4.4.06

Skynsami froskurinn

Bauð mér í mat áðan.
Heima hjá Kötlu og Þóru.
En það var reyndar Kristín (Hekla) sem að fór í döfulls búðina og kaupaði sósulit og aðra basic hluti sem að maður þarf til að búa til pottrétt með piparosti og hrísgrjón.
Hún stóð sig eins og hetja í eldhúsinu, en hefði nú ekki náð svona langt ef að ég og Garður hefðum ekki verið henni til halds og trausts.
En okkar hlutverk var að sitja við eldhúsborðið og skera niður grænmeti.
Garður skar 5 sveppi og ég heila papriku, hálfa A-gúrku OG piparost.
Við bættum líka Íslandsmet í grænmetisskurði, innanhúss án atrenu.
Ekki slæmt.
En svona í alvöru þá langaði mig bara að þakka Kristínu (Heklu) fyrir matinn, og reyndar Þóru líka.

Um helgina var sólin komin grunsamlega hátt á loft og ég farin að hnerra - sem er vorboði.
Í morgun vaknaði ég og það var allt á kafi í snjó, hérna uppá heiðinni sem að ég bý á.
Leiðinlegt að búa svona uppá heiði.

Jébb.
Þessi vika verður líklega mjög erfið.
Þarf að keypa afmælisgjöf fyrir farmand.
Veit EKKERT hvað ég á að kaupa fyrir hann, blessaðann.
Kannski að ég bjóði honum bara í ísbíltúr?
Eða kaupi bensín á bílinn?

By the way.
Hvað þarf maður að vera gamall til að ráða sjálfur hvað er í bílnum þegar að maður er að keyra?
Hingað til þá hef ég ekki mátt ráða því sjálf hvað ég hlusta á.
Er það ekki bílstjórinn sem að ræður?
Er ég kannski bara óþarflega lin við manninn í framsætinu?
Well, kannski á hann það skilið að velja tónlist, þar sem að ég keyri eins og asni.

Eða hvað?

4 ummæli:

Heklurnar sagði...

þessi upptalning þín lítur út fyrir að þú hafir í alvöru verið á fullu við eldamennskuna! Verði þér annars að góðu og þú hringir bara í 8464099 þegar þú ætlar að endurgreiða matarboðið. Kristín Kötlufrænka

Kristín Alma sagði...

Já.
Þú segir nokkuð.
Ég ætla að æfa mig í kvöld, ætla að elda Cheerios.
Ef að það tekst vel, þá gæti ég hugsanlega boðið ykkur Garði í Kókópöffs í næstu viku.
Hvernig lýst þér að það?

Nafnlaus sagði...

Humm....ég sé að það eru stórkostlegar framfarir í eldamennskunni hjá þér..

Nafnlaus sagði...

Er ég bara svona heimsk eða er þetta blogg sem ég á ekki að skilja..einhvað svona Reykjavíkur-mál svona..?

Stórfurðulegur strumpur sem þú ert Kristín mín..;*

-KarenHelga