12.9.08

Hressandi!

Föstudagar eru svo brenglaðir dagar í skólanum. Í það minnsta ef maður miðar við núverandi stundarskrá. Fyrstu tveir tímarnir eru lögfræði, eða Erhversret, er ekki viss hvernig þið viljið þýða það. Ég er búin að vera að að glósa allt sem kennarinn sagði og skrifaði niður. Gafst upp á því þegar að ein setningin var eingöngu með orðum sem ég skildi ekki.
Ég sit því hér og svitna núna. Hvort það er af áhyggjum af því að ég skilji þetta ekki eða útaf því að ég var að drekka hálfan líter af heitu kaffi og er í tveim peysum með trefil, veit ég ekki.
Kannski ég fái mér vatn.

Næstu tvo tímana er Erhversökonomi, veit heldur ekki hvernig þið viljið þýða það en það er ekki alveg uppáhaldsfagið mitt. Akkúrat af því það eru tölur involved.

3 verkefnaskil í næstu viku. Einnig mjög hressandi. Þýðir að ég þarf að lesa um 300 og eitthvað blaðsíður um helgina. Ásamt því að lesa fyrir önnur fög og eyða sunnudeginum í að grilla SS pylsur ofaní nýbúana hérna í Horsens.

Mér þykir ákaflega leiðinlegt að ég hafi ekki neitt annað að blogga um en skólann. En svona er þetta.
Gæti reyndar aldeilis sagt ykkur að ég er að koma til Íslands eftir minna en mánuð. Hlakka mikið til. Reunion hjá Byggingarfræðingunum. Ég og mamma sem sagt að fara saman með mönnunum okkar. Voða krúttlegt :)
Síða bara Grundó. Ætli ég reyni samt ekki að kíkja í bæinn líka.

Pleeh, nóg kómið af hangsi, sérstaklega pointless hangs því ég er bara e-ð að röfla. Setti inn fullt af myndum á Fésbókina. Veit ekki hvernig þetta virkar, held þið verðið að vera á Facebook til þess að geta séð. Svosem ekki mikið að sjá, það eru 4 manneskjur á þessum myndum. Ég, Jón Pétur, Sölkus og Kötlus. Áhugavert.

----

Update klukkan 13.05

Arna segir að þetta heiti Viðskiptalögfræði og Viðskiptahagfræði. Yndislegt.

P.S. Victoria í bekknum mínum sagði við mig áðan "Ej, Kristin! Du ser da rigtig død ud"!!! Fokkíng kaupmannahafnari. Spurning um að henda á sig andlitinu áður en maður mætir í skólann. Er fólk hætt að kunna meta au natural útlit..?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ frænka, stoltur af þér. Taktu skólann föstum tökum, fínt að sjá þig blogga bara um skólann, sýnir að hugurinn er á réttum stað.