10.6.06

Litlu-skrímsla-blogg







Já, þetta blogg verður tileinkað litlum börnum útum allan heim og foreldrum ungra barna, sem ég dáist að.
Passaði litla skrímslið mitt í gær, hún var ekki jafn stillt og vanalega, eða reyndar bara þreytt og ekki sátt við að vera sett í pössun í heilar 40 mín. En svo var núðlunni okkar bara skellt í bað og þá varð hún sátt og sofnaði í stólnum sínum.
YNDI þetta barn.

Nú, eins og flestir hafa tekið eftir, þá er óléttan að ganga og greinilegt að þegar að vorvindarnir fóru að blása að það hafi borist eitthvað annað en birkifræ með þeim. Best að passa sig, því að ég held að þetta sé smitandi. Get svarið fyrir það, það er önnur hver kona á Íslandi ólétt. Mjög skæð pest. Þori ekki út, ef maður á það á hættu að smitast.
Fékk einmitt óléttufréttir númer 37 áðan, hitti fyrrverandi vinnufélaga úr Samskip sem sagði mér það að þau hjónin ættu von á litlu kríli. Loksins :)
Gaman Gaman.

En jæja, best að fara að sofa í hausinn á sér, þarf að vinna eins og mófó næstu vikur til að eiga fyrir öllum sængurgjöfunum, eins gott að maður er á sérdíl hjá BabySam...

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skammast mín eiginlega fyrir það að finnast barnið fallegast þegar það setur upp þessa undursamlegu skeifu. Krissa Hryssa

Kristín Alma sagði...

Þú heldur kannski að það sé einhver tilviljun að hún sé alltaf með skeifu þegar að ég er með hana?

Nafnlaus sagði...

Awwww, þetta barn getur drepið mann, eggjastokkarnir fara að klingja og berjast utan í öll innyfli!

Ekki gott! Vil ekki að þú fáir fréttir númer 38!

Kristín Alma sagði...

Hmm, Guðrún mín þarftu að segja mér eitthvað?

Nafnlaus sagði...

Nei, sem betur fer - vona að það haldist þannig, ég vil heldur vera óléttufrétt númer eitthvað miklu meira en 38, spurning með 3800 (það ættu að vera nokkur ár í það).

Nafnlaus sagði...

já þetta er rétt hjá þér! allir óléttir! og við sem vorum að hugsa út í um daginn hvað okkur langaði mikið í svona kríli.. ég held ekki... held ég vilji frekar bara passa öll þessi börn sem eru á leiðinni!;) og halda áfram að djamma:P hehe

En hvað segiru um 17 júni.. eigum við að skella okkur á ball kannski:)

Kristín Alma sagði...

Sagði ALDREI að mig langaði í eitt kríli núna, bara seinna.
Fínt að eiga eina svona Kötlu heima hjá sér sem að maður getur fengið lánaða og skilað bara eftir henntisemi :)

En ég er víst að fara til úglanda um helgina...

Nafnlaus sagði...

Þetta er einhver sú fallegasta myndskreyting sem ég hef séð á bloggsíðu. Smáábending; Barninu líður hvergi betur en í hálsakoti ömmu sinnar, svo ef þið ekki ráðið við hana, endilega komið með hana á Álfhól.
Amman