Ég er alltaf bara í skólanum og gengur ágætlega þar. Fyrir utan klikkaðan skólaleiða, en ég hlýt að koma mér uppúr því hvað á hverju, enda þvílíka verkefnafjallið að hellast á okkur á næstu vikum þannig að það er eins gott að takast á við það af fullum krafti.
Þetta blogg er eitthvað að dala. Íhuga að taka pásu.
Tvær myndir í lokin, Arnór Alex og Auður í Bumbó stólunum sem við Jón Pétur gáfum þeim í skírnargjöf. Svo sæt.
Myndirnar eru frá foreldrum þeirra :)


7 ummæli:
ég get ekki séð að nafn mitt hafi komið fram i þessari færslu. það er naumast að þér þykir merkilegt að ég hitti þig í DK í fyrsta skipti síðan þú fluttir þangað. hmm! en annars eru þessar rúsínur algjörar rúsínur=D
já rúsínur eru þau.......og svona áberandi ánægð í nýju Bumbustólunum sínum....sko alveg rífandi kát ;)
Mamman
Hahaha!
Já mamma, ég veit. Ég kunni ekki við að setja inn myndina þar sem Auður er grenjandi í honum.
En Kristínu fannst hann svo flottur að hún pínir barnið örugglega til að vera í honum :þ
Knús á þig frænka !!!
sko þig... þetta gastu... múahahaha... looooksins blogg...
þú ert samt eitthvað mis... ég er alltaf í mesta blogg stuðinu þegar ég hef minnstan tíma til þess ;)
það er eitthvað í loftinu held ég... það er búinn að vera svaðalegur mánudagur í fólki síðustu 10 daga... fólk er amk ýmisst hálf sofandi eða með mjög stuttan þráð á skrifstofunni minni þessa dagana... yes my self included... ehe ;)
kannski þurfum við bara að hrekja þessa vitleysu á burt með slatta af hvítvíni ;) vei
Þarft ekki að pína mig í hvítvínið, Svanhildur mín.
Ég er alveg að fara að blogga aftur - ofsa dugleg!
þú ert bloggheiminum til skammar! farðu að bloga!
Skrifa ummæli