30.4.06

Sænskar Skólastelpur og Helgarpabbar

Get ekki sofið, bara alls ekki.
Lögleg afsökun, sem ég hef núna.
Var mjög þreytt eftir erfiðan dag og sofnaði yfir einhverri leiðinlegri mynd á Rúv, þar sem meðal annars var fertugt fólk að leika 18 ára menntaskólakrakka í sleik. Geðslegt. Svo þegar að þau voru ekki í sleik, þá dönsuðu þau ballett eða voru á ballettæfingum, held að þetta hafi verið ballettæfingar, leit samt út eins og kynlífsorgía, dáltið spes bíómynd til að sýna svona klukkan 20.00 á laugarsdagskvöldi. Enda sofnaði ég bara og svaf til 23.00
En núna er klukkan orðin 04.00 og ég get ekki sofið, af hverju? Jú, ég er að fara ótrúlega fínt á morgun, út að borða og allskonar og ég hef enga hugmynd í hverju ég á að fara. Af hverju er svona erfitt að ákveða í hvaða dressi maður á að fara? Ég er ekki búin að hugsa um þetta nema í svona viku og nú, 17 tímum fyrir dinner, hef ég ekki ennþá ákveðið í hvaða nærbuxum ég ætla.
Ætlaði að fara í Kringluna í dag, sem ég og gerði, eða svona má segja það allavega. Kom inn, heyrði ekkert nema sænsku, já, Kringlan troðin af sænskum skólastúlkum, í karrýgulum uppháum kuldaskóm með lopaleystana uppá hné og buxurnar girtar uppí handakrika.
Ég fór rúntinn sem ég tek alltaf í Kringlunni, 17-centrum-gs-Oasis-Retro-all saints og fleiri.
Kem inn, fórna höndum yfir öllum sænsku skólastúlkunum og yfirþyrmandi magninu af helgarpöbbum, hver með minnst 5 organdi krakka. Stappaði í mig stálinu og tróð mér í gegnum þvöguna. Var komin þar sem að Centrum á að vera, ætlaði að labba inn, en greip í tómt - "Hér opnar Kultur fyrir menn!"
Þrátt fyrir mikil vonbrigði sá ég ekki fram á það að geta gert neitt í málinu þannig að ég ákvað að kíkja inní 17. Mikið ofboðslega er sniðugt fyrirkomulagið þarna hjá þeim í NTC, "Ráðum bara fólk í vinnu sem er með greindarvísitölu á við gangstétt" Get svo svarið fyrir það, ég fann mér einn bol þarna, án þess að nokkur af þessum gangstéttarpíum horfði svo mikið sem í áttina til mín.
Svo var ég eitthvað að pæla í hvort hann væri til í öðrum lit, tók mig háltíma að ná sambandi við stelpurnar sem að stóðu allar í hnapp fyrir framan spegilinn og skoðuðu hvor aðra, voru eflaust allar að segja "ohh ég er svo feit" eða "Ohh, ég er svo hvít" (þarf varla að taka fram að þær voru allar vaxnar eins og ljósastaurar, með lappir sem náðu uppað eyrum og appelsínugular eins og Ásgeir Kolbeins í sólsetri)
Jæja, ég náði í skottið á einni þarna og spurði hana hvort hún ætti nokkuð þennan bol í hvítu. Hún leit á mig, svo bolinn og sagði svo þessi feikigáfulegu orð "Ég veit það ekki" svo snéri hún sér aftur að hinum gangstéttarstelpunum.
V-Æ-R-I-R-Ð-U TIL Í AÐ A-T-H-U-G-A?
Jú, haldiði að hún hafi ekki bara farið inná lager og tékkað á þessu fyrir mig, en ég lét mig bara hverfa, þar sem að ég fann að IQ-ið mitt var farið að lækka eftir því sem mínútunum leið þarna í þessari búllu.
Eftir þetta, var ég orðin svo pirruð að ég gat ekki meira af þessu Kringlu ævintýri mínu.
Keypti samt DVD, en fer samt ekki mikið í honum grand út að borða - Þó hann sé skemmtilegur.

Svona í lokin, ef að einhver vill koma til mín á morgun og mála mig, greiða og klæða, þá er það alveg guðvelkomið.
Í alvöru, ég er desperat eftir hjálp.
848-5313 - Plíííís

(P.S. Hef ekkert á móti helgarpöbbum eða Svíum.)

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ja Kristin min...ef thu ert ekki bloggari af guds nad tha veit eg ekki hvad!!!!
(jakobina)

Nafnlaus sagði...

hahaaa..sammála, að lesa bloggin þín er eitt það skemmtilegasta sem ég geri..;)

- Your beloved Smurf..;p

Nafnlaus sagði...

Sæl Kristín Alma mín og takk fyrir síðast!

Það var gaman að fara með þig í fjölskylduboðið sem ömmustelpuna okkar. Tommi hefði átt að bera þig inn eins og hann gerir oft við hin barnabörnin sín. Ég tilheyri einhverri hefðbundnustu fjölskyldu á Íslandi og útskýrði fyrir foreldrum mínum rulluna sem þú fórst með fyrir okkur um systkinatengsl þín. Þau náðu ekki helmingnum en mér fannst það tilbreytni að geta loksins haft frá einhverju að segja. Finnst ég bara vera að sigla inn í nútímann. Spurning hvort ég fer ekki með Sindra næst? Hef reyndar ekki hitt hann ennþá. Gæti átt það til að tína honum í strákastóðinu þar sem ég er ekki sérlega mannglögg.

Ef þú vilt get ég komið og klætt þig, málað og greitt. Segðu bara til.

Góða skemmtun.
Guðrún

Sprettur sagði...

Bara að kvitta fyrir mig, kíki við daglega.

Nafnlaus sagði...

Ansi skemmtilegur pistill og mjög mikið til í þessu með afgreiðslu fólk í dag og ekki bara þarna heldur útum allt. Hlakka til að lesa um hvernig þetta endaði svo allt saman;)

Kristín Alma sagði...

Komment 1 og 2: Takktakk :)

Amma: já þetta er flókið. Ég ætla svo að koma bráðum og fara með ykkur afa í pottinn.

Hekla: Mín fjölskylda er einmitt svona þjóðleg. En þetta þýðir bara fleiri jóla og afmælisgjafir ;)

Sprettur: Velkomin/n - átti einu sinni dverghamstur sem hét Sprettur, Hann strauk :(

Diddi: Einmitt, þetta er alls ekki neitt bundið spes við þessa keðju sérstaklega, fannst þetta bara gott dæmi.
En þetta endaði með því að ég var í nýjum, rándýrum hælaskóm í miðbæ reykjavíkur...need I say more? ;)

Nafnlaus sagði...

*Hmmmmmm, mér finnst þú nú vera farin að fara skuggalega oft í Kringluna og Smáralindina.

Kristín Alma sagði...

Fer oft.
2 mín í senn.