Fór á Aðalfund Íslendingafélagsins áðan.
Tróð mér ekki í neinar nefndir, kaus bara í stjórn og rétti upp hendi þegar að mér fannst það viðeigandi. Tróð mér og annari í fótboltalið kallana. Sé til hvort ég nenni að mæta svo, sagðist ætla að keppa á klakamótinu og allt, því að þetta væri bara eitt stórt helvítis pulsupartý. Sjáum til hvort að ég mæti á æfinguna á þriðjudag.
Á einhver legghlífar og takkaskó?
Byrja íþróttaferil minn á því að fara á djamm í kvöld. Íslendingaball og læti.
Rock on dudes!
4 ummæli:
Jæja hefuru unnið til verðlauna á þessum íþróttaferli þínum so far???
Gangi þér vel með íþróttaferilinn frænka :)
Við erum nú einu sinni komnar af gífurlegum fótboltaættum þannig að þú ættir ekki að þurfa að hafa mikið fyrir þessu sko !!
Kveðja frá ísalandi
eikverja hluta vegna sé ég þig engan vegin fyrir mér vera að sparka í bolta:S alls ekkert illa meint elskan min... myndir kannski standa þig vel sem klappstýra;)
Gott þú trúir á mig.
Til þess eru vinkonur.
Skrifa ummæli