Tók þennan rúnt áðan.
Með háaldraðan, dauðhræddann föður minn í framsætinu og litlu börnin, Sindra og Sölku í aftursætinu.
Tók ekki nema 35 mínútur að fara frá Seltjarnarnesi og skötla börnunum heim til sín í Garðabæinn og svo fara heim í Kópavoginn - MORÐ
Komst að því að það er ekki gott að keyra, eða bara gera eitthvað "gáfulegt" yfir höfuð þegar að maður er nýkominn úr mat hjá afa og ömmu. Grill og meððí, Ís og meððí og kaffi og meððí. Get eiginlega ekki pikkað á lyklaborðið fyrir seddu.
Vonast nú til að vera komin með þetta bílpróf 8 maí, vegna þess að þá fer öldungurinn til Aþenu með Silvíu og ég get fengið bílinn - right.
Annars er allt fínt að frétta, fékk reyndar ekki mikil viðbrögð útá þessa kattaauglýsingu, skil það ekki, þetta er eðalgripur.
5 mánaða læða, heitir ekki Ronja og er voðalega blíð og góð. Svakaleg kelirófa og er svona people person, greyið.
Megið koma heim til mín og skoða hana ef þið viljið, bara láta vita áður. (Ég er ekki í skránni, held ég)
Jæja, best að fara að skila myndunum sem ég tók fyrir svona ári síðan, og borga skuld.
2 ummæli:
Æj...ég myndi taka kisuna ef að ég ætti ekki svona Fróða og byggi aðeins nær. (skrifað með hæðni)
Á ekkert að blogga kelling...:)
kveðja..
konan sem hleypur ein..
Skrifa ummæli