6.6.06

Froskurinn.is virðist bara ekki geta rifið sig uppúr blogglægðinni, ætti kannski að ræða við Sigga Storm um það hvernig spáin verður næstu daga.
Partý stand er líklega það sem einna helst hefur einkennt síðustu daga.
Þrítugsafmælið hjá Gumma var auðvitað ekki af verri endanum og ekki neitt venjulegt partý þar á ferð skal ég segja ykkur. Mætti klukkan 5 í mínu fínasta pússi, með gloss og allt. Þá var matur sem undirbúinn var af meistarakokkum, auðvitað. Gott vín og engar djöfuls knorr sósur skal ég segja ykkur. Svo klukkan 20.00 var svo partýið, þjónustufólkið merkt, huge banner á húsinu, golfkúlur fyrir alla, merkt, hljómsveit, flæðandi áfengi, bjór í fiskikörum, sem voru full af ís og ég veit ekki hvað og hvað. Mjög gaman og ég vil nota tækifærið hérna til að þakka kærlega fyrir mig!
Sunnudaginn var svo BS djamm, og það ekki af verri endanum. Byrjað á að borða saman á Ítalíu, mjög góður matur og fín þjónusta. Svo var farið heim til Elfu, setið og spjallað fram yfir miðnætti. Þá tíuðum við okkur í bæinn, fórum á Sólon, Hressó og Pravda. Enduðum með einhverjum ameríkönum í einhverju "vip" herbergi á pravda. Get svarið fyrir það, ALDREI ALDREI AFTUR (á pravda)! Var lokuð inní rými með 1000 aflituðum, appelsínugulum karlmönnum, 50 gellum sem voru með svo mikið sílicon í hinum ýmsu líkamspörtum að það kæmi mér virkilega ekki á óvart ef einhverjar þeirra væru í heimsmetabók ginnes - Svossem kannski gott að fylla uppí það sem hægt að er fylla uppí til að tómarúmið í hausnum verði ekki jafn áberandi. En hvað veit ég, bráðgáfaður kvennmaður með ekta brjóst, glötuð pía? (lennti sko í atviki inná Pravda, þar sem tvær svona píur komu við sögu, svo vitlausar!)
En í heildina var nú ótrúlega skemmtilegt þetta kvöld, mjög vel heppnað. Takk fyrir síðast skvísur.
Í gær átti (lang)Amma Ragga svo níræðisafmæli, að því tilefni var liðinu smalað saman í flottan dinner á skólabrú. Þarna vorum við samankomin, börnin hennar, barnabörn og svo við Skúli, tvö elstu langömmubörnin. Svaka gaman, voða flottur matur, vín, flott fólk og ræður. Amma Ragga er bara svo mikill töffari að ég held að ég eigi töffuðustu langömmu í heimi, gamaldags er nú varla til í orðabók þeirrar gömlu.
Hafdís frænka sagði við mig, Jæja Kristín Alma mín, það er nú meira hvað þú ert ORÐIN falleg og yndisleg stúlka. Fór heim á bömmer yfir því að hafa verið svona ljótt og glatað barn.
Þetta var reyndar ekki það sem hún átti við, sagði svo að ég hefði nú alltaf verið þetta, bara orðin meiri dama núna heldur en fyrir 10 árum.
Svo verður meira partýhald með gömlu 24-25 júní - útí sveit, þar sem að ég hef ekki komið síðan að beljan sleikti á mér eyrað forðum daga, verð að horfast í augu við óttann.
Áðan hitti ég svo Helgu á Oliver, fengum okkur að borða og planið var nú að spjalla saman, en það varð eitthvað minna af því þar sem að Helga var nánast óviðræðuhæf, bæði því hún var svo upptekin af matnum og svo þegar að hún leit upp frá disknum þá var það til að kíkja aðeins á danska barþjóninn og segja svo "frígging heitur gaur" Ég er ekki sammála. Sagði henni að allir væru svona sætir í Danmörku. Nú skyndilega vill hún ólm koma í heimsókn til Danmerkur. Skrýtið.



Lifið vel.

4 ummæli:

Kristín Alma sagði...

Afsakið, nennti ekki að ritskoða þetta, lá svo á að fá þessa frábæru dagsetningu þarna efst.

Nafnlaus sagði...

hehee... takk samt fyrir kvöldið!! já hanner "frígging heitur gaur" i like... sooooo want him=) en eg skal núi blaðra meira næst! hafði bara ekkert merkilegt að segja.. líf mitt er ómerkilegt þessa dagana... vinna sofa, vinna sofa.. kaffihús með stínu sofa vinna... en ég fór á the o man áðan.. 6,6,6 :S hjélt ég myndi deyja:S

Nafnlaus sagði...

Já þetta var æðislegt þarna á Skólabrú og það var gaman að hitta þig litla sæta frænka :)
Hefur alltaf verið voða krúttla.
Svo verður þetta tekið með trompi í sveitinni !!!!!!!!!!
Gítar og læti.
Ragga frænkz

Nafnlaus sagði...

Sammála þér með Pravda, hef ekki mikið álit á þeim stað en svo er allt annað mál að skella sér á Oliver ;) Það er töff staður!