10.10.06

Ég held að ég ætti að fá nóbelsverðlaun fyrir leti.
Eða allavega fyrir það að nenna ekki neinu. Nenna ekki að læra, nenna ekki að fara út að hlaupa, nenna ekki að taka til, nenna ekki að elda mat. En gera þetta svo alveg tussu vel þegar að ég æði í verkið. (Oftast, allavega stundum)
Eldaði fyrir systikni mín á sunnudagskvöldið. Voða flókinn námsmannamat. Kjúklingaréttur með allskonar. Skammaðist mín smá þegar að systir mín (12 ára) sagði við móðurina að "Kristín væri nú ekkert svona ósjálfbjarga eins og þau hefðu haldið".
(Þess má geta að börnin átu eins og enginn væri morgundagurinn, meira að segja litla skrímslið.)

Ég þarf að eignast Sjálfshjálparbækur og Jamie Oliver.

Engin ummæli: