13.6.06

Dæmigerður Íslendingur

Á sunnudaginn var hræðilega mikil rigning.
Ég ákvað nú samt að gera eitthvað sniðugt úr deginum og skella mér í sund. Það var reyndar alveg ógeðslega þægilegt að liggja í pottinum, hálf berrassaður, innan um 176 aðra berrassaða einstaklinga og láta rigninguna dúndrast á andlitið á sér, eftir að hafa synt marga kílómetra.
Þegar að ég var komin uppúr ákvað ég að fara út í stuttum gallabuxum og opnum skóm, því ég hélt að rigningin myndi ganga yfir. Kannski full mikil bjartsýni. Ég þurfti að labba tvo metra undir berum himni og á þeim tíma rigndi svo að ég hef aldrei kynnst öðru eins. Orðatiltækið "það rigndi eins og hellt væri úr fötu" fölnaði við hlið þessarar dembu.
Jæja, ég orðin blaut aftur og fötin líka, eins gott að ég var með handklæði í töskunni. Kíkti við í Smáralind, pælingin var sú að ég myndi kaupa mér einhver viskuleg föt, skó eða eitthvað sem að gerði gagn á þessu blauta landi.
Nei, ég kom út með Dolce og Gabbana sólgleraugu. Bráðnauðsynlegt að eiga svoleiðis í blíðunni hérna á Íslandi. Hefði betur keypt mér vöðlur, örugglega hægt að fá einhverjar súper góðar og flottar vöðlur fyrir sama pening - MIKIÐ meira notagildi.
Í dag var í fyrsta skipti sem að ég hef farið út með gleraugun. Labbaði úr vinnunni og útí matarbúð í hádeginu. Svo tók ég á mig extra krók á leið heim úr vinnunni, fór niður laugarveginn, svo það væri nú hægt að nota gersemina eitthvað.

Nú er ég hjá ömmu og afa, nema þau eru ekki heima. Er búin að fara í pottinn og liggja þar eins og skata. Svo gott, best í heimi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Össss þetta er ekki hægt með þetta sumar hérna á þessu landi okkar, ef það er ekki rigning þá er skítakuldi! Þá er einmitt málið að skella sér bara á meginland Evrópu þar sem geysir hitabylgja um þessar mundir, ég þangað ;)Til hamingju með sólgeleraugun, vonandi áttu eftir að geta notað þau mikið í sumar ;)