
Hljóp 3,5 kílómetra áðan.
Sá hvítar doppur þegar að ég kom inn.
Þegar að ég náði svo loksins andanum þá varð ég voða montin.
Ætla að skella mér í pottinn, því að það er mjög mikilvægt fyrir svona langhlaupara eins og mig að hvíla sig vel eftir hvert og eitt hlaup.
Ömmu fannst mikilvægara að ég fengi mér nú eitthvað hollt þegar að ég væri búin að hlaupa þessi ósköp og pressaði ávaxtasafa fyrir mig.
Kv, Froggie afreksíþróttakona
3 ummæli:
ótrúlega dugleg að hlaupa, því útihlaup eru margfalt erfiðari en "innihlaup" á brettum :)
Þú ert snillingur! -Nú er bara að semja við pabba gamla um að kaupa handa þér spandexgalla. Því það gera allir góðir pabbar!
Ohh rosalega attu goda ømmu!!! Lucky you;)
Skrifa ummæli