22.4.06

Fuglaflensa my ass!

...Fuglahræðusyndromið er miklu verra.
Ákvað að snooza dáldið oft í morgun, þannig á endanum var bara tími til að annað hvort mála sig eða fara í sturtu, ég valdi að fara í sturtu.
Mætti í vinnuna, með óblásið og ósléttað hár í einhverju afbrigði af hnút, í strigaskóm, gallabuxum og pólóbol, ómáluð og mér leið furðuvel.
Allt gekk eins og í sögu þangað til að það kom hádegismatur. Þá ákvað ég að ég væri ekkert svöng og fékk mér bara kaffi, en ákvað svo að ég væri svöng svo ég ákvað að skjótast inná kaffihús í Smáralind og fá mér örlítið að borða.
Good idea, Kristín Alma, Good idea.
Var búin að gleyma að ég var ekki vel til höfð eins og vanalega.
Þá byrjaði katastroffið.
Síminn hringdi rétt þegar að ég var að koma inn, og ég var í einhverjum æðibunugangi að drekka kaffi, hélt á einhverju dóti og var þvílíkt að rífast í símann og veitti veruleikanum litla athygli þegar að ég er í dyrunum á kaffihúsinu og BANG!
Labbaði í fangið á the cute dude.
Ég dó.
Er ekki búin að sjá hann lengi, en hugsaði nú til hans hérna í gær eða fyrradag.
God damn it hvað ég er stupid að halda að ég kæmist upp með það að fara út eins og fuglahræða.

Honum var samt ekkert svo brugðið, held ég, vona ég - Kvaddi hann svo bara, fyrir fullt og allt

3 ummæli:

Gubjug sagði...

Þetta er bara náttúrulögmál - ef maður hættir sér út úr húsi í "myglugallanum" þá dregur maður að sér allt það fólk sem má ekki sjá mann þannig!

Heklurnar sagði...

Þetta er óþolandi og þetta er óþolandi týpískt. En ertu viss um að þú hafir litið það illa út? Ég hef stundum lent í þessu og einu sinni þá féll strákurinn alveg flatur fyrir mér þrátt fyrir að ég hefi verið fáránleg til fara. Það er kosturinn við að hitta draumaprinsinn þegar maður er myglaður, ef hann fellur fyrir manni.Ímyndaðu þér ef "the cute dude" (Kristín Alma Sigmarsdóttir, 2006) hefur samband við þig í dag þá er þetta svo agalega þægilegt. Getur bara verið ómáluð og óslétt um hárið , því honum er væntanlega skít sama. Svo er líka bara fínt að vera ánægður með sig eins og maður er, þeir falla víst fyrir því líka...

Farðu svo að bjóða mér í mat!

Nafnlaus sagði...

Láttu mig þekkja það!!!