8.8.06

Dánarfregnir og Jarðarfarir

Ég hata millilandaflutninga.
Núna til dæmis þá er ég að pakka síðustu 7 mánuðum niður í tösku. Ógeðslega erfitt. Að sjálfsögðu er ég búin að vera brjáluð í skapinu síðustu daga. Grenja og hlæ til skiptis.
Ótrúlega mikið búið að ske á þessum stutta tíma sem ég er búin að vera hérna á Íslandi. Langar ekki að fara aftur heim, Þó það verði mjög gott að komast þangað aftur.
Er að hlusta á SigurRós núna er sjúk í þá, enda búin að elta þá um landið eins og versta hljómsveitarpíka. Drööööllu góðir í Ásbyrgi á föstudaginn, svo flott umhverfi og góð stemning líka. Er orðin dáldið artýfartý núna, var samt stoppuð af þegar að ég heimtaði að við færum á Sirkus í gærkvöldi, þegar að við vorum á röltinu niðrí bæ. Þakka mjög vel fyrir mig, þú sem neitaðir mér um það. Sirkus er ógeð.

Var annars á Akureyri mestmegnið af helginni, þó að við höfum nú farið í Mývatnssveit og Ásbyrgi, Gist í bílnum og drukkið volga kókómjólk. Sundlaugin á Akureyri var mikið notuð, Brynjan var heimsótt og Sjallinn(aðeins) skoðaður. Það var að mínu mati aðeins of mikið af fólki, en samt ótrúlega gaman. Pabbi og pakkið voru í Kjarnaskógi þannig að maður skrapp þangað og lagði sig eftir langa nótt í bílnum og át eldaðan mat og svona, mjög henntugt.

Komum svo heim í gærkvöldi. Arna mín kom svo til mín og við smelltum okkur í gallann, opnuðum bjór og gerðum okkur klárar fyrir feitasta bæjardjamm sem um getur (var það allavega hjá mér) Fórum í smá teiti og skelltum okkur svo á Sólon til að hitta Ingu Jónu. Svaka stuð á okkur. Stakk stelpurnar af og hitti Aron. Við fórum svo á röltið og máluðum bæinn rauðan. Svoddan partýljón, við tvö plús 10 vinir hans.
Tjékkuðum á nokkrum stöðum og fórum svo heim - var komin í háttinn klukkan átta um morguninn, svo það má segja að stelpan hafi verið á skralli í tólf tíma, plús allt djammið um helgina.
Verð þunn framá miðvikudag.

Takk fyrir mig Ísland.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kristín Alma.. þessi Aron, getur hann verið skýringin á því að þú hefur undanfarna daga komið heim um svipað leyti og ég fer á fætur?
Getur sagt þessum dreng að koma og kynna sig fyrir tengdamóður sinni (ég hef aldrei verið kölluð tengdamóðir fyrr) áður en ég les um hann í blöðunum!
Annars er það kannski til enskis þar sem þú ert nú fljúin frá okkur, það var svakalega tómlegt í Kórsölunum í dag og okkur Kötlu finnst ömurlegt að þú sért farin. Nú höfum við engan með okkur í liði gegn karlinum á heimilinu, engan til að rífast í um fötin í baðkarinu og engan sem skilur thoracio reex.
láttu í þér heyra fljótlega þarna télling.

og eitt að lokum, þú hefur greinilega átt hvíta pokann sem var aftur í drekanum!

Nafnlaus sagði...

Þú ert djammóð girl!
Ég elska Ásbyrgi, það er massa flottur staður.. ekki eins ástfangin af Sigur Rós ;)
Bið að heilsa familíunni minni í Horsens.. híhí.

Nafnlaus sagði...

Rosa flakk hefur verið á þér um helgina, bara nánast útum allt land nema til Eyja á Þjóðhátíð ;) En ég var einmitt þar og skemmti mér alveg konunglega........ er mér sagt alla vega hehehe:) Hafðu það gott úti í útlöndunum ;)

Nafnlaus sagði...

Ekki að undra að þú sért í grenjinu með Sigurrósar vælið í eyrunum. Sjálfsmorðstónlist dauðans. Skelltu frekar Dr. Hook á. Garanteruð hressing:) Nafna þín Von Gartendorf

Nafnlaus sagði...

Elsku snúlla!
Þín verður saknað sárt hér á klakanum, og þéirra fáu stunda sem við áttum saman

Nafnlaus sagði...

Sæta sæta... :*
Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt..Ég er alveg ömurleg að kommenta...:)
Skemmtileg seinasta helgi, vildi að þú hefðir verið í eyjum með mér..:)Enn það var ógo gaman að heyra í þér þá... hehe vorum alveg edrú..

Missja..

Kv, Kittý

Nafnlaus sagði...

komdu heim. eg a ekki til orð til að lýsa því hvað það er tómlegt herna án þín! það vantar stóran hluta í mig ..aftur..hann kom þegar þú fluttir heim.. en hann vantar nu þegar þú ert flutt ut aftur og ég vil fá hann aftur.. svo að komdu heim.. helst nuna!!! ;***