13.4.06

Ég hef aldrei verið náttúrubarn.
Ég er svona antífjallageit og hef alltaf verið.
Alveg sama um hvað þetta fjall heitir og hvernig það varð til, ekki ætla ég uppá það.
Alveg sama hvort að Raufarhöfn sé á suðurlandi eða norðausturlandi, það er skítakuldi þar.
Hef semsagt aldrei haft neinn áhuga á náttúru, þó að maður lufsist nú í útilegur við og við, enda er það bara sjarmerandi og gaman, en mér er nokk sama hvort ég liggi á tjaldsvæðinu á Selfossi eða í Ásbyrgi, allt eins-sama tjaldið.
Ég er heldur ekki mikið fyrir að fara útí sveit.
Leiðinlegt, vond lykt og kalt.
Svipað og í Breiðholti.
Fer heldur ekki þangað.
Eftir að ég flutti erlendis hef ég lesið um Íslenska náttúru í erlendum tímaritum og útlendingar hafa sagt mér frá ýmsu um náttúruna okkar.
Stundum skammast ég mín ögn, þegar að ég veit ekki hvar Hvannadalshnjúkur er og hef ekki komið þangað. Svo verður mér alveg skítsama. Svo fæ ég gríðarlegt samviskubit yfir því að vera svona skítsama, barnið mitt á líklega aldrei eftir að koma annað heldur en Reykjavík-Garðabær, og það bara á páskum og jólum. Því ég efast nú um að ég muni nenna að búa á íslandi með barn-bara koma heim í fríum. Barnið mitt verður útlenskt.
Mun ekki vita neitt um uppruna sinn.
En það getur samt lesið blogg afa síns, sem nýtur töluverðra vinsælda samkvæmt séð og heyrt.
(Og ekki finnst honum það leiðnlegt.)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En hvað um Sandgerði?

Það hlýtur að vera staður helvítis fyrir þig, ekki nálægt Reykjavík og allir krakkarnir í einhverju gengi eins og u segir..hehhh =D

Nafnlaus sagði...

en hvað með Hóla! ekki tala ílla um Hóla mína:D haha

þú ert ekki að fara að flytja aftur út!

Nafnlaus sagði...

Elsku barn....þú gætir ekki mögulega verið náttúrufrík. Þú þekkir foreldra þína er það ekki??

Nafnlaus sagði...

gleðilega páska

Anna Kristjánsdóttir sagði...

Af hverju Garðahreppur, þessi útnárahreppur sem aldrei verður annað en svefnpláss fyrir byggðirnar í kring?