26.4.06

Kærastar

Geta verið óþolandi.
sérstaklega þegar að þeir eru ekki mans eigins.
Núna til dæmis þurfti ég að skemmta mér sjálf í kvöld því að allir eru að kærastast.
Svosem í lagi, ég eldaði og er búin að taka til og þrífa allt hátt og lágt.
Hefði ekki gerst annars, svo kærastar annara eru kannski ekki svo slæmir eftir allt.
Pabbi kíkti í heimsókn til mín hérna í gær, var búin að gleyma hvernig hann leit út, þannig að þegar að ég kom heim úr vinnunni í gær, þá sat bara einhver maður í sófanum mínum og drakk kaffi. Ég auðvitað hélt bara að þetta væri einhver bófi sem ætlaði að ræna allt - Þegar að hann væri búinn að drekka kaffið mitt og lesa blöðin mín.
En þá var þetta bara öldungurinn minn.
En við horfðum saman á leikinn, leikurinn var svo spennandi að ég sofnaði, vaknaði svo upp í hálfleik og ekkert var búið að gerast, þeir lufsuðust bara þarna um eins og skemmdar mandarínur, en þeim tókst samt að vera svo litlir og sætir.
Í morgun þá kvaddi ég svo SAMSKIP fyrir fullt og allt.
Fór og náði í skattkortið mitt og skilaði flíspeysunni góðu, þessari sem var jafn stór og tveggja manna kúlustjald, þið munið.
Kíkti líka á hvort að það væri ekki allt í lagi með drengina, þeir spjara sig ennþá, en greinilega sakna mín rosa mikið, enda enginn sem er þorir að rífa kjaft við þá lengur, eins og Birna sagði. Ætla nú samt að vera með annan fótinn niðurfrá og fylgjast með þeim, þessum elskum.

Jæja, það er löng helgi framundan, ég ætlaði að læra voða mikið um helgina og vonast til að geta staðið við það - allavega reynt að frumlesa efnið og svona.
Annars er planið að djamma og svo var mér boðið út að borða á Sunnudaginn, voða grand og svo verður eflaust djamm eftir það líka.
En ekki á Sólon, perradyravörður með brennandi áhuga á stjörnumerkjum ungra kvenna er ástæðan fyrir því að ég fer ekki þangað aftur.

Jæja, http://sigmarg.blogspot.com er farinn að blogga um nakta karlmenn, spurning um að vera í stíl og birta mynd af Ljungberg...


Ástæðan fyrir að ég held með Arsenal.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegt blogg hjá þér og mjög gaman að lesa það, ætla bara að borga fyrir mig og kvitta fyrir kíkinu, bæti þessu örugglega á "bloggrúntinn" minn:)

Kv, Diddi

Garðar Stefánsson sagði...

Róleg að herma eftir minni síðu...DJÓK

Góð skilríkjasagan, lenti sjálfur í graðhestadyravörðum sem spurðu mig um stjörnumerki og fullt nafn...svo það má segja að ég þekki þetta.

Nafnlaus sagði...

ógðslegi dyravörður.. við förum ekki þangað aftur! fékkstu skilríkið ? já kærastar eru leiðinlegir.. þegar maður á þá ekki sjálfur:(

Heklurnar sagði...

Þegar maður á kærasta- þá fyrst eru þeir leiðinlegir! Minn getur allavegna stundum verið það...

Annars var ég með Kötlu okkar í ljósmyndun í morgun. Hún sló öll met, Katla Killer lét taka myndir af sér!

Hrossið

Kristín Alma sagði...

Hekla: Já, mér finnst ég vera einstaklega skynsöm. Enda nenni ég ekki að hitta þessar hjálegur vinkvennana.

Diddi: Gaman að sjá þig hér ;)

Garður: Gaman að sjá þig hér líka. Já, þín síða var bara svo töff að ég varð að stela lúkkinu, right.

Helga: Hnuss, nei hann var ógeð, fyrir utan það að hann tók skilríkin.
Berjum hann næst þegar að við sjáum hann.

Kross: Hún er fallegust í heimigeimi :)