í dag var ég barnapía.
Kötlubarnið var í pössun hjá mér í heila tvo tíma.
Við gerðum allskonar saman. Það var mjög gaman hjá okkur. Spjölluðum mikið saman og ég er ekki frá því að barnið hafi sagt "Kristín Alma" og fleira. Nú auðvitað talaði hún líka smá um pólítík og efnahagsmál. Annars var það mest bara Agúuuh og fruss. Við lékum okkur svo saman í dágóða stund á leikteppinu með gíraffann og páfagaukinn, vorum í leik með þeim alveg þangað til að Katla ákvað að pissa 3 lítrum í bleyjuna og krafðist þess að ég myndi skipta á henni. Þegar að því verkefni var lokið þá skellti ég barninu í alklæðnað frá 66°norður, en reyndar sleppti ég treflinum, svona útaf því að það er hásumar og hlýtt úti eftir því. Barnið hraut úti í klukkustund, tæplega. Þá vildi hún koma aftur inn í fjörið. Nema hvað að þá var svengdin farin að segja til sín og barnið var ekki sátt við að vera kjurr í fanginu á mér, svo ég skellti Kötlunni í apapokann og gekk um gólf með hana, málaði mig, fékk mér kvöldsnarl, hlúði að sárlösnum kettinum og ýmislegt fleira. Á meðan Agúúúúaði barnið í pokanum og slefaði örlítið yfir mig, pokann og sjálfa sig. Merkilegt að hún skuli virkilega halda að hún geti troðið báðum krumlunum uppí sig í einu. Dáldið vitlaus svona lítil börn.
Móðirin kom svo heim og barnið var fyllt af mjólk. Eftir það lá hún í sófanum og frussaði, þar sem að það er það nýjasta hjá henni, frussa útum allt. Komumst að því að hún er hin fínasta latte maskína, þar sem að hún freyðir mjólkina - Ekki allir sem eiga svona sniðugar Kötlur.
Helgin framundan. Ég verð að vinna á laugardag og svo tek ég að mér Almarsdætur á sunnudag. Maður er alltaf í börnunum.
Reyndar ætluðum við Inga Rós að fá smá útúr þessari helgi og kíkja útá lífið annað kvöld. Hjálmar á NASA og svona, gæti verið að maður kíkji aðeins á það.
Barna og skemmtana- Froggie
3 ummæli:
Kíkti óboðinn hingað inn og sé að þessi síða lifir enn, nennti nú ekki að lesa allt en þú ert seig í skriffinskunni.
Sagði hún "Kristín Alma" segirðu? Rædduði svo ekki líka aukna verðbólgu og ástandið í Norður Kóreu? ;)
Til hamingju með árangurinn, nú geta saklausir vegfarendur farið að vara sig;)
Skrifa ummæli