5.5.06

X-Sigmarsdóttir


Ég er að hugsa um að kjósa sjálfa mig í kosningunum sem fara munu fram eftir 22 daga.
Bara X-Sigmarsdóttir, eða eitthvað álíka töff.
Reyndar var ég farin að þjást af mjög alvarlegum valkvíða, því ég vissi/veit ekkert hvaða pakk maður á að kjósa. Maður getur ekki einu sinni kosið eftir því hver er sætastur, því að allir svona kallar eru ljótir, allavega ekki minn tebolli. Nema kannski GMB, hann er nú alveg killer dúllurass.
Var líka að hugsa um að fara í heimsókn á kosningaskrifstofurnar og fá mér pulsu (pylsu, whatever) og helíumblöðrur - Sjá svo bara hvaða pulsa,pylsa væri best og kjósa eftir því. Fannst það dáldið sniðug lausn. Var mjög hamingjusöm þegar að ég ákvað að bera þetta undir Guðmund, stóra frænda minn, hann sagði mér að ég væri virkilega mikið Þvaghænsni að halda það að ég ætti að kjósa. Ég var alveg gáttuð á þessu og spurði hann hvað í ósköpunum væri nú að þessari hugmynd. Hann sagði að við sem værum með lögheimili erlendis myndum ekki kjósa.
Damn, þar fór það.
Valkvíðinn færist bara til næsta árs.
Þið hafið þá heilt ár til þess að sannfæra mig um það hvort ég eigi að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eins og fólk hefur gert í mínum ættum í hundrað ár, eða þá hvort ég eigi bara gefa skít í famelíuna og gerast kommúnisti.

eins og þið sjáið þá hef ég ekki hundsvit á þessu.

X-Sigmarsdóttir er farin að sofa í hausinn á sér

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ástæðan fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn næ alltaf kjöri aftur og aftur er sú að það er fólk sem hefur ekki hundsvit á pólitík sem kýs hann vegna þess að familían hefur gert það lengst aftur í ættir. Vertu bara
kommon-ista-barn!!

The horse

Nafnlaus sagði...

Bara kommúnisti mundi fara með svona bjánalegar fullyrðingar..

The mouse

Nafnlaus sagði...

Ég tek undir og ekki er ég kommúnisti. Einhver sem hefur ekki hundsvit á pólitík myndi einmitt koma með fullyrðingu líkt og músin:)Hekla

Jóhann Georg sagði...

Er bloggið þitt ekki í fallega grænum lit? Go with your gut.

Nafnlaus sagði...

Þú ættir alveg að geta kosið þótt þú sért ekki með lögheimili á Íslandi. Kýst bara utan kjörfundar hjá sýslumanni fyrir kosningadaginn. Ég gerði það þegar ég var með lögheimili í Danmörku.