28.9.08

Kósíheit par exelans

Fór í megahega stelpuhugg hjá Svanhildi í Vejle á föstudaginn. Hún bauð mér í ótrúlega góðan kjúklingarétt og hvítvín. Svo fengum við okkur súkkulaði og hvítvín. Svo hvítvín. Svo brjóstsykur og hvítvín. Svo hvítvín. Ótrúlega gott. Enduðum svo kvöldið á að henda DVD í tækið og fá okkur popp og kók fyrir svefninn. Vöknuðum svo í þynnkunni og fengum okkur að borða. Nammm.
Skildum reyndar ekkert í því að það voru þrjár tómar hvítvínsflöskur á borðinu þegar við vöknuðum. Það er okkur enn hulin ráðgáta...
Takk fyrir mig snúlla, þetta var æði :)

Gærkvöldið fór í dorm fyrir framan sjónvarpið. Danir ættu að skammast sín fyrir að hafa svona lélegt sjónvarpsefni á boðstólnum um miðja helgi!
Þannig ég hékk yfir facebook þangað til ég gat ekki meira. Slökkti ljósið og fór að sofa.

Í dag hef ég gert mest lítið. Dröslaði mér reyndar í sturtu, búðina, í pulsuvagninn og svo er ég núna loksins komin í skólann. Þarf að skila einhverju verkefni á miðvikudaginn. Held það sé best að klára það af sem fyrst vegna einbeitingaskorts sem mun hrjá mig frá og með morgundeginum til og með 20 október.
Á erfitt með að koma orðum að þessu verkefni. Er um samskipta strategíur í fyrirtækjum á alþjóðamarkaði.. Plehh, er líka orðin svo gleymd í tungunni að ég veit ekkert hvort þetta sé rétt þýtt hjá mér, hljómar gáfulega í það minnsta.

Hvað varð um það að mæður hefðu læri eða hrygg í matinn á sunnudögum og byðu afkvæmum sínum í mat? Móðir mín situr heima að strjúka piparsveininum (skrifa Batchelor ritgerð) og ég svelti á meðan. Hnuss.

Engin ummæli: