9.10.06

Kominn tími á tuð.

Það var reið ung kona sem að mætti á æfingu í kvöld. Búin að vera rosalega vængbrotin,litil og móðursjúk eftir atburði og drama síðustu helgar, en allt í einu breyttist þetta bara í þvílíka reiði. Fór í einhvern ham þarna í "bútkampinu" mínu. Einhver auka orka sem að leystist úr læðingi og ég breyttist í villidýr þarna um tíma. Mjög gott, var líka búin á því eftir það, þar sem að það var eitthvað lítið innbyrgt af mat síðustu daga.
En allt komið í lag núna, eftir þessa æfingu. Læknaði líkama og sál.

Nú, ég og Lára skelltum okkur í bíó eftir æfingu. Ég meikaði ekki meira Uma Thurman/Meril Streep viðbjóð aftur, þannig að við skelltum okkur á World Trade Center myndina. Já, betur sleppt því. Hélt að ég væri aldeilis að fara að sjá góða ræmu, því þetta fjallar nú einu sinni um mjög merkilegann atburð. Nei, Amerískt tilfinningaklám gjörsamlega útí gegn. Tveir tímar af einhverju goddem "Tell Donna I love her" krappi. Bjóst við að ég myndi gráta voða mikið, því síðustu vikur er ég búin að grenja yfir ÖLLU sem ég sé í sjónvarpi. (Fór meira að segja að gráta yfir Go'aften Danmark hérna um daginn því að það var verið að sýna albinóabroddgölt) Ég grét á einum stað í þessari mynd. Það var í lokinn þegar að það var spítalasena. Mér fannst svo sorglegt hvað allar hjúkkurnar í Ameríku þurfa að vera í ógeðslega ljótum fötum.

Gangið hægt í gegnum gleðinnar dyr, börnin mín
- Bergmann er farin að sofa.

4 ummæli:

Ragga Rokkar sagði...

Hva voðalega er mar touchy :)
Ætla mér ekki að sjá World Trade, enginn sem hefur séð hana mælir með henni. Amerískt væl á ekki upp á pallborðið hjá ekta íslenskum víkingum !!

Kristín Alma sagði...

HAHAHA!
Ja, thessi færsla var eitthvad veird... :)

Nafnlaus sagði...

HAHAHAHA af tvi ad hjukkurnar voru i svo ljotum føtum! Thu ert snidug;)

Kaffi a bodstolnum;)

Nafnlaus sagði...

Heheheh þvílíkur pistill, þú ert snillingur! Gaman að lesa þetta hahahaha......

P.s. Ég er alltaf með harðsperrur alla vikuna eftir þetta bootcamp en það eru aðeins 4 tímar eftir hjá mér ;)