2ja ára þessi litli orkubolti og gleðigjafi.
Í dag tók hann á móti gestum að heimili sínu, Skovglimt 38 í Danmörku. Eftir mikil ræðuhöld og skemmtilegheit þá voru opnaðar gjafir. Fróði fékk meðal annars; hundakex, þurrkaðar pylsur, derhúfu og hávært dót sem að vakti mikla kátínu hjá afmælishundinum, en kannski aðeins minni hjá heimilisfólki. Dótið verður fjarlægt við fyrsta tækifæri.
AfmælisHundurinn fékk svo uppáhalds matinn sinn í kvöldmat. Íslenskt slátur og harðfisk. Meðan við hin fengum grjónagraut (og ekkert slátur).
Fróði er mjög hrifinn af íslenskum mat og sælgæti. Þar ber að nefna: Bingokúlur, djúpur, skyr, nóakropp og Serjós (Þó það sé Amerískt, það fæst ekki í danmörku, þannig að það kemur alltaf með í sendingum frá ömmu og afa).
Hann er samt sjálfur alveg rammdanskur.
Læt fylgja með nokkrar myndir frá hinum ýmsu atburðum í lífi Fróða.
-Fróði kemur í hús
-Fróði lítill og sætur
-Fróði tók ástfóstri við tuskubangsa sem hét Fífí. Varð mjög leiður þegar að hann tók aðeins of harkalega á henni.
- Fróði elskar 100 fermetra trampolínið sem að við eigum. Eyðir ófáum stundunum þar. Enda ætlar hann ad verda sirkushundur thegar hann verdur stor.



6 ummæli:
Ohh, sýnist þetta vera eitthvað fokkað.
Laga klukkan 7 þegar að ég fer í skólann.
Til hamingju með afmælið Fróði minn! Mikið lifandi ósköp er hægt að vera sætur.Kveðjur
Amma Stína
Til hamingju með afmælið Fróði en Kristín veistu ekki að hunda mega ekki borða súkkulaði :)
Það er aldeilis dekrað við þetta dýr hehe.
Jú, veit það sko mætavel.
Hann vill greinilega ekki sætta sig við það og hefur nokkrum sinnum klifrað uppá borð til að ná í bingókúlur og Nóakropp ;)
Lovjú sæta!!!:*
Hey Unglingaveikin er að gera sig!!! Æm in lof!!!
Kv. Kittý KLIKK..
p.s. til hamingju með Fróða:D
Unglingaveikin er best!
Skrifa ummæli