
6.3.12
5.3.12
Iittala


27.2.12
Litlir lampar á lækjarbakka..





Myndirnar eru fengnar í láni hjá google.
26.2.12
Endurvinnsla
Þannig að ég fann til krukkuna góðu.
Fann svo til blúndubol sem ég átti og var frekar lítið notaður, skil það ekki.. :)
Tróð krukkunni í ermina, klippti til og bjó mig undir að skokka útí bílsskúr að spreyja. En..
Svo var þetta eitthvað bara svo sætt saman að ég ætla að hafa krukkuna með blúnduerminni á í smá tíma. En engar áhyggjur, þetta verður spreyjað - bara svona þegar ég nenni að fara útí kalda bílskúrinn minn :)
23.2.12
Gamalt verður nýtt
27.9.10
Nýtt upphaf?
Veit ekki hvort ég kunni enn að blogga, en ætla að reyna.
Héðan af Hrannarstígnum er allt í góðum gír. Húsbóndinn vinnur fyrir heimilinu með því að veiða fisk útá sjó 5-6 daga vikunnar, ég sjálf er að vinna á dvalarheimili og í Lyfju ásamt því að hugsa um Hrapp litla, sem við fengum um jólin síðustu. Hann er vissulega hundur en heldur sjálfur að hann sé mannsbarn, gæti mögulega verið því við foreldrarnir höfum tekið þessu nýja hlutverki okkar af aðeins of mikilli alvöru og hugsum um grey hundinn eins og um kornabarn væri að ræða.
Verður spennandi að sjá hvort að ég hendi inn annari færslu á næstu 9 mánuðum. Stay tuned.
5.6.10
5.12.09
18.9.09
Sveitin
Núna í þessari viku er svo búið að vera bilað veður hérna í sveitinni, haustið að stimpla sig inn með tilheyrandi rigningu og sunnanátt svo kuldaskræfan ég þorði ekki annað en að rífa fram tútturnar og ullarsokkana. Í góðri trú hélt ég að þessi sveitamannaleikur minn myndi falla vel í kramið hjá heimamönnum og ég myndi jafnvel eignast vini útá þetta uppátæki mitt, þar sem fólk sæi nú að ég væri kannski ekki svona mikið borgarbarn í raun og veru. En neiii, fólk hefur hlegið að mér í viku! Hér ganga allir greinilega bara um í hátísku skóm og fólk heldur að gúmmítúttur séu bara eitthvað ofaná brauð.
Meira að segja tengdamóðir mín sá tútturnar í forstofunni og sagði: Er Gísli Einarsson í heimsókn?
10.9.09
Hver er svona lítil og löt?
Já, skólinn er byrjaður og kannski kominn tími til að endurvekja froskinn. Það er jú klassískt að eiga bloggið að þegar verkefnin fara að hlaðast upp.
Ég hef samt ekki nógu mikla heimavinnu til að nenna að blogga mikið núna.
Tjá
12.5.09
Tíminn flýgur áfram og ég búin að vera Íslendingur í 3 mánuði, sem segir okkur það að það eru 3 mánuðir þangað til ég kemst inní sjúkrakerfið. Sem betur fer hefur ekkert stórvægilegt komið fyrir mig þessa 3 mánuði en ég hef þurft að fara til heimilislæknis tvisvar og einu sinni til sérfræðings útaf þessari hrottalega skemmtilegu blöðrubólgu sem var að hrjá mig hérna í vetur og er um það bil milljónkalli fátækari. Núna er einmitt komin upp sú staða að ég þarf að fara til tannsa að láta rífa útúr mér fjóra jaxla og ég er næstum því komin á það að bíða með það í þrjá mánuði í viðbót til að þurfa ekki að leggja út fyrir annari milljón. Gaman gaman.
Annars erum við hress hérna í firðinum fagra. Höfum það ótrúlega gott í kreppunni og ekki yfir neinu að kvarta. Jú, nema kannski húsnæðisleysi, en íbúðin sem við vorum að leigja var seld ofan af okkur og núna kúldrumst við í kjallaranum á 350 fermetra húsinu sem elsta systir hans Jóns Péturs á. Doldið svona í anda Fritzl - fyrir þá sem hafa svoleiðis húmor. Neinei, væsir sko ekki um okkur hérna í kjallaranum á Eyrarveginum, enda erum við núna með svaka gott internet og allar hugsanlegar sjónvarpsstöðvar sem við höfðum ekki áður svo nú er atvinnuleysinginn bara komin inní nágranna og glæstar svo Eva greyið losnar ekki við okkur í bráð :)
Ég er ennþá gjöööðveikt dugleg í ræktinni. Keyri útí Ólafsvík 5 sinnum í viku til að fara í spinning og BodyPump. Er alveg orðin helköttuð og tönuð í drasl - eða þannig. Það skeður víst lítið ef maður fer heim eftir spinning og étur súkkulaði sem nægir ofaní heila afríkuþjóð. Maður fær nú samt sem áður prik fyrir að hreyfa sig myndi ég halda..
Jæja, fleiri fréttir koma síðar, vonandi. Gamla er að fara í sitt fyrsta framhaldsskólapróf á íslandi í lífinu og það í Íslensku takk fyrir. Danmerkurdvölin hefur ekki haft góð áhrif á málfræðikunnáttu mína get ég sagt ykkur svo það er spurning hvort maður taki þetta fyrsta framhaldsskólapróf á íslandi með trompi og skítfalli bara líka.
15.4.09
Lifandi

14.3.09
Ammó
Ég er sem sagt alflutt heim og líkar vel í Grundó. Er mest í því að vera í fæðingarorlofi - barnlaus þó, en svo er ég líka búin að vera ð leysa af á dvalarheimilinu og í Lyfju svona þegar vantar. Það er nú bara líka nóg að gera, því ég er líka í skóla svo maður er líka eitthvað að rembast við að læra. Þegar ég er ekki að vinna eða læra þá þvæ ég þvott, baka og fer í ræktina (til að brenna skinkuhornunum og kanilsnúðunum).
Annars líður mér bara vel. Búin að eiga góðan tíma í Grundó, fíla það mjög vel að búa þarna - en held ég væri nú ekki þar ef að ég ætti ekki svona dásamlegan Grundfirskan kærasta (og nú geta þeir sem þola ekki væmni mega æla núna). :)
Þetta verður ekki lengra að sinni, ég er farin uppí rúm enda verður ræs hérna á Tryggvastöðum klukkan 0800 - hún Auður litla er víst ekki mikið fyrir að sofa út..
10.2.09
Nótt
Ég er komin í Grundó. Er svona að venjast tilhugsuninni að ég sé ekki að fara út aftur. Fékk mikið hræðilegt þegar ég kvaddi mömmu og var með stein í maganum alla leið til Íslands eða þar til ég sofnaði í flugvélinni og var nánast vakin þegar okkur var hennt frá borði.
Okkur finnst báðum eins og það sé frí bara, því ég hef alltaf komið í frí heim eða um helgi þannig að það er pínu spes að það sé ekki þannig núna!
Á morgun fer ég að tala við skólann. Pínu skerí. Vona að mér verði hleypt í einhverja áfanga svo ég verði ekki ALVEG aðgerðalaus þangað til ég byrja að vinna. Verður nú örugglega voða fínt bara.
Ég er andvaka. Sofnaði fyrir tólf í kvöld og vaknaði svo bara hress klukkan 3. Um 4 nennti ég ekki að bylta mér lengur inní rúmi og fór fram. Er þar ennþá að deyyyyja úr hungri. Aldrei þessu vant er allt stútfullt af mat hérna og ég með valkvíða.
Ætli ég skríði ekki bara uppí aftur...
6.2.09
Mont
30.1.09
Síðan ég bloggaði síðast hefur nú ekki neitt voðalega mikið skeð, þannig lagað. Móðir mín er reyndar einni háskólagráðu ríkari. Er voða stolt af henni að sjálfsögðu :)
Hrossanesið er annars búið að vera hálfdautt í janúar vegna próflesturs, en það stendur þó til bóta og ég væri nú alveg til í að fá eitt gott HEKKEN djamm á næstunni - spurning um að rigga einu slíku upp bráðum?
Annars er ég bara öll í andlega undirbúningnum fyrir flutningana. Ég er amk búin að vera meira í því uppá síðkastið, heldur en einhverju pakkiríi. En hef engar áhyggjur, þessari búslóð er sko leikandi hægt að pakka niður á 2-3 tímum og drösla uppí samskip á öðrum klukkutíma svo það er ekki mikið stress í gangi hér frekar en fyrridaginn.
Ég hef mestar áhyggjur af því að ég nái ekki að fara nógu margar ferðir í H&M áður en ég kem heim og að ég nái ekki að kaupa allt sem ég ætla að kaupa áður en ég kem.
Jón Pétur er líka að undirbúa sig fyrir flutningana. Var ekki lengi að ráða sig í aðra vinnu eftir að við ákváðum að ég myndi flytja heim og er núna farinn að þjálfa fótbolta eins og enginn sé morgundagurinn. Hvort það sé bara útaf því að ég sé að koma eða útaf því að ég er svo "dýr í rekstri" veit ég ekki, kemur í ljós hvað ég verð dugleg að eyða í Grundó ;)
Ég sjálf er ekki komin með vinnu, en það kemur allt með kalda vatninu. Ég verð bara "stöðnuð húsmóðir" í Grundarfirði eins og mamma hennar Ásdísar Rán myndi segja. Fílaða.
Jæja. Ætli það sé ekki kominn tími á svefn hérna megin. Er víst búin að lofa mér í að hjálpa Írisi og Garðari að flytja á morgun og Svanhildi hinn daginn svo það er best að ég fari að safna kröftum fyrir það :)
19.1.09
Sjáið þessa fegurð..
(Er reyndar ekki að fíla þennan hring og þessi börn þarna..)
Ég viðurkenni það líka alveg fúslega að ég dró greyið Jón Pétur með mér á The made of honor til þess að ég gæti átt góðar 90 mínútur með ehm.. þeim :)
Ógeðslega leiðinleg mynd. En fallegur maður.


18.1.09
Froggie fer í frostið..
Best að þurrka tárin samt, ég er a fara til mömmu í mat nefninlega. Skemmtilegra að vera ekki útgrenjaður þar..
Annars var ég að koma frá Vejle. Fór í gær til Svanhildar minnar í mat og hvítvín. Ótrúlega gott pasta og miiiiikið slúður. Veiii alveg það sem ég þurfti eftir að vera búin að rotna heima hjá mér í tvær vikur. Kjöftuðum útí eitt. Svo var klukkan alveg óvart að verða 5 og við ákváðum að skríða uppí rúm. Töluðum reyndar bara áfram þar. Pínu óstöðvandi. Búnar að plana feitt partý í Grundó í sumar og svona ýmislegt ;)
En að máli málana. Ég er að flytja til Íslands!
Ég er og hef alltaf verið snillingur í að tímasetja hlutina rétt og fer nú ekki að breyta því neitt núna. Flytja heim í miðri kreppu. En það er víst ekki kreppa í Grundarfirði. Enda nafli alheimsins og allt það.
Ástæðan fyrir flutningunum eru tvær, báðar frekar augljósar myndi ég halda.
Ég er ekki markaðsfræðingur í eðli mínu, eins sjokkerandi og það nú hljómar. Sé ekki ástæðu til að pína mig hérna áfram í gegnum þetta nám þegar áhuginn er núll og hugurinn alltaf í Grundarfirði. Þó að ég fái einhverja gráðu að þessu loknu þá er það bara alls ekki þess virði, því ég mun aldrei nenna að vinna við þetta.
Ætla að fara heim og finna út hvað ég vil gera.
Óskar frændi minn á afmæli í dag. Vil óska honum til hamingju með það! Man því miður ekki hvað hann er gamall, hætti að telja um það leyti sem hann varð eldri en sólin :)
9.1.09
Eftirsótt..
Shannon commented on your status:
"Hey there my name is Shannon.. i was looking over your profile and i think your really sexy.. i would love to chat ang get to know you better drop me an email and we can chat my email address is shannon05@asgnoova.com "
Ég íhugaði um stund hvort ég ætti ekki bara að byrja að spila með hinu liðinu. Var ekki lengi að átta mig og sjá hvert hlutskipti mitt væri í þessu lífi þegar ég sá þetta á vísi.is : http://visir.is/article/20090109/LIFID01/123093967/-1
8.1.09
...
Ég var búin að ákveða að koma bara um páskana til Íslands. Hugsaði að það væri stutt í páskana, tæki skólann með einhverju í líkinu við tromp þangað til og fengi svo gott páskafrí. Var ákaflega góð hugmynd þangað til ég kíkti á dagatal..
Páskadagur er 13 apríl! Sem sagt í viku 16! Við erum sko í viku 2 núna, takk fyrir pent.
Greinilegt að það var ógeðslega góð ástæða fyrir aðskilnaðarkvíðanum mínum. Ó yndislega fjarsamband. Jæja, þýðir víst ekki að væla yfir þessu, maður valdi þetta sjálfur.
Próflestur gengur. Bara gengur. Það er betra en að hann gangi ekki neitt en kannski verra heldur en ef hann gengi vel. Ég sit á bókasafninu og er svona að hrökkva í gang. Ótrúlegt hvað ég er lengi að asnast í gang. Reyndar læri þá fram á nótt en mér er sama. Væri alveg til í að vera gaurinn sem sprettur upp úr bælinu við fyrsta hanagal og er mættur í skólann korteri seinna og er þar til 17.00.
Mig langar líka að vera þessi sem borðar alltaf hollan og góðan morgunmat, þessi sem getur ekki lifað án líkamsræktar, finnst súkkulaði ógeð og mætir í kirkju á sunnudögum. Og þessi sem á nóg af peningum.
Svona er lífið. Heyrði reyndar einhversstaðar að það tæki mann 21 dag að breyta svona venjum. Gera hlutinn í 21 dag og þá ætti maður að vera orðinn háður.. mesta sem ég get er ein vika...
7.1.09
4.1.09
Be careful what you wish for..
Daginn áður en ég fór til Íslands sló út rafmagninu og að sjálfsögðu afþýddist? ísskápurinn (þetta var um nótt og ég var ofsa glöð að stíga í poll þegar ég vaknaði..) og ég tók hann bara úr sambandi þegar ég var búin að þrífa hann og stakk honum svo í samband þegar ég kom út aftur á Nýársdag.
Vaknaði svo í gærmorgun til að fara í skólann, ætlaði að grípa með mér kók og jógúrt og þetta var það sem blasti við mér!
Ég get sem sagt átt ís núna, og ekkert annað!
3.1.09
Við þökkum samt kærlega fyrir öll yndislegu kortin sem við fengum frá ykkur. Þau fóru öll með tölu uppá vegg og hanga þar enn. Munu líklega vera þar þangað til jólakort 2009 fara að berast. Á næsta ári sný ég vörn í sókn og sendi ykkur falleg og fyndin kort.
Ég er komin til DK aftur, heil á húfi eftir ótrúlega góða dvöl á Íslandinu góða.
Aðskilnaðarkvíðinn var alveg hræðilegur í þetta skiptið. Var með kökkinn í hálsinum og tárin í augunum í viku. Persónulegt met. Er nú samt öll að koma til núna, nema þegar ég fattaði að ég hafði gleymt öllu íslenska namminu sem ég keypti í krónunni. Djís hvað ég varð pirruð. Ætlaði að eiga þetta í prófatörninni til að halda geðheilsunni. Núna er ég gráti nær og sakna Nóa konfektsins ógeðslega mikið. Verð víst bara að láta Haribo viðbjóðinn duga, bið bara fólk að forðast mig eins og heitan eldinn þangað til 15 janúar. Er stygg.
Bauð mér í föstudagspizzu til mömmu í gær. Það var samt reyndar bara útaf því að Gúmmípabbi flaug til Doha í Qatar í nótt og því óvíst hvort við sjáum hann aftur, þannig að það var famelíustund í gærkvöldi...
Við erum öll voða spennt og hlökkum mikið til að eyða sumrinu á sólarströnd í Doha (vonandi)!
Annars er bara próflestur að hefjast og allir á haus í skólanum. Voða gott að vita að maður er ekki einn að standa í prófum í janúar. Ég er samt ofsa dugleg við að finna mér eitthvað annað að gera heldur að en lesa en þetta er samt allt að koma hjá mér. Ég hef mestar áhyggjur að ég verði felld/lækkuð um einkunn fyrir dönskuna mína, enda tala ég ekki einhverja hæstaréttardönsku þó ég kunni að segja aðeins meira en for helvede og bolle.
Hlýtur að hafast á endanum.
Ætti kannski að fá peysuna sem JP fékk í jólagjöf lánaða. En á henni stendur einmitt "þetta reddast".
Það eru myndir frá Íslandi á Fésinu. Þið sem eruð skráð þangað getið skoðað, en aðrir ekki held ég.
7.12.08
Jólakortadrama
Ég stakk svo uppá að við myndum senda út kort með mynd af bílnum hans (Rottunni* sem hann keypti sér sem vinnubíl og er búin að eyða öllum sínum frítíma í að dúlla við síðan) svona sem málamiðlun. Honum fannst ég ekki fyndin.
Annars eru bara 4 dagar í heimferð. Fer ekki vestur fyrr en 20 des ca. því ég er að fara að hjálpa Þórdísi aðeins í Friis og co. Gaman að því.
Svo það ætti að vera tími til að hitta einhverja í Reykjavíkinni.
4.12.08
Jól
Það er annars sól hjá mér. Í alvörunni sko. Eða var í dag að minnsta kosti. Núna er bara myrkur, enda klukkan að verða hálf þrjú. Ég bara datt í smá les og er núna að plotta smá með Villa Mágkallinum mínum á msn. Erum svo flippuð.
Búin að ákveða hvar jólin verða. Þau ætla að vera í Grundarfirði þetta árið, nánar tiltekið á Grundargötu 69. Verðum bara tvö heima (ég og Jón Pétur) í megakósí rólegheitum. Fólk er nú eitthvað að hafa áhyggjur af því að það verði einmannalegt hjá okkur og svona, en ég hef nú enga trú á því. Ég er nefninlega skemmtilegri en margir halda.
Hinsvegar held ég að við getum alveg ákveðið núna að við verðum með annari hvorri stórfjölskyldunni á næsta ári, þar sem ég hef fengið það stórkostlega hlutverk að sjá um jólamatin.
Er að pæla í að biðja einhverja í tengdafjölskyldunni að hafa ríflegt í jólamatinn því það mun verða mjög líklegt að við birtumst á tröppunum hjá þeim, sársvöng eftir að mér tekst að klúðra hamborgarahryggnum á einhvern skemmtilegan hátt, sem á ekki að vera hægt.
Við ætlum svo að koma í bæinn á jóladag og soga í okkur smá menningu. Eða menningu og ekki menningu, ætlum í hangikjöt og laufabrauð á S1 og örugglega slatta af jólaboðum.
Og passa Auði krúttrassgat á annan í jólum.
Áramótin eru óráðin. Ég á flug klukkan 8.00 á nýársmorgun svo það er spurning hvað við gerum.
Í sambandi við jólakort. Þá má senda það bara strax til Grundarfjarðar (ef þið ætlið að senda mér/honum/okkur jólakort yfir höfuð), þar sem ég fer til Íslands eftir viku og verð ekkert aftur í Danmörku fyrr en í janúar.
Jón Pétur Pétursson
Kristín Alma Sigmarsdóttir
Grundargata 69
350 Grundarfjörður
Það er ennþá óráðið hvort þið fáið jólakort frá mér/okkur. Ég er að reyna að fá Jón Pétur til að senda út kort með mynd af okkur með jólasveinahúfu. Gengur ekki vel. Skil þetta ekki :)
2.12.08
Eigið góða aðventu, elskin mín!

1.12.08
Sérdeilis skemmtilegur jólafrokost þar sem ég kom öllum á óvart (mér sjálfri þó mest) og drakk bekkjarbræður mína alla með tölu undir borðið. Ákavíti rúlar. Er mikið stolt af þessu og hef sagt hverjum sem vilja og vilja ekki heyra frá þessum miklu gleðitíðindum.
Þetta var minn fyrsti julefrokost frá því ég flutti hingað og þótti mér ákaflega skemmtilegt að aðaldæmið þarna var lifrakæfa á rúgbrauð! Danir éta þetta daglega, skildi ekki alveg af hverju þeir hafa þetta með í julefrokostinum, en komst að því þegar þetta var borið fram. Lifrakæfunni hafði verið hvolft úr álbakkanum á eldfast fat, sett bacon ofaná, sveppir á kanntinn og inní ofn.
Talandi um að lifa á brúninni!
Endaði aftur í bænum á laugrdaginn og var það öllu sveittara djamm þar sem ég endaði með typpateygjuna hennar Ágústu á hausnum og tók Tjernobyl barnet intenst á dansgólfinu á Hekken.
Skemmtilegt það.
Það fer svo nokkuð fáum orðum um sunnudaginn. Ég svaf. Enda gömul kerling.
Jæja, communication að byrja. Ekki nema 4 tímar af Helle Svendsen. Epli augna minna :)
28.11.08
Samúð óskast

18.11.08
Harmsögur
Endaði með því þegar ég var næstum því búin að hósta upp lifrinni í þriðja sinn þann klukkutímann að ég hringdi í lækninn. Hún vildi, mér að óvörum endilega fá mig í heimsókn og hlusta mig. Lungun á mér möluðu eins og kettlingur þannig að ég hélt að ég yrði bara send heim með panodil og sagt að sofa. Neinei, ég send í flýti uppá spítala í allskyns rannsóknir og pot.
Byrjaði á því að stripplast um allt þarna á nærbuxunum einum fata til þess að fara í röntken. Er mjög viss um að konan hafi verið lesbísk og að nota sér aðstöðu sína, því ég var að fara í röntken til að finna út hvort að það væri eitthvað að lungunum í mér. Síðast þegar ég vissi þá voru þau staðsett í brjóstkassanum, en ekki rasskinnunum.
Jæja, ég lifði þetta af, enda mjög svo ekki spéhrædd og fannst þetta því lítið mál að vippa mér úr öllu til þess að græja þetta. Fór bara að pæla í þessu eftir á að þetta gæti nú varla átt að vera svona.
Næst var ég send í blóðprufu. ég var búin að reikna út að það tæki svona 10 mínútur tops, og ég myndi ná strætó uppí skóla korteri seinna. Bjartsýni, myndi ég kalla þetta.
Fyrst þurfti maður að taka númer! Bara eins og á pósthúsinu. Jæja, ég tek númer og það eru 10 á undan mér. Það líður nú ekki svo langur tími, þá er ég kölluð upp og beðin um að setjast á stól. Bretti upp peysuna og kellingin strekkir ól utan um hendina til þess að fá æðina fram. Það gekk ekki. Þá prufaði hún að strekkja betur. Það gekk ekki. Þá prufaði hún að stinga og hún hefði fengið meira blóð með því að stinga nál í stein. Jæja, hún gefst ekki upp og reyndi að fá æðina fram á hinum handleggnum. Það gekk ekki svo ólin var strekkt betur. Gekk ekki neitt svo hún náði í aðra ól til að strekkja utanum hendina á mér. Þegar þarna er komið við sögu þá leið mér eins og hendin á mér væri að springa. Loksins stakk konugreyið og það gekk ekki neitt að stinga. Hún stakk og stakk þangað til að ég var orðin eins og gatasigti þarna og ekkert gekk. LOKSINS náði hún að stinga á helvítis æðina og þá var partý! Glasið fylltist á núll einni og hún tók nálina út. Þá sprautaðist blóð yfir allt þarna og konu greyið réði ekki neitt við neitt og þær voru komnar 3 þarna til að reyna að stoppa þessi ósköp. Meðan var ég í hláturskasti og gat ekki hjálpað.
Núna er ég enn marin á hendinni. Ég hef aldrei fengið annað eins mar! Ég er eins og gæjarnir þarna í blueman show, marið er svo stórt.
En ég fékk pensilín og er held ég aðeins byrjuð að skríða saman. Tími kominn til, er ekki að nenna þessum slappleika lengur.
Ég kem heim til Íslands 11 desember. Langar mikið á Frostrósatónleika. Hver vill með? (Langar nú mest í höllina, en kyngi kannski stoltinu og fer í Ólafsvík bara..)
3.11.08
Blogg
6.10.08
30.9.08
Hóst og hnerr
Jón Pétur kemur á morgun. Verður líklega bara kominn um það leyti sem ég kem heim úr skólanum. Hlakka mikið til. Hann er líka með kvef og hósta svo við verðum fín hérna saman. Það er samt búið að plana þessa daga sem hann verður alveg í drasl. Bara fínt. Matarboð og partý frá fimmtudegi til sunnudags. Ekki slæmt.
Stjáninn okkar er líka að koma og ég hlakka nú ekkert minna til þess. Langt síðan maður hefur séð hann.
Ætla að elda eitthvað með miklum hvítlauk í kvöld. Veit bara ekki hvað, komið með hugmyndir..
28.9.08
Kósíheit par exelans
Skildum reyndar ekkert í því að það voru þrjár tómar hvítvínsflöskur á borðinu þegar við vöknuðum. Það er okkur enn hulin ráðgáta...
Takk fyrir mig snúlla, þetta var æði :)
Gærkvöldið fór í dorm fyrir framan sjónvarpið. Danir ættu að skammast sín fyrir að hafa svona lélegt sjónvarpsefni á boðstólnum um miðja helgi!
Þannig ég hékk yfir facebook þangað til ég gat ekki meira. Slökkti ljósið og fór að sofa.
Í dag hef ég gert mest lítið. Dröslaði mér reyndar í sturtu, búðina, í pulsuvagninn og svo er ég núna loksins komin í skólann. Þarf að skila einhverju verkefni á miðvikudaginn. Held það sé best að klára það af sem fyrst vegna einbeitingaskorts sem mun hrjá mig frá og með morgundeginum til og með 20 október.
Á erfitt með að koma orðum að þessu verkefni. Er um samskipta strategíur í fyrirtækjum á alþjóðamarkaði.. Plehh, er líka orðin svo gleymd í tungunni að ég veit ekkert hvort þetta sé rétt þýtt hjá mér, hljómar gáfulega í það minnsta.
Hvað varð um það að mæður hefðu læri eða hrygg í matinn á sunnudögum og byðu afkvæmum sínum í mat? Móðir mín situr heima að strjúka piparsveininum (skrifa Batchelor ritgerð) og ég svelti á meðan. Hnuss.
24.9.08
7 dagar
Það hefur nú samt asnalega lítið á daga mína drifið, hef eytt megninu af tíma mínum í skólanum og hefur tíminn því gjörsamlega flogið áfram. Það er að koma haustfrí eftir 2 vikur, man ekki til þess að þessi tími frá skólastarti og fram að haustfríi hafi nokkurntímann liðið svona hratt, og er þetta þó fimmta haustfríið mitt í DK.
Jón Pétur er að koma til mín (og Eyjólfs, sem heldur ekki vatni yfir komu JP) 1 okt og ætlar að vera í nokkra daga. Hlakka mikið til og vona að það verði rólegra í þessum blessaða skóla eftir daginn í dag svo ég geti séð hann eitthvað.
Síðan kem ég ásamt fríðu föruneyti til Íslands seint að kvöldi 9 október. Við erum nefninlega að fara á reonion og svo er skírn hjá Auði 12 október. Ég ætla svo að fara til Grundarfjarðar og liggja í dvala þar þangað til 20 okt þegar ég fer út aftur. Hlakka ofsa til.
Við Íris byrjuðum að "æfa" sund í síðustu viku. Þetta er eitthvað voksenhold, sem er einu sinni í viku. Ótrúlegt fjör og enginn sem vill synda í hringi þar! Mjög gott að komast svona út að hreyfa sig af og til. Í gær vorum við með froskalappir (svömmefödder, maður er alltaf að læra ný og ný orð) og þutum alveg áfram með vindinn í hárinu í hálftíma.
Ekki mikið að frétta annars, bara same old. Langar mikið að dettaíða um helgina, svona ef það er einhver sem vill joina. Er að pæla í að gera það hvort sem ég þarf að vera ein eða ekki..
12.9.08
Hressandi!
Ég sit því hér og svitna núna. Hvort það er af áhyggjum af því að ég skilji þetta ekki eða útaf því að ég var að drekka hálfan líter af heitu kaffi og er í tveim peysum með trefil, veit ég ekki.
Kannski ég fái mér vatn.
Næstu tvo tímana er Erhversökonomi, veit heldur ekki hvernig þið viljið þýða það en það er ekki alveg uppáhaldsfagið mitt. Akkúrat af því það eru tölur involved.
3 verkefnaskil í næstu viku. Einnig mjög hressandi. Þýðir að ég þarf að lesa um 300 og eitthvað blaðsíður um helgina. Ásamt því að lesa fyrir önnur fög og eyða sunnudeginum í að grilla SS pylsur ofaní nýbúana hérna í Horsens.
Mér þykir ákaflega leiðinlegt að ég hafi ekki neitt annað að blogga um en skólann. En svona er þetta.
Gæti reyndar aldeilis sagt ykkur að ég er að koma til Íslands eftir minna en mánuð. Hlakka mikið til. Reunion hjá Byggingarfræðingunum. Ég og mamma sem sagt að fara saman með mönnunum okkar. Voða krúttlegt :)
Síða bara Grundó. Ætli ég reyni samt ekki að kíkja í bæinn líka.
Pleeh, nóg kómið af hangsi, sérstaklega pointless hangs því ég er bara e-ð að röfla. Setti inn fullt af myndum á Fésbókina. Veit ekki hvernig þetta virkar, held þið verðið að vera á Facebook til þess að geta séð. Svosem ekki mikið að sjá, það eru 4 manneskjur á þessum myndum. Ég, Jón Pétur, Sölkus og Kötlus. Áhugavert.
----
Update klukkan 13.05
Arna segir að þetta heiti Viðskiptalögfræði og Viðskiptahagfræði. Yndislegt.
P.S. Victoria í bekknum mínum sagði við mig áðan "Ej, Kristin! Du ser da rigtig død ud"!!! Fokkíng kaupmannahafnari. Spurning um að henda á sig andlitinu áður en maður mætir í skólann. Er fólk hætt að kunna meta au natural útlit..?
2.9.08
Tilli
Þessi gaur skemmti okkur á ströndinn heilann dag í Barcelona. Hann lá þarna rétt hjá okkur tótallý á sprellanum í sólbaði. Svo þegar hann fór í sjóinn eða stóð upp klæddi hann sig í þessar líka fínu borubrækur.
Njótið vel.
31.8.08
Klukk
Fjörgur störf sem ég hef unnið á um ævina:
- Dvalarheimilið Fellaskjól
- Baby Sam
- Samskip
- Kirkjuból
- Birdget Jones
- The Royal Tenenboums
- Sex and the city
- Fuglastríðið í Lumbruskógi
- Seltjarnarnes
- Raufarhöfn
- Garðabær
- Horsens
- Greys Anatomy
- Desperate housewives
- Friends
- Klovn
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Santa Pola
- Frankfurt
- Barcelona
- Baltimore
Fernt matakyns sem ég held upp á:
- Súkkulaði
- Popp
- Mömmu Soffíu Lasagne
- Mömmu Þóru Pasta
- Urban
- Metro express
- Vikublaðið Þeyr
- Kig ind
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Grundarfjörður
- Laugarvegur 38
- Krít
- Tailand
- Mamma
- Inga Lóa
- Ingibjörg Elín
- Hjalli
Þar hafiði það.
Ég hef það annars sæmilegt bara. Skólinn að byrja á fullu á morgun og ég að rembast eins og rjúpan við staurinn að gera eitthvað CV á dönsku, gengur mjög hægt, svona ykkur að segja. Veit heldur ekki alveg hvar ég ætla að sækja um vinnu, en það hlýtur að reddast.
Við Íris erum að fara að æfa sund. Fyrsta æfing á þriðjudaginn og mikil tilhlökkun í gangi. Verður örugglega bara mjög fínt, þó að ég komist kannski aldrei á héraðsmót eins og sumir sem ég þekki :)
29.8.08
Menntun er fjárfesting í framtíðinni
Nú hef ég komist að því hvað er í raun og veru átt við með þessu. Ég er að fara að kaupa 9 bækur sem eru allar svipaðar á þykkt og símaskráin. Er búin að reikna út hvað þetta kostar og það er ekki nema yfir 3.500 DKK!! Samkvæmt genginu þessa stundina eru þetta rétt tæpar 60.000 ISK. Þetta er fyrir utan stílabækur og möppur, sem er slatti af líka. Þetta er bara ein önn.
Hressandi!
Tók lestrarpróf í gær á dönsku í einhverjum studieteknik kúrs og les að meðaltali 19 línur á tveim mínútum. Ég ætla sem sagt ekki að gera neitt annað í vetur en að lesa. Getið ímyndað ykkur hvað ég er sló að lesa á dönsku "fræðimáli" því þessar 18 línur þarna miðast við einhverja auðvelda grein í einhverju blaði...
Þess ber að geta að ég les mjög hratt á Íslensku - er ekki algjör slúbert.
Þessi fylgir með í lokin. Uppáhöldsin mín á Grundfirskudögunum. RAUÐIR!
26.8.08
Háskóli
Kemst varla fyrir heima hjá mér vegna þess að ég á svo mikið af fötum. Samt er ég næstum farin að gráta því ég á ekkert til að fara í á morgun, fyrsta daginn minn í háskóla!
Sem sagt, frá og með morgundegiunum verð ég nemandi í markaðshagfræði. Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að fara í eitthvað nám sem innihéldi hagfræði í titlinum. Enda er það nú meira "markaðs" sem heillar mig.
Fór í sund í dag, sem er eiginlega mjög frásögurfærandi því ég fer aldrei í sund hérna. Hef farið þrisvar. Það var allt á einni viku núna í febrúar. En þetta er sem sagt í fyrsta skipti sem ég mátti vera að því að synda og komst ég að því að ég kann ekki að synda á dönsku. Stelpa sem stoppaði mig sagði að ég ætti að synda í hringi en ekki fram og til baka. Ég var ein á brautinni og sá ekki að þetta skipti nokkru máli, en það var greinilega stelpunni sem var tveim brautum frá mér hjartans mál að ég synti í hringi. Gafst því upp á að díla við tófuna og fór í pottinn eftir 500 metra.
Jæja, það er víst ekkert meira til að segja frá. Best að fara í háttinn svo ég verði ekki með bauga niður á tær í skólanum á morgun :)
25.8.08
Svo er enginn laukur þar..
Ætla frekar bara að reyna að útbúa einhverja myndasíðu sem ég get þá bara linkað á. Hef reyndar ætlað mér það lengi, en ég er bara svo hrottalega tæknifötluð að það situr alltaf á hakanum því mér finnst þetta allt vera svo ó-iddíoddprúf. Sjáum hvað setur.
Ég kom heim frá Barcelona á föstudagskvöld, eftir ótrúlega skemmtilega ferð með Pabba, Móður minni í föðurætt, flestum systkinum mínum þeim megin og Ömmu Ölmu (eða ÖlmuÖlmu eins og Salkan segir). Átti ótrúlega góðan tíma með þeim. Takk fyrir mig!
Stoppaði voða stutt í Reykjavík. Rétt náði að kíkja á nýju frændsystkinin mín. Auði og litla Pjakk Óskarsson. Yndisleg. Jón Pétur brunaði líka í bæinn til að kveðja mig og skutla mér á flugvöllinn, en við náðum samt að horfa á Bjarka hlaupa 42 km í maraþoninu, kíkja í sund og snuddast í einhverju allskonar.
Sólarhring eftir að ég lenti í Keflavík var ég mætt þangað aftur á leiðinni til DK. Súrt, en Anna og Örn voru samt að fara út líka ásamt fleiri Horsens búum svo maður var ekki alveg einn í heiminum.
Síðan ég lenti í Horsens hef ég nú bara alveg verið að andast úr þreytu, bara eins og ég hafi ekki sofið í allt sumar. Sem er reyndar alls ekki raunin, því ég sef svo vel og mikið í Grundó að það hálfa væri hellingur.
Þetta var annars mega gott sumar. Þrátt fyrir að það hafi byrjað mjög seint. Efast heldur ekki um að gamlingjarnir mínir séu farnir að sakna mín, svo ég tali nú ekki um vinnufélagana á Dvaló.
Jæja, held ég láti þetta gott heita, verð að fara að koma mér í bælið hvað á hverju, enda síðasti dagur fyrir skólann á morgun. Ætla að eyða honum í eitthvað gáfulegt.

15.8.08
From Paris ti Berlin
1.8.08
Eyjar
Búin að pakka listinn er svona:
- Áfengi
- Sundföt
- Áfengi
- Regnföt
- Áfengi
- Hlý föt
- Miðar í dalinn
- Miðar í Herjólf (one way!!)
- Sólgleraugu
- Bjór
- Sólarvörn
- Gúmmískór
x2!!
Skemmtið ykkur vel um helgina :)
29.7.08
Smáauglýsing
Ef þið vitið um eitthvað þá megið þið hafa samband í síma 848-5313 eða kristinalma@hotmail.com
Blogga síðar, er að fara út að mjólka.
21.7.08
To me your wonderful..
Hef það samt fínt í sveitinni.
Skeini og baða krumpaða og aðeins stærri rassa en ég hef áður gert, reyti arfa bæði í vinnunni og í frítímanum, mæti á fótboltaleiki í Ólafsvík og vanda mig voða mikið við að vera í sambúð.
Ég vinn oftast frá 8-16. Kem þá heim, legg mig, fer í sturtu og sit svo við eldhúsborðið hjá Frú Hjördísi (mömmu JP) og safna spiki meðan viðhengið sparkar í tuðru. Frú Hjördís hatar ekki þetta fyrirkomulag, ég reyndar ekki heldur en er þó farin að hafa áhyggjur af því að ég verði að kaupa mér tvö flugsæti þegar ég fer út aftur.
Meira seinna. Ætlaði að henda inn myndum með þessari færslu en fattaði svo að ég er búin að vera eitthvað löt við að taka myndir. Þá ætlaði ég að henda inn myndum sem Jón Pétur er búinn að taka en hann er með myndavélina sína í vinnunni, svo læt þetta bara duga.
4.7.08
Jemundur minn hvað ég hlakka til.
Mér fannst einhvernvegin eins og ég væri búin að vera geðveikt dugleg að pakka í vikunni. Veit ekki alveg á hvaða töfrasveppi ég hef verið að éta í vikunni því það er nákvæmlega komið einar gallabuxur og ein afmælisgjöf ofaní tösku. Reyndar búin að finna hellings af fötum til, en samt.
Er búin að vera ógeðslega áfengisþyrst þessa viku. Kannski því ég hef ekki fengið áfengi í blóðið síðan ég var í köben (ekki það, að þá drakk ég alveg fyrir næstu árin, ef ekki meira).
Fór í gær og lét eftir þessari gífurlegu þörf í áfengi, þegar ég var komin á það stig að ég var við það að fara að blanda mér gin og tonic hérna heima þá ákvað ég að drösla mömmu og Írisi með mér út. Við Íris fengum okkur mojito og ég var ekki lengi að hætta við að fá mér annan því ég fann svo á mér eftir þennan eina! Kettlingur.
Jæja ætti væri ekki best að koma sér í að henda fleiru niðrí töskuna og drölla sér svo í klippingu. Svo ég hætti að vera með inilokunarkennd útaf öllu þessu hári mínu!!
2.7.08
Smart
Fór í litun og plokkun áðan. E-ð sem ég geri alveg tvisvar á ári.1.7.08
Dönnuð
Ég er líka voða dugleg við að mála mig, plokka, vaxa, setja á mig krem, maska, skrúbba húðina með þar til gerðum hönskum og þar fram eftir götunum. Voðalega mikil stelpa.
Það vantar bara svo mikið uppá stelpuna í mér, því ég er svoo mikil brussa og ódömuleg í hreyfingum og líkamsburði, ef maður getur sagt það svo. Það virðist bara ekki lærast að standa, sitja og ganga eins og stelpa.
Hér er ég til dæmis á sunnudagsmorgni heima hjá mér í Grundarfirði að lesa bók. Klukkan var milli 10 og 11 og ég búin að fara í sturtu, blása hárið, klæða mig í pils, mála mig og guð má vita hvað. En það er greinilega ekki nóg.
Mér finnst þetta amk ekkert mjög dömuleg stelling sem ég er í þarna. Þakka guði fyrir að ég hata nælonsokkabuxur (sem eru þunnar og þá hefðuð þið eflaust séð hvað ég át í morgunmat þann daginn) og vil bara vera í þykkum leggings. Skil núna að það er engin sérviska, það er einfaldlega til að aðrir þurfi ekki að horfa uppí óæðri endann á mér.
Ég mæli EKKI með að þið stækkið myndina!
















