Mikið hefur nú ekki skeð síðan síðast. Jú við skitum uppá bak í Júróvisjón. Ekki í fyrsta skiptið og ekki það síðasta. Svo var það feministinn Kristín Alma sem að horfði á aðalkeppnina. Hlýtur að hafa verið mjög heitt í Aþenu - Allir bara berrassaðir. Bókstaflega á rassinum. Meira að segja gellan sem að fékk allar millurnar til að dressa sig upp ákvað að mæta bara á nærbol og stígvélum. Töff.
Reyndar toppuðu Bretar kvöldið með barnakláminu, aldeilis flott hjá þeim. Júróvísjón sökkaði feitt þetta árið, gjersamlega gleited dæmi - Fyrir utan danska lagið að sjálfsögðu, gå denmark.
Kosningar riðu yfir landið síðustu helgi. Allir sigurvegarar eins og komið hefur fram einu sinni eða tvisvar. Get ekki ákveðið hvort ég eigi að vera Kommatittur eða Sjalli. Sem er mjög spes. Finnst margt af því sem að Vinstri Græn eru að gera mjög frábært og æðislegt. Annað glatað. Eins með Sjálfstæðisflokkinn. Finnst þeir vera með hausinn alltof mikið inní síns eigins rassgati - mættu alveg kíkja út við og við.
Hmm. Massa mikið að gera um helgina er á fullu við að finna mér date til að taka með mér í þrítugsafmæli á laugardag. Hangi á Sólon á kvöldin og á Subway niðrí Faxafeni milli 13-14 alla daga til að finna útúr hvern ég eigi nú að taka með mér, ekki getur maður mætt einn í svona samkvæmi. Það er bara lummó.
(ætti kannski að finna mér betri staði til að hugsa á?)
Mamma á afmæli í dag, 22 ára þessi elska, óska afmæliskonunni til hamingju með það.
Lifðu í lukku en ekki í krukku.
Lifið heil
4 ummæli:
Enn að vera bara fyrir utan tannlæknaskólann...það þótti alveg gasalega sniðugt hér á árum áður ;-)
Takk fyrir kveðjuna núðlan mín...verst að ég fíla mig bara ennþá 24.....thíhí.
Hélt líka með Danmörku. Hata þá samt svona almennt séð.
Þess má einnig geta að ég er rassgat
Voða mikið rassgat.
til hamingju með múttu.. bið að heilsa henni og þeim í Danmörku:) heimsæki ykkur öll í haust:)
en eg keypti nammi fyrir þig uti:) svona in case u are interested?
Skrifa ummæli