17.5.06

Illa útleikin eftir Kötlugos




Katla gerði sér lítið fyrir þegar að ég tók hana í fangið á mánudag.
Gaus 30 lítrum af brjóstamjólk yfir mig.

Þetta er mynd af ælinu.

Lítið bloggstuð, fékk hræðilegar fréttir fyrr í dag. Sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur í Sandgerði.

Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum.

Eitt af börnunum sem ég var að passa úti í USA, þegar að ég fór þangað sem aupair er að koma til Íslands með mömmu sinni. Hún verður eins árs á morgun, lítla snúllan. (var alveg ný þegar ég fór út) Hún verður hjá mér um alla helgina, og ég ætla að fara með hana í húsdýragarðinn og við ætlum að gera allskonar skemmtilegt saman, hlakka þvílíkt mikið til, finnst ég eiga svo mikið í henni, og þeim systkinum reyndar líka.
En ef að það er einhver sem á Vagn eða svefnkerru sem að ég get fengið lánaða yfir helgina væri það frábært :)

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já há! Svo þetta er fyrsta skrefið í því að vera svona helgarmamma, ertu s.s. að reyna aðeins fyrir þér í þessum efnum?

Kristín Alma sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Kristín Alma sagði...

Já - Þetta er sniðugt sko.
Þar sem að það gengur eitthvað brösulega að finna einhvern sæmilegan mann (pakka) þá ákvað ég að byrja á barninu.

Þetta verður spennandi, hvort ég verði hæf helgarmóðir, eftir þessa helgi kemur í ljós hvort ég ráði við það að fá mér mann með barn.

Þú átt enga vini með börn, er það? (helst ekki með konu líka ;))

Nafnlaus sagði...

Held þú sért best. Hekla

Nafnlaus sagði...

hvað vorum við að tal aum dúkku yfir heli.. get ekki seð annað en þú sert komin með eitt alvöru stykki til að æfa þig á.. þú hefur ekkert við þessa blessuðu dúkku að gera:) skal kannski kíkja í húsdyragarðinná morgun(sunnudag):) fer samt að vinna kl. 5 þanng að let me know;)

Nafnlaus sagði...

Mig langar að eiga þetta barn.

Nafnlaus sagði...

finnst þér fallegt að klaga ungabörn í fjölmiðlum?

Nafnlaus sagði...

froskurinn.is er dauð síða í mínum huga