Hefði ekki átt að segja ykkur að ég væri í bloggátaki.
Ég hef ekkert að blogga um nema skólann.
Það er leiðinlegt að blogga um hann á hverjum degi, þó að það gerist mjög mikið á hverjum degi.
Rendar er ég komin með "fritidsjob" tvisvar í viku, þrjá tíma í senn. Passa Breka meðan mamman er í skólanum og pabbinn er í skólanum. Fínt, smá peningur og ekkert voðalega leiðinlegt að snúllast eftir skóla með svona litinn kút. Við kíkjum bara á barinn og svona. Dejligt.
Hefði átt að byrja þessa færslu á "kæra dagbók"
3 ummæli:
Mikið ofboðslega var þetta leiðinleg færsla.
Þú ert leiðinleg.
Þið eruð báðar leiðinlegar.
Skrifa ummæli