Það má þakka fyrir að ég hafi munað passwordið hingað inn. En úr því mér tókst að skrá mig inn og í tilefni þess að það er tæpur kukkutími eftir af tuttugasta og fyrsta afmælisdeginum mínum held ég bara að ég hendi í eina færslu.
Ég er sem sagt alflutt heim og líkar vel í Grundó. Er mest í því að vera í fæðingarorlofi - barnlaus þó, en svo er ég líka búin að vera ð leysa af á dvalarheimilinu og í Lyfju svona þegar vantar. Það er nú bara líka nóg að gera, því ég er líka í skóla svo maður er líka eitthvað að rembast við að læra. Þegar ég er ekki að vinna eða læra þá þvæ ég þvott, baka og fer í ræktina (til að brenna skinkuhornunum og kanilsnúðunum).
Annars líður mér bara vel. Búin að eiga góðan tíma í Grundó, fíla það mjög vel að búa þarna - en held ég væri nú ekki þar ef að ég ætti ekki svona dásamlegan Grundfirskan kærasta (og nú geta þeir sem þola ekki væmni mega æla núna). :)
Þetta verður ekki lengra að sinni, ég er farin uppí rúm enda verður ræs hérna á Tryggvastöðum klukkan 0800 - hún Auður litla er víst ekki mikið fyrir að sofa út..
3 ummæli:
Til hamingju með afmælið gamla hehehe
Vonandi var dagurinn góður. JP hefur örugglega dekrað eitthvað við þig.
Svo verðum við að fara að plana annan hitting fljótlega.
kv birna sif
Heppin thú ad fá ad passa gullid okkar :o) Væmin og ekki væmin........einhvernvegin verda thessar stadreyndir ad fá ad koma út. Frábært ad thú er hamingjus+m í Grundarfirdi og enn betra ad thú eigir og sért ánægd med gaurinn sem thú valdir. Luvja :o)Mamman
held að þú sért að verða kona... ég ældi :) :)
kv.
Brekamamma
Skrifa ummæli