10.4.06

Myndarleg

Já gott fólk ég er búin að fjárfesta í þessari líka rosalegu snilldar græju.
Myndavél.
Síðan að ég fékk vélina í hendurnar í gær er ég búin að vera myndaóð.
Búin að taka myndir af nánustu ættingjum og vinum, örfáar af kettinum, 600 af kötlu og nokkrar af íþróttasíðu morgunblaðsins, lyklaborðinu á tölvunni, Bíl sem að keyrði framhjá húsinu hennar ömmu í gær og síðast en ekki síst morgunkorninu sem að Salka át í morgun.
Samtals eru þetta um milljón og tvær myndir.
Reyndar hefur aðal myndaefnið verið ég sjálf, sem er einstaklega sorglegt, þar sem að ég er með afbrigðum ekki snoppufríð og ómyndvæn manneskja.

















































5 ummæli:

Heklurnar sagði...

Koddu þá með myndir af Kötlu!! Til hamingju með nýju vélina. Hvenær er mér svo boðið í mat? Krissa Hryssa

Nafnlaus sagði...

Bara allt ferlega töff myndir! :)

Nafnlaus sagði...

Mér þykir þú nú vera með eindæmum snoppufríð...

kv. leynilegur aðdáandi

Nafnlaus sagði...

ohh þú sem ert svo sæt og fín:)

en að mínu mati eru þetta mjög góðar myndir! ættir að leggja þetta fyrir þig myndi ég nú segja :)

Nafnlaus sagði...

Flottur bolli!!!