í Danmörku. Nú skyndilega vill hún ólm koma í heimsókn til Danmerkur. Skrýtið.



Lifið vel.

1.6.06

Afmælisfólkið

Jeminn eini hvað ég er þreytt.
Nýkomin heim af Seltjarnarnesinu gamla og góða, fór þangað beint eftir vinnu.
Mættum nokkur í Sævargarða 1 til að skúra skrúbba og bóna fyrir veisluna á laugardaginn. Voum á 100 að þrífa, við kvennsurnar inni að þurrka af og svona en karlarnir úti að þrífa glugga og ditta að hinu og þessu. Þegar að þrifunum lauk þá vorum við í því að skipuleggja hvar hvað ætti að vera, vorum nú reyndar með smá fyrirmæli frá afmælismanninum, en samt sem áður þurfti að sjá þetta allt fyrir sér, hvar hljómsveitin eigi að vera, hvernig væri best að hafa borðhaldið þarna fyrst, þegar að við famelían erum bara og svona allskonar. Svo sagði afmælismaðurinn að það kæmu svona fiskiker (að mér skilst) full af ís á laugardaginn, hvernig svosem í fjandanum þeim verður komið fyrir þar sem þau eiga að vera, en ég ætla samt að horfa á það - verður spennandi. eða ekki?

Ok, þetta er svona líka leiðinlegt blogg - endum þetta á afmæliskveðjum til vandamanna.

Litla systir á afmæli í dag, SiggaSoffa litla orðin 12 ára gömul. Finnst mjög stutt síðan ég sá hana fyrst, fannst hún nú ekki sæt, verð ég að viðurkenna, bara lítil krumpuð og eins og kínverji, með voða mikið svart hár - En hún er nú þvílík myndardama í dag, Til hamingju með afmælið krútta!

Best að óska Guðmundi Óskarssyni líka til hamingju með stórafmælið, orðinn 3o ára, Til hamingju með það! Þess má til gamans geta að Gummi er einmitt guðfaðir SigguSoffu, ekki amalegur guðfaðir sem hún á, stelpan.

P.S. Hérna er svo mynd af boðskortinu sem ég fékk, dáldið öðruvísi, það verður ekki annað sagt.

30.5.06

Ég verð víst að viðurkenna það að ég hef ekki verið að sinna skyldum mínum sem bloggari síðustu daga og vikur. En það er reyndar búið að vera hundmikið að gera hjá mér og froskurinn.is var settur á hold á meðan.

Mikið hefur nú ekki skeð síðan síðast. Jú við skitum uppá bak í Júróvisjón. Ekki í fyrsta skiptið og ekki það síðasta. Svo var það feministinn Kristín Alma sem að horfði á aðalkeppnina. Hlýtur að hafa verið mjög heitt í Aþenu - Allir bara berrassaðir. Bókstaflega á rassinum. Meira að segja gellan sem að fékk allar millurnar til að dressa sig upp ákvað að mæta bara á nærbol og stígvélum. Töff.
Reyndar toppuðu Bretar kvöldið með barnakláminu, aldeilis flott hjá þeim. Júróvísjón sökkaði feitt þetta árið, gjersamlega gleited dæmi - Fyrir utan danska lagið að sjálfsögðu, gå denmark.

Kosningar riðu yfir landið síðustu helgi. Allir sigurvegarar eins og komið hefur fram einu sinni eða tvisvar. Get ekki ákveðið hvort ég eigi að vera Kommatittur eða Sjalli. Sem er mjög spes. Finnst margt af því sem að Vinstri Græn eru að gera mjög frábært og æðislegt. Annað glatað. Eins með Sjálfstæðisflokkinn. Finnst þeir vera með hausinn alltof mikið inní síns eigins rassgati - mættu alveg kíkja út við og við.

Hmm. Massa mikið að gera um helgina er á fullu við að finna mér date til að taka með mér í þrítugsafmæli á laugardag. Hangi á Sólon á kvöldin og á Subway niðrí Faxafeni milli 13-14 alla daga til að finna útúr hvern ég eigi nú að taka með mér, ekki getur maður mætt einn í svona samkvæmi. Það er bara lummó.
(ætti kannski að finna mér betri staði til að hugsa á?)

Mamma á afmæli í dag, 22 ára þessi elska, óska afmæliskonunni til hamingju með það.
Lifðu í lukku en ekki í krukku.

Lifið heil


17.5.06

Illa útleikin eftir Kötlugos




Katla gerði sér lítið fyrir þegar að ég tók hana í fangið á mánudag.
Gaus 30 lítrum af brjóstamjólk yfir mig.

Þetta er mynd af ælinu.

Lítið bloggstuð, fékk hræðilegar fréttir fyrr í dag. Sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur í Sandgerði.

Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum.

Eitt af börnunum sem ég var að passa úti í USA, þegar að ég fór þangað sem aupair er að koma til Íslands með mömmu sinni. Hún verður eins árs á morgun, lítla snúllan. (var alveg ný þegar ég fór út) Hún verður hjá mér um alla helgina, og ég ætla að fara með hana í húsdýragarðinn og við ætlum að gera allskonar skemmtilegt saman, hlakka þvílíkt mikið til, finnst ég eiga svo mikið í henni, og þeim systkinum reyndar líka.
En ef að það er einhver sem á Vagn eða svefnkerru sem að ég get fengið lánaða yfir helgina væri það frábært :)

10.5.06

Ohh, þar fóru grillpartýin

Gat nú verið, loksins þegar að það var kominn svo fínn mórall hérna í úthverfið okkar útaf öllum grillveislunum, sem brennuvargurinn sá fyrir og skipulagði alveg sjálfur. Gleited.
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1200723

Annars var ég að ræða við Brynju Rún vinkonu mína.
Fann út að ég væri ekki tilbúin til að vera full time mom, allavega ekki eins og er, þannig að ég ákvað það að það væri fullkomið fyrir mig að fá mér kærasta sem er barn, nei fyrirgefið Á barn. Pælið í hvað það myndi hennta vel, bara vera með kallinn alla daga og svo barnið aðra hvora helgi (Þ.e. ef að móðirin væri með forræði.) og kannski nokkrum sinnum á virkum dögum. Hanga svo aðeins í Smáralind með grenjandi krakkann og kaupa svo ís, fara í bíó og gera ALLT svona til að maður þurfi nú örugglega ekki að eyða svona "mommy and me time" með barninu.
Fullkomið.
Svo ef þið vitið um einhvern svoleiðis, 82-86 módel þá bara bjallið þið í mig.
(Verður samt að standast gæðastuðla (er það orð?) og þær kröfur sem eru settar.)

Kannski að setja þetta í einkamál? Eða barnaland.is?

9.5.06

Aldrei kaus ég framsókn



Fór á kosningaskrifstofuna til Sóleyjar móðursystur minnar í föðurætt um daginn, í kommúnistapartý. Auðvitað var dælt í mann merkjum sem á stóð "Ég rokka til vinstri" og svona skemmtilegt.

Hún Sóley sagðist ætla að bíða með að taka "ræðuna" á mig þangað til pabbi væri kominn til Aþenu. Eftir þessa ræðu á ég víst að vera orðin græn í gegn. Hún á góða möguleika, þar sem að ég er ekki neitt eins og er. En hver veit hvort að ég fari bara að leggja í fatlaðrastæði og verði exbé.

Það er búið að vera geggjað veður í Reykjavík síðustu daga. Eða svona geggjað á íslenskan mælikvarða. Enda liggur það í augum uppi að þegar að ég á að vera inni að lesa fyrir eitthvað bjévítans próf, þá er rjómablíða úti. Mér reyndar er búið að takast að gera ýmislegt til að njóta veðurblíðunar. Fór í sund og í langan göngutúr í gær, labbaði alveg út um allt breiðholtið - finnst það nú dáldið vel af sér vikið.

Köttur móður minnar í föðurætt* (sem hún skyldi eftir, alveg óvart heima hjá mér) er farin að fara sjálf út núna, uppgötvaði það einn daginn að hún komst útum eldhúsgluggan og inn aftur. Mikil uppgötvun fyrir svona animal. Enda síðan að hún fór út í fyrsta sinn þá er hún búin að príla inn og útum gluggan líkt og enginn sé morgundagurinn. Greyið. Núna þarf ég að hafa áhyggjur af því að kattarkvikindið láti barna sig.

Best að halda áfram að læra, svo að ég eigi smá möguleika á að ná þessu prófi.

*Móðir mín í föðurætt er Þóra, hún er að sjálfsögðu mamma mín, en til að skilgreina hana frá mömmu verður hún að vera móðir mín í föðurætt, þar sem að hún er mamma mín pabbamegin. Og þá er það nokkuð ljóst að móðursystir mín í föðurætt er systir Þóru

7.5.06

Til hamingju kæru landar!

Loksins settum við Íslandsmetið langþráða
Í dag 07.05.06, tróðum við okkur öll saman, á sama tíma ofaní Salalaugina í Kópavogi.
Fámennt en góðmennt.
Samt var ekki hægt að skipta um skoðun í pottinum, til dæmis.

Í nótt var hið árlega grillpartý hérna í Salahverfinu.
Afrakstur næturinnar eru 3 skemmdir bílar.
En þess má til gamans geta að á síðasta ári kveiktum við í heilli blokk til þess að smala nú saman nágrönnunum og halda almennilegt partý.
Án gríns þá er einhver brennuvargur hérna í blokkinni fyrir aftan. Alltaf allt í björtu báli þarna.
En stuð var það, hitti Höbbu nágranna minn og svona ýmislegt, allir með öl að horfa á bílana brenna.
Mæli með þessu, fá sér einn brennuvarg í hverfið og þið munið öll sameinast og verða bestu vinir.

























































5.5.06

X-Sigmarsdóttir


Ég er að hugsa um að kjósa sjálfa mig í kosningunum sem fara munu fram eftir 22 daga.
Bara X-Sigmarsdóttir, eða eitthvað álíka töff.
Reyndar var ég farin að þjást af mjög alvarlegum valkvíða, því ég vissi/veit ekkert hvaða pakk maður á að kjósa. Maður getur ekki einu sinni kosið eftir því hver er sætastur, því að allir svona kallar eru ljótir, allavega ekki minn tebolli. Nema kannski GMB, hann er nú alveg killer dúllurass.
Var líka að hugsa um að fara í heimsókn á kosningaskrifstofurnar og fá mér pulsu (pylsu, whatever) og helíumblöðrur - Sjá svo bara hvaða pulsa,pylsa væri best og kjósa eftir því. Fannst það dáldið sniðug lausn. Var mjög hamingjusöm þegar að ég ákvað að bera þetta undir Guðmund, stóra frænda minn, hann sagði mér að ég væri virkilega mikið Þvaghænsni að halda það að ég ætti að kjósa. Ég var alveg gáttuð á þessu og spurði hann hvað í ósköpunum væri nú að þessari hugmynd. Hann sagði að við sem værum með lögheimili erlendis myndum ekki kjósa.
Damn, þar fór það.
Valkvíðinn færist bara til næsta árs.
Þið hafið þá heilt ár til þess að sannfæra mig um það hvort ég eigi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eins og fólk hefur gert í mínum ættum í hundrað ár, eða þá hvort ég eigi bara gefa skít í famelíuna og gerast kommúnisti.

eins og þið sjáið þá hef ég ekki hundsvit á þessu.

X-Sigmarsdóttir er farin að sofa í hausinn á sér

3.5.06

Ég fíla DillaDilla

Er búin að vera með þetta lag á heilanum alla helgina.
Gerði þau skemmtilegu "Mistök" að fjárfesta í Madagascar fyrir Sölku.
Æðisleg mynd, á ensku.
Glötuð á Íslensku.
Í lagi á sænsku.
Salka er búin að syngja hástöfum alla helgina "Ég fíla DillaDilla"
Man reyndar, þegar að ég sá þessa mynd úti í Ameríku með April, þá var ég með sama stefið "I like to move it, move it" á heilanum í 27 daga á eftir.



ÉG FÍLA DILLA DILLA!!!!!!

30.4.06

Sænskar Skólastelpur og Helgarpabbar

Get ekki sofið, bara alls ekki.
Lögleg afsökun, sem ég hef núna.
Var mjög þreytt eftir erfiðan dag og sofnaði yfir einhverri leiðinlegri mynd á Rúv, þar sem meðal annars var fertugt fólk að leika 18 ára menntaskólakrakka í sleik. Geðslegt. Svo þegar að þau voru ekki í sleik, þá dönsuðu þau ballett eða voru á ballettæfingum, held að þetta hafi verið ballettæfingar, leit samt út eins og kynlífsorgía, dáltið spes bíómynd til að sýna svona klukkan 20.00 á laugarsdagskvöldi. Enda sofnaði ég bara og svaf til 23.00
En núna er klukkan orðin 04.00 og ég get ekki sofið, af hverju? Jú, ég er að fara ótrúlega fínt á morgun, út að borða og allskonar og ég hef enga hugmynd í hverju ég á að fara. Af hverju er svona erfitt að ákveða í hvaða dressi maður á að fara? Ég er ekki búin að hugsa um þetta nema í svona viku og nú, 17 tímum fyrir dinner, hef ég ekki ennþá ákveðið í hvaða nærbuxum ég ætla.
Ætlaði að fara í Kringluna í dag, sem ég og gerði, eða svona má segja það allavega. Kom inn, heyrði ekkert nema sænsku, já, Kringlan troðin af sænskum skólastúlkum, í karrýgulum uppháum kuldaskóm með lopaleystana uppá hné og buxurnar girtar uppí handakrika.
Ég fór rúntinn sem ég tek alltaf í Kringlunni, 17-centrum-gs-Oasis-Retro-all saints og fleiri.
Kem inn, fórna höndum yfir öllum sænsku skólastúlkunum og yfirþyrmandi magninu af helgarpöbbum, hver með minnst 5 organdi krakka. Stappaði í mig stálinu og tróð mér í gegnum þvöguna. Var komin þar sem að Centrum á að vera, ætlaði að labba inn, en greip í tómt - "Hér opnar Kultur fyrir menn!"
Þrátt fyrir mikil vonbrigði sá ég ekki fram á það að geta gert neitt í málinu þannig að ég ákvað að kíkja inní 17. Mikið ofboðslega er sniðugt fyrirkomulagið þarna hjá þeim í NTC, "Ráðum bara fólk í vinnu sem er með greindarvísitölu á við gangstétt" Get svo svarið fyrir það, ég fann mér einn bol þarna, án þess að nokkur af þessum gangstéttarpíum horfði svo mikið sem í áttina til mín.
Svo var ég eitthvað að pæla í hvort hann væri til í öðrum lit, tók mig háltíma að ná sambandi við stelpurnar sem að stóðu allar í hnapp fyrir framan spegilinn og skoðuðu hvor aðra, voru eflaust allar að segja "ohh ég er svo feit" eða "Ohh, ég er svo hvít" (þarf varla að taka fram að þær voru allar vaxnar eins og ljósastaurar, með lappir sem náðu uppað eyrum og appelsínugular eins og Ásgeir Kolbeins í sólsetri)
Jæja, ég náði í skottið á einni þarna og spurði hana hvort hún ætti nokkuð þennan bol í hvítu. Hún leit á mig, svo bolinn og sagði svo þessi feikigáfulegu orð "Ég veit það ekki" svo snéri hún sér aftur að hinum gangstéttarstelpunum.
V-Æ-R-I-R-Ð-U TIL Í AÐ A-T-H-U-G-A?
Jú, haldiði að hún hafi ekki bara farið inná lager og tékkað á þessu fyrir mig, en ég lét mig bara hverfa, þar sem að ég fann að IQ-ið mitt var farið að lækka eftir því sem mínútunum leið þarna í þessari búllu.
Eftir þetta, var ég orðin svo pirruð að ég gat ekki meira af þessu Kringlu ævintýri mínu.
Keypti samt DVD, en fer samt ekki mikið í honum grand út að borða - Þó hann sé skemmtilegur.

Svona í lokin, ef að einhver vill koma til mín á morgun og mála mig, greiða og klæða, þá er það alveg guðvelkomið.
Í alvöru, ég er desperat eftir hjálp.
848-5313 - Plíííís

(P.S. Hef ekkert á móti helgarpöbbum eða Svíum.)

28.4.06

Hver á fallegasta barnið í heiminum?

Ég!
Kannski ekki alveg ein, en samt.
Þetta er Katla, orðin 5 vikna, ótrúlega stór og hlottust. (hlottust=flottust)
Alger töffari, fór með mömmu sinni í myndatöku í vikunni
og var með stílista sem valdi dressið og allt.
Töffaðasta barnið :)


















26.4.06

Kærastar

Geta verið óþolandi.
sérstaklega þegar að þeir eru ekki mans eigins.
Núna til dæmis þurfti ég að skemmta mér sjálf í kvöld því að allir eru að kærastast.
Svosem í lagi, ég eldaði og er búin að taka til og þrífa allt hátt og lágt.
Hefði ekki gerst annars, svo kærastar annara eru kannski ekki svo slæmir eftir allt.
Pabbi kíkti í heimsókn til mín hérna í gær, var búin að gleyma hvernig hann leit út, þannig að þegar að ég kom heim úr vinnunni í gær, þá sat bara einhver maður í sófanum mínum og drakk kaffi. Ég auðvitað hélt bara að þetta væri einhver bófi sem ætlaði að ræna allt - Þegar að hann væri búinn að drekka kaffið mitt og lesa blöðin mín.
En þá var þetta bara öldungurinn minn.
En við horfðum saman á leikinn, leikurinn var svo spennandi að ég sofnaði, vaknaði svo upp í hálfleik og ekkert var búið að gerast, þeir lufsuðust bara þarna um eins og skemmdar mandarínur, en þeim tókst samt að vera svo litlir og sætir.
Í morgun þá kvaddi ég svo SAMSKIP fyrir fullt og allt.
Fór og náði í skattkortið mitt og skilaði flíspeysunni góðu, þessari sem var jafn stór og tveggja manna kúlustjald, þið munið.
Kíkti líka á hvort að það væri ekki allt í lagi með drengina, þeir spjara sig ennþá, en greinilega sakna mín rosa mikið, enda enginn sem er þorir að rífa kjaft við þá lengur, eins og Birna sagði. Ætla nú samt að vera með annan fótinn niðurfrá og fylgjast með þeim, þessum elskum.

Jæja, það er löng helgi framundan, ég ætlaði að læra voða mikið um helgina og vonast til að geta staðið við það - allavega reynt að frumlesa efnið og svona.
Annars er planið að djamma og svo var mér boðið út að borða á Sunnudaginn, voða grand og svo verður eflaust djamm eftir það líka.
En ekki á Sólon, perradyravörður með brennandi áhuga á stjörnumerkjum ungra kvenna er ástæðan fyrir því að ég fer ekki þangað aftur.

Jæja, http://sigmarg.blogspot.com er farinn að blogga um nakta karlmenn, spurning um að vera í stíl og birta mynd af Ljungberg...


Ástæðan fyrir að ég held með Arsenal.

22.4.06

Fuglaflensa my ass!

...Fuglahræðusyndromið er miklu verra.
Ákvað að snooza dáldið oft í morgun, þannig á endanum var bara tími til að annað hvort mála sig eða fara í sturtu, ég valdi að fara í sturtu.
Mætti í vinnuna, með óblásið og ósléttað hár í einhverju afbrigði af hnút, í strigaskóm, gallabuxum og pólóbol, ómáluð og mér leið furðuvel.
Allt gekk eins og í sögu þangað til að það kom hádegismatur. Þá ákvað ég að ég væri ekkert svöng og fékk mér bara kaffi, en ákvað svo að ég væri svöng svo ég ákvað að skjótast inná kaffihús í Smáralind og fá mér örlítið að borða.
Good idea, Kristín Alma, Good idea.
Var búin að gleyma að ég var ekki vel til höfð eins og vanalega.
Þá byrjaði katastroffið.
Síminn hringdi rétt þegar að ég var að koma inn, og ég var í einhverjum æðibunugangi að drekka kaffi, hélt á einhverju dóti og var þvílíkt að rífast í símann og veitti veruleikanum litla athygli þegar að ég er í dyrunum á kaffihúsinu og BANG!
Labbaði í fangið á the cute dude.
Ég dó.
Er ekki búin að sjá hann lengi, en hugsaði nú til hans hérna í gær eða fyrradag.
God damn it hvað ég er stupid að halda að ég kæmist upp með það að fara út eins og fuglahræða.

Honum var samt ekkert svo brugðið, held ég, vona ég - Kvaddi hann svo bara, fyrir fullt og allt

20.4.06

Seltjarnarnes-Garðabær-Kópavogur

Tók þennan rúnt áðan.
Með háaldraðan, dauðhræddann föður minn í framsætinu og litlu börnin, Sindra og Sölku í aftursætinu.
Tók ekki nema 35 mínútur að fara frá Seltjarnarnesi og skötla börnunum heim til sín í Garðabæinn og svo fara heim í Kópavoginn - MORÐ
Komst að því að það er ekki gott að keyra, eða bara gera eitthvað "gáfulegt" yfir höfuð þegar að maður er nýkominn úr mat hjá afa og ömmu. Grill og meððí, Ís og meððí og kaffi og meððí. Get eiginlega ekki pikkað á lyklaborðið fyrir seddu.
Vonast nú til að vera komin með þetta bílpróf 8 maí, vegna þess að þá fer öldungurinn til Aþenu með Silvíu og ég get fengið bílinn - right.
Annars er allt fínt að frétta, fékk reyndar ekki mikil viðbrögð útá þessa kattaauglýsingu, skil það ekki, þetta er eðalgripur.
5 mánaða læða, heitir ekki Ronja og er voðalega blíð og góð. Svakaleg kelirófa og er svona people person, greyið.
Megið koma heim til mín og skoða hana ef þið viljið, bara láta vita áður. (Ég er ekki í skránni, held ég)
Jæja, best að fara að skila myndunum sem ég tók fyrir svona ári síðan, og borga skuld.

Hver vill eiga?




Ekki vera feimin!

19.4.06

Búin að taka út syskursjokk mígrenið sem maður fær alltaf þriðja í páskum.
Viðbjóður.
En ég bara gerðí mér lítið fyrir og svaf í meira en tólf tíma svo ég er sem ný manneskja núna.

Ökuskóli tvö í kvöld.
hringið í 112 ef þið verðið ekki búin að heyra í mér fyrir klukkan hálf tíu, þá hef ég líklega dáið úr leiðindum...

17.4.06

MATUR



Ég eldaði áðan.
Eitthvað sem ég hélt að ég kynni alls ekki og gæti ekki.
En, ég reyndist nú hafa einhverja dulda hæfileika og mallaði eitthvað úr því sem ég fann í ísskápnum.
Þetta var svo gott að þið trúið því ekki.






Vil líka þakka Helgu fyrir frábæra nótt, þar sem að við hétum Kristín T og Eva Dögg.
Gaman að heita eitthvað "annað".
Ljótir karlmenn og fullar stelpur í sleik var það helsta sem varð á vegi okkar, en við litum bara framhjá þessu og dönsuðum fram á rauðan morgun.

13.4.06

Ég hef aldrei verið náttúrubarn.
Ég er svona antífjallageit og hef alltaf verið.
Alveg sama um hvað þetta fjall heitir og hvernig það varð til, ekki ætla ég uppá það.
Alveg sama hvort að Raufarhöfn sé á suðurlandi eða norðausturlandi, það er skítakuldi þar.
Hef semsagt aldrei haft neinn áhuga á náttúru, þó að maður lufsist nú í útilegur við og við, enda er það bara sjarmerandi og gaman, en mér er nokk sama hvort ég liggi á tjaldsvæðinu á Selfossi eða í Ásbyrgi, allt eins-sama tjaldið.
Ég er heldur ekki mikið fyrir að fara útí sveit.
Leiðinlegt, vond lykt og kalt.
Svipað og í Breiðholti.
Fer heldur ekki þangað.
Eftir að ég flutti erlendis hef ég lesið um Íslenska náttúru í erlendum tímaritum og útlendingar hafa sagt mér frá ýmsu um náttúruna okkar.
Stundum skammast ég mín ögn, þegar að ég veit ekki hvar Hvannadalshnjúkur er og hef ekki komið þangað. Svo verður mér alveg skítsama. Svo fæ ég gríðarlegt samviskubit yfir því að vera svona skítsama, barnið mitt á líklega aldrei eftir að koma annað heldur en Reykjavík-Garðabær, og það bara á páskum og jólum. Því ég efast nú um að ég muni nenna að búa á íslandi með barn-bara koma heim í fríum. Barnið mitt verður útlenskt.
Mun ekki vita neitt um uppruna sinn.
En það getur samt lesið blogg afa síns, sem nýtur töluverðra vinsælda samkvæmt séð og heyrt.
(Og ekki finnst honum það leiðnlegt.)

10.4.06

Myndarleg

Já gott fólk ég er búin að fjárfesta í þessari líka rosalegu snilldar græju.
Myndavél.
Síðan að ég fékk vélina í hendurnar í gær er ég búin að vera myndaóð.
Búin að taka myndir af nánustu ættingjum og vinum, örfáar af kettinum, 600 af kötlu og nokkrar af íþróttasíðu morgunblaðsins, lyklaborðinu á tölvunni, Bíl sem að keyrði framhjá húsinu hennar ömmu í gær og síðast en ekki síst morgunkorninu sem að Salka át í morgun.
Samtals eru þetta um milljón og tvær myndir.
Reyndar hefur aðal myndaefnið verið ég sjálf, sem er einstaklega sorglegt, þar sem að ég er með afbrigðum ekki snoppufríð og ómyndvæn manneskja.

















































6.4.06

TIL HAMNINGJU MEÐ AFMÆLIÐ PABBI MINN!!!


Hafðu það sem best.


xxx


p.s. Hvað gefur maður 37 ára unglingi í afmælisgjöf?

4.4.06

Skynsami froskurinn

Bauð mér í mat áðan.
Heima hjá Kötlu og Þóru.
En það var reyndar Kristín (Hekla) sem að fór í döfulls búðina og kaupaði sósulit og aðra basic hluti sem að maður þarf til að búa til pottrétt með piparosti og hrísgrjón.
Hún stóð sig eins og hetja í eldhúsinu, en hefði nú ekki náð svona langt ef að ég og Garður hefðum ekki verið henni til halds og trausts.
En okkar hlutverk var að sitja við eldhúsborðið og skera niður grænmeti.
Garður skar 5 sveppi og ég heila papriku, hálfa A-gúrku OG piparost.
Við bættum líka Íslandsmet í grænmetisskurði, innanhúss án atrenu.
Ekki slæmt.
En svona í alvöru þá langaði mig bara að þakka Kristínu (Heklu) fyrir matinn, og reyndar Þóru líka.

Um helgina var sólin komin grunsamlega hátt á loft og ég farin að hnerra - sem er vorboði.
Í morgun vaknaði ég og það var allt á kafi í snjó, hérna uppá heiðinni sem að ég bý á.
Leiðinlegt að búa svona uppá heiði.

Jébb.
Þessi vika verður líklega mjög erfið.
Þarf að keypa afmælisgjöf fyrir farmand.
Veit EKKERT hvað ég á að kaupa fyrir hann, blessaðann.
Kannski að ég bjóði honum bara í ísbíltúr?
Eða kaupi bensín á bílinn?

By the way.
Hvað þarf maður að vera gamall til að ráða sjálfur hvað er í bílnum þegar að maður er að keyra?
Hingað til þá hef ég ekki mátt ráða því sjálf hvað ég hlusta á.
Er það ekki bílstjórinn sem að ræður?
Er ég kannski bara óþarflega lin við manninn í framsætinu?
Well, kannski á hann það skilið að velja tónlist, þar sem að ég keyri eins og asni.

Eða hvað?