9.5.06

Aldrei kaus ég framsókn



Fór á kosningaskrifstofuna til Sóleyjar móðursystur minnar í föðurætt um daginn, í kommúnistapartý. Auðvitað var dælt í mann merkjum sem á stóð "Ég rokka til vinstri" og svona skemmtilegt.

Hún Sóley sagðist ætla að bíða með að taka "ræðuna" á mig þangað til pabbi væri kominn til Aþenu. Eftir þessa ræðu á ég víst að vera orðin græn í gegn. Hún á góða möguleika, þar sem að ég er ekki neitt eins og er. En hver veit hvort að ég fari bara að leggja í fatlaðrastæði og verði exbé.

Það er búið að vera geggjað veður í Reykjavík síðustu daga. Eða svona geggjað á íslenskan mælikvarða. Enda liggur það í augum uppi að þegar að ég á að vera inni að lesa fyrir eitthvað bjévítans próf, þá er rjómablíða úti. Mér reyndar er búið að takast að gera ýmislegt til að njóta veðurblíðunar. Fór í sund og í langan göngutúr í gær, labbaði alveg út um allt breiðholtið - finnst það nú dáldið vel af sér vikið.

Köttur móður minnar í föðurætt* (sem hún skyldi eftir, alveg óvart heima hjá mér) er farin að fara sjálf út núna, uppgötvaði það einn daginn að hún komst útum eldhúsgluggan og inn aftur. Mikil uppgötvun fyrir svona animal. Enda síðan að hún fór út í fyrsta sinn þá er hún búin að príla inn og útum gluggan líkt og enginn sé morgundagurinn. Greyið. Núna þarf ég að hafa áhyggjur af því að kattarkvikindið láti barna sig.

Best að halda áfram að læra, svo að ég eigi smá möguleika á að ná þessu prófi.

*Móðir mín í föðurætt er Þóra, hún er að sjálfsögðu mamma mín, en til að skilgreina hana frá mömmu verður hún að vera móðir mín í föðurætt, þar sem að hún er mamma mín pabbamegin. Og þá er það nokkuð ljóst að móðursystir mín í föðurætt er systir Þóru

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég skildi þessa fjölskylduflæku alveg.
ég á nú einu sinni Stínu systir sem er ekki systir mín heldur pabba.

hvað þá með Lilla mákona, sem er ekki mákona mín heldur kona hans pabba

Sprettur sagði...

Með svona fjölskylduflækju væri alveg hægt að gera heila bíómynd, svona einhverja franska skrýtna sem enginn skilur...nema kannski frakkarnir :)

Nafnlaus sagði...

Skil ekki bobs í þessum fjölskyldufræðum, minnir mig einna helst á fyrstu kaflana í Gísla sögu Súrssonar..... hehehe

Kristín Alma sagði...

Sæunn: Við erum svo eins :)
Sprettur: Já ég ætti kannski að sækja um styrk hjá kvikmyndasjóði og gera svona mynd, reyndar tala ekki frönsku, en tala dönsku - skiptir það einhverju máli?

Diddi: Ég er með kvöldnámskeið fyrir fólk sem hefur áhuga á að læra um "óhefðbundnar fjölskyldur".
þú bara skráir þig :)
kristinalma@hotmail.com

"Svona er Ísland í dag", kalla ég það :)

Nafnlaus sagði...

já ekki er ég betri móðir en svo að ég skil aumingjans barnið eftir eitt í úthverfi þar sem varla þrífast kettir..
amk býr brennuvargur í næsta húsi og ég las á mbl að það sé búið að dæma hann hellingslangt gæsluvarðhald svo engar verða nágrannaveislurnar á meðan.
vonandi fer vel um ykkur ronju í kópavoginum, ég er ekki viss um að ég þekki ykkur í sjón. sérstaklega ekki köttinn svona kettlingafullan og búttaðan.

kæruleysið á einum bæ...

f. móðir þín

Nafnlaus sagði...

Jæja, þá erum við lausar við pabbann og getum farið að tala saman fyrir alvöru. Hvenær eigum við að hittast?

Ástkær móðursystir í föðurætt sem á afmæli í dag - takk fyrir hamingjuóskirnar!