24.9.08

7 dagar

Ætli það sé ekki kominn tími til að kasta á ykkur kveðju þarna heima!?

Það hefur nú samt asnalega lítið á daga mína drifið, hef eytt megninu af tíma mínum í skólanum og hefur tíminn því gjörsamlega flogið áfram. Það er að koma haustfrí eftir 2 vikur, man ekki til þess að þessi tími frá skólastarti og fram að haustfríi hafi nokkurntímann liðið svona hratt, og er þetta þó fimmta haustfríið mitt í DK.

Jón Pétur er að koma til mín (og Eyjólfs, sem heldur ekki vatni yfir komu JP) 1 okt og ætlar að vera í nokkra daga. Hlakka mikið til og vona að það verði rólegra í þessum blessaða skóla eftir daginn í dag svo ég geti séð hann eitthvað.
Síðan kem ég ásamt fríðu föruneyti til Íslands seint að kvöldi 9 október. Við erum nefninlega að fara á reonion og svo er skírn hjá Auði 12 október. Ég ætla svo að fara til Grundarfjarðar og liggja í dvala þar þangað til 20 okt þegar ég fer út aftur. Hlakka ofsa til.

Við Íris byrjuðum að "æfa" sund í síðustu viku. Þetta er eitthvað voksenhold, sem er einu sinni í viku. Ótrúlegt fjör og enginn sem vill synda í hringi þar! Mjög gott að komast svona út að hreyfa sig af og til. Í gær vorum við með froskalappir (svömmefödder, maður er alltaf að læra ný og ný orð) og þutum alveg áfram með vindinn í hárinu í hálftíma.

Ekki mikið að frétta annars, bara same old. Langar mikið að dettaíða um helgina, svona ef það er einhver sem vill joina. Er að pæla í að gera það hvort sem ég þarf að vera ein eða ekki..

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hey no wörrís....ég kem með. Hahahahaha !! Alltaf smart svona mægðnafyllerý þú veist.

Nafnlaus sagði...

ég pant koma með líka... tökum svo 2900 happiness í þynnkunni á sun :)

Kristín Alma sagði...

Mamma: Það má ekki drekka á súpukúrnum :þ En já, auðvitað máttu vera með.

Svanhildur: Ég er til í það. Þó það verði ekki nema hvítvínsglas yfir góðum mat. Og já, verðum að sjá 2900 happiness á sunnudag, var að frétta soldið mega slúður þaðan..(lifi mig of mikið inní þetta, held að þetta sé alvöru fólk sko :-þ)

Nafnlaus sagði...

vá var búin að gleyma þessum 2009 happiness þáttum.. kannski eitthvað til að downloda núna!! man bara eftir fyrstu 2 þáttunum, greinilega eitthvað varið í þetta ef að þetta eru byrjaðir að vera vinir þínir eins og í Gray´s

Hlakka ótrúlega mikið til að hitta ykkur öll.. spurning hvort að breki fær sér rúnt á Grundarfjörð.. fer eftir hvort skólinn endanlega drekkji mér eða ekki.

Kv.
Brekamamma

Nafnlaus sagði...

Í Grundarfjörð.. í Grundarfjörð og í Grundarfjörð. Bara innsláttarvilla er með svo mikinn nálardofa í puttunum sko :)

Nafnlaus sagði...

ÆÆ...leiðinlegt að vera ekki með ykkur. Hlýtur að vera flottast þegar þrír ættliðir fara saman á jammið. Kveðjur frá ömmu Stínu

P.S. Hlakka til að sjá ykkur öll