Fallegir hlutir frá Iittala sem mig langar í (ég á afmæli í næstu viku). Ég er reyndar alveg Iittala sjúk, held ég hafi ekki séð hlut frá þessi merki sem mér finnst ekki flottur. Vildi stundum að ég væri að vinna í verksmiðjunni við að setja litla rauða miða á þessa dásamlegu hluti.


Kaffið getur bara ekki bragðast illa í svona múmínmömmubolla
Festivo stjakarnir eru bara fallegir. Tengdamamma mín á svona stjaka frá því hún byrjaði að búa fyrir "nokkrum" árum. Svo gaf hún mér minn fyrsta festivo stjaka núna um jólin. Er sko byrjuð að safna þeim núna :)
Alvar Aalto vasarnir eru ótrúlega fallegir. Túlípanar eru sérlega fallegir í svona vasa. Verst að ég á mjög erfitt með að ákveða mig hvernig lit ég vil
Flottur bakki, ég elska bakka
2 ummæli:
Djöf... er ég ánægð með þú sért að virkja þessa síðu aftur :) jey
luv, Svanhildur
Takk, verst bara að ég hef ekkert að skrifa um. Myndir af fallegum hlutum verða að duga þangað til ég fæ skrifgleðina ;)
Skrifa ummæli