10.5.05
Í skólanum mínum er mikið af tyrkjum og svoleiðis fólki, svosum þvælast ekkert fyrir mér eða neitt þannig, þau eru bara þarna eins og ég og allir hinir, en ég blanda næu ekki mikið geði við þau greyin.
Um daginn, einmitt daginn áður en að við fórum á "fucking þúfuna" þá vorum við eitthvað að slúðra og þá kom ein kjaftasagan að ein tyrkjastelpan hefði verið send til Kananda því að hún hefði fengið danskan kærasta og pabbi hennar og mamma voru alveg crazy, því að hún á náttúrulega bara að giftast öðrum tyrkja og bla bla.
Allavegana þá var ég alveg hrikalega forvitin og fór að pæla í hvaða stelpa þetta væri og svona. Þar sem að þetta er jú ekki sérstaklega stór skóli, þannig að maður kannast við alla. Anýhú, þá fór ég að pæla hver þetta væri, og fór að spurja fólk hver þetta væri. Svorin sem að ég fékk voru eitthvað á þessa leið að þetta væri stelpan þarna með síða svarta hárið og stóru brúnu augun..hengur alltaf með hinni stelpunni með svarta hárið og brúnu augun og stelpunni með slæðuna á hausnum. Uhh fékk ekki mikið útúr þessum svörum þar sem að ALLAR múslimastelpurnar eru með svart sítt hár og stór brún augu eða stór brún augu og slæðu. Jæja allavega þá hætti ég að velta mér uppúr þessu og pældi ekkert meira í þessu.
Svo var það í gær að ég sat inní B-klassen og var að gera billedeanalyse með Mínum bekk og B bekknum, þá alltí einu kemur ein stelpan inn og haldiði ekki bara að hún sé með þessa þvílíku bumbu og giftingarhring!!!
Já já, þá á hún bara mann og det hele! sæi mig í anda með barn, og hvað þá KALL...
en hún fór sem sagt ekki til kanada...
6.5.05
Á miðvikudaginn síðasta fór ég með öllum skólanum mínum í fjallgöngu. Eða það hélt ég.
Allavega, þá var ég mætt klukkan 08:10 uppí skóla með nesti og nýja skó (sko í alvöru) og var full eftirvæntingar eftir að fá að upplifa þessa fallegu og stórbrotnu náttúru sem að var búið að segja mér frá að væri á þessu svæði.
Og svo var lagt i'ann 3 rútur keyrðu þarna eitthvað útí buskann, keyrt var í ca klukkutíma og þá komum við að leiðarenda..að ég hélt. Neinei, þá tók bara við einhver bátur, OK við um borð og siglt af stað. ég bjóst við korteri í mesta lagi, en neinei, einn og hálfur tími takk fyrir góðan daginn sem að við máttum gjöra svo vel og dúsa í þessum bát.
LOKSINS eftir þessa skemmtilegu bátsferð þá stigum við útúr bátnum og ég batt á mig gönguskóna. Og allir stóðu í hring og peppuðu hvern annan upp og gerðu plan um hvar við ætluðum að hittast ef að við myndum tínast og þannig. Og svo var lagt af stað...
Löbbuðum í gott korter upp eina brekku sem að var alls ekki brött og svo komum við að nokkrum tröppum sem að voru svona um það bil 10 talsins. Þegar að við vorum á leiðinni upp tröppurnar þá spurði ég ótrúlega sakleysislega kennarann minn hvað það tæki nú langan tíma að labba uppá toppinn. Þá fékk ég það svar til baka að það væru ca 5 tröppur eftir og þá værum við komin. Já þá sprakk ég úr hlátri og spurði hana hvort að hún væri nú ekki að djóka. "nei" sagði hún og þegar að hún sleppti orðinu þá kom skilti sem sagði mér það að nú stæði ég á toppnum á HIMMELBJARGET!
Nú jæja fyrst maður var kominn þangað upp þá var nú alveg eins gott að rölta um og skoða staðinn og náttúruna og það allt. röltum 30 metra og þá vorum við búin að fara fram hjá 3 MINJAgripabúðum, 2 sjoppum, 1 ísbúð og 2 hótelum!!
Já allavega ef að þið farið einhverntíman á þessa hraðahindrun (eins og eg kýs að kalla það) þá mæli ég bara með því að sleppa þessari bátsferð og þessu rugli að LABBA uppá toppinn, heldur bara keyra í svona hálftíma frá Horsens og keyra bara uppá toppinn, því að það er HÆGT...
Skil ekki alveg þessa flóknu leið sem að þurfti að fara með okkur í.
En allavega þá er þetta saga fyrir blómapottinn minn, hún vildi endilega heyra hvernig var á Fucking þúfunni eins og ég kallaði þetta...já ekki bara þúfan heldur Fucking þúfan..mikilvægt að hafa fucking fyrir framan, því að ég er jú með eindæmum svo hardcore!!!
4.5.05
Það eru komnir átta dagar síðan að ég kom heim frá London og ég ekki búin að blogga.
Allavega þá er ég komin heilu á höldnu aftur til Danmerkur eftir þessa líka æðislegu Londonferð. Jæja í London uppgötvaði ég marga skemmtilega hluti, sá margt skemmtilegt og var náttúrulega með þessu líka skemmtilega fólki.
Græddi alveg slatta af dóti frá föður mínum, sem að þykir greinilega ekki leiðinlegt að versla föt. Ég kvarta nú ekki undan því, því að maður græðir allavega á meðan sá áhugi er hjá kallinum.
Svo fékk ég þennan líka svala Leddara (leðurjakki sko)
Allavega þá vil ég þakka fyrir mig og bið að heilsa ykkur Öllum...!
20.4.05
Eða næstum því, eftir tæpa tólf tíma verð ég í lestinni á leið til Lundúna að hitta blóðskylda og óblóðskylda ættingja. Það verður æði að hitta Pabba krabba og sindra eftir 4 mánaða aðskilnað, fráskilnað eða hvað þessi bölvaði skilnaður heitir nú. En það verður Frábært að hitta Almar, Gúu, Tómas orra, Ölmu Diljá og Fríðu Margréti, hef ekki hitt þau í 1 ár, hef reyndar aldrei hitt Minnstuna þeirra, en hún er svo lítil ennþá (held ég)
Allavega þá verður dagurinn tekin heldur betur snemma og það verður ræs á skutlunni klukkan 05:03 stundvíslega, svo að það verði nú hægt að þvo af sér skítinn, setja á sig andlitið, strauja hárið og velja föt. Trúið mér, þetta tekur sinn tíma. Nú svo verður lagt af stað út á lestarstöð klukkan 06:45 hoppað um borð í lestina klukkan 07:08, komið til Århus hovedbanegård klukkan 07:33, þá verður rölt af stað um Lestarstöðina og reynt að finna út hvaðan FLYbussen fer. FLYbussen leggur í'ann klukkan 08:20 og Svo er brunað af stað útá flugvöllinn og ég verð komin þangað klukkan ca 09:10 þá er það tjékk inn og svo bara bröttför til London klukkan 10:50, Lending í London er svo klukkan 11:40 að enskum tíma.
Já það er einsgott að mamma útbúi Madpakke fyrir mig, með Lu "heilsukexi" og eplasafa. Svo ætla ég að hafa með mér MP3 spilara, og nokkra texta sem að ég þarf að lesa fyrir prófin sem að eru í vændum. Nokkrir svona Danskir bókmenntatextar sem að eru ótrúlegt en satt mjög skemmtilegir. Eða allavega heita þeir skemmtilegum nöfnum eins og einn heitir "SEX" lofar góðu ha?
18.4.05
Já daman fékk bréf um það að hún væri komin inní "Versló" Þeirra danamanna félaga minna, svo að það verður í nógu að snúast á næsta ári. Byrja 10 ágúst, svo að ég myndi ekki vera að kvarta yfir stuttu sumarfríi við mig ef að ég væri þið, því að sumarfríið mitt byrjar formlega 17 júní og er búið 10 ágúst. Og ég tek það fram að það er svona 30 stiga hiti hérna í júní, júlí og ágúst...
En ég er annars bara nokkuð sátt við næstu mánuði, London eftir næstum 2 daga, leseferie, sidste skoledag, nokkur próf, Island, USA, Danmörk og nýr skóli...
Hlakka mjög mikið til að byrja í Nýja skólanum og læra svona danskt versló tal, hvernig ætli marmarmotta þýðist yfir á dönsku??
14.4.05
Jæja förum nú samt yfir "alla" hlutina sem að ég er búin að gera í þessari viku.
Á mánudagin átti nú litli bróðir minn hann Eyjólfur afmæli, og vaknaði greyið barnið (og ég) við þann falskasta afmælissöng sem að hefur verið sunginn í sögu afmælissöngsins, og fékk nokkra feita pakka með.
Um kvöldið bauð krútti litli okkur á Massí dónas, já hugsið nú hvað í Fjandanum það er, en það er McDonalds á eyjólfsmáli. Svo þegar að við komum hiem fengum við íslenskt nammi og það þarf nú ekki að segja neitt um það hvernig það var.
Tja meira gerði ég ekki í vikunni, nema að læra og svona leiðindi einhver.
Langar samt að taka saman hérna smá lista sem að sýnir það að ég þarfnast virkilega íslandsferðar, vegna þess að ég er að breytast í FKN Kristín með Pølse i munden (eða dana)
-Ég á Eastpak skólatösku
-Ég borðaði epli í strætó í vikunni
-Drakk Tuborg síðustu helgi
-Nenni ekki að skrifa sms á íslensku, bara dönsku
-Nenni ekki að tala íslensku
-Þekki munin á København dansk og jysk dansk (ikke?)
-Tala Jysk dansk og er þar af leiðandi í ruglinu
-Það er eitthvað að ske með dönskuna mína, eða orðaforðinn er eitthvað að bæta við sig, sem skýrir ruglið með að ég nenni ekki að tala íslensku.
-Ég Horfi á Beverly hills 90210, Rundfunk, Real life.log, top model 2005 og de fantastiske fem!
-Sat ein inní herbergi og bókstaflega GRÉT úr hlátri yfir Gintbergs store aften, og í þokkabót þá var Casper Christiansen í þættinum sem að gerði þetta ennþá verra. (en þetta var svo fyndið)
-Allir að losna við spangirnar og ekki ég, þvílíka svindlið! (langaði bara að setja þetta þarna, kemur ekkert þessum lista við svosem)
í lokin koma svo tvær myndir af litla prinsinum sem er orðinn 4 ára :)
10.4.05
Dönum sem smitast af kynsjúkdómum fjölgar stöðugt og segir yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Álaborg að klamydía sé orðin svo útbreidd í Danmörku að jaðri við faraldur. Segja heilbrigðisyfirvöld að látið geti nærri að tíundi hver danskur unglingur sé smitaður af klamydíu.
Frá þessu segir í blaðinu Nordjyske Stiftstidende en þar segir að dönsk yfirvöld áætli að allt að 50.000 ungir Danir séu með klamydíu. Tveir af hverjum þremur sem greinst hafa með smit eru konur.
Tove Højberg, yfirlæknir á sjúkrahúsinu í Álaborg, segir við blaðið að yfirleitt þurfi tvo til svo smit berist milli manna og því megi búast við að álíka margir karlar sem konur séu með klamydíu.
Klamydía er megin ástæða þess að dregið hefur úr frjósemi kvenna en erfitt er að kljást við þennan kynsjúkdóm þar sem sýktir átta sig oftast ekki á smitinu sem á þannig auðveldar með að berast milli manna.
Hlaut að vera..danskir unglingar eru eins og kanínur...
8.4.05
Mig vantar skoðun á hvernig Vans skó ég á að kaupa!
Ég vil náttúrulega bara eiga alla vans skóna í hieminum en það er víst ekki alveg hægt, þannig að ég er búin að þrengja valið frá 200 niður í þessa hér...
Þessir hérna koma til greina í svörtu og hvítu, Svörtu og rauðu og ég er ekki alveg viss með bleika litinn sko...
Annars er það sama snið nema bara svartir með rauðri hauskúpu, svartir með hvítri hauskúpu,hvítir með bleikri hauskúpu eða rauðir með svörtum stöfum sem stendur á einhverjir stafir, man ekki hvað stendur á þeim..
Ég veit ekki að svo stöddu hvað þetta mun endast lengi en við sjáum til. Þetta er ég að gera aðalega sökum þess að ég er gjörsamlega komin í marga hringi með að tala þessi tungumál mín, og á þessum tímapunkti hef ég tekið eftir miklum breytingum í málfari mínu.
Breytingar þessar lýsa sér aðalega með því að ég tala ranga íslensku, geri þónokkuð fleiri stafsetningarvillur en ég er vön og finnst .ægilegra að hugsa og skrifa á dönsku.
Ég vil ekki breytast í dana þannig að til að fyrirbyggja það að ég verði orðin dönsk eftir einhvern X tíma hef ég ákveðið að nota bloggið og æfa mig í að tala/skrifa rétta og góða íslensku...
Æji skítt með þetta...
Ég er hvort sem er orðin svo döns í mér að það er ekki alveg normalt...
7.4.05
3.4.05
31.3.05
14.3.05
Það var á þessum degi fyrir 17 árum, klukkan 12:14 á hádegi að foreldrar mínir fengu fallegasta barn sem að það höfðu á ævi sinni séð í fangið. Þetta var alveg undurfagurt barn, með mikið castaníubrúnt hár og stór blá augu.
Núna er Þetta barn orðið 17 ára og foreldrarnir bara gamlir, kannski ungir í anda..
Já fólk, ég á afmæli í dag! Det er min fødselsdag i dag! It´s my Birthday today! Kann ekki fleiri tungumál.
En langaði bara að segja takk fyrir allar kveðjurnar og gjafirnar!
Ég er farin að bíða eftir ADAM mínum...
9.3.05
Ég sem að hélt að ég væri búin að jafna mig á gelgjunni, og komin yfir í það að finna út hver ég væri og svoleiðis. Var meira að segja búin að finna út að ég var orðinn þessi líka fíni rokkari, föður mínum til mikillar ánægju.
En nei, greinilega ekki því að ég er komin aftur útí píkupoppið og boyböndin, sem að minnir mig óneitanlega á 6-9bekk.
Hjálp!
Það sem að er inná Mp3 spilaranum núna er meðal annars:
Nik og Jay
Boys II men
98 degrees
Backstreetboys
Tænder på dig-Danska eurovision lagid (okay, það er kannski vegna þess að gaurinn er sætur)
Luna park-sem tóku þátt í undankeppninni fyrir eurovision. Garg, Þeir eru bara ungir og já.
Jæja þetta er svona það væmnasta, en svo er líka:
Maroon 5
Jeff Buckley
Scissor sisters
Öll lögin úr Shrek 2
Annars er allt gott að frétta af mér.
Ég er ekki hátt á vinsældarlistanum hjá mínu fólki þessa dagana. Ég verð nefninlega bara í viku á íslandi í sumar. Var að fá vinnu, ekki á íslandi og ekki í Danmörku, heldur í USA. Verð þar að passa og hjálpa til inná heimili hjá íslenskri konu og Amerískum manni hennar. Hún er að fara að eignast barn tvem vikum áður en að ég kem svo að henni vantar svona stelpu sem að getur létt aðeins undir með henni. Þetta er rosa fínt, góð laun, góður staður og ég er rosalega ánægð með þetta.
Ég er reyndar alveg hrikaleg flökkukind núna þessa dagana. Er að fara eftir viku til Gumma frænda í Frankfurt að hjálpa honum að kaupa sér húsgögn og eitthvað svoleiðis í nýja húsið. Það verður örugglega mjög gaman að fara þangað, byrja páskafríið á að vera með stóra apakettinum mínum.
Svo í lok apríl er ég að fara til London með Pabba. Eða við ætlum að hittast þar, æji það verður æði, bara verst að salka kemur ekki með.
Jæja Ég er svo alveg að verða 17 ára. Jiminneini hvað maður er að verða gamall! Á afmæli á mánudaginn, svo að það verður líklega haldið uppá það eitthvað þegar að Linda kemur til mín í páskafríinu.
Shahad á afmæli á morgun, 10 mars, svo að ég óska henni til hamingju með það!
Eða held að það virki betur að segja Tillykke!
6.3.05
Held að núna gæti verið komið að því að ég ætti að fara að druslast út að reyna að finna mér eitthvað mannsefni. Það er greinilega að fara í taugarnar á fólki að ég skuli vera að verða 17 ára og ekki "gengin út"!
Af hverju er þetta að trufla fólk eitthvað?
Ég hef ekki áhuga á því að vera 17 ára og í einhverju voða sambandi. Allavega er það ekki á planinu en ef að Adam eða einhver álíka kemur til mín þá er ég tilbúin í að skoða málið´.
Annars er móðir mín alveg búin að planleggja hver er draumaprinsinn minn, og heimtar að fá hann fyrir tengdason daginn út og daginn inn, sjáum hvað setur mamma mín...
Annars er fínt að frétta af mér.
Held meira að segja bara ekkert meira heldur en þetta kærastaleysi mitt.
Blogga aftur seinna. Og þið þarna sem að eruð að reyna að koma mér saman við einhverja danska gaura: It's not gonna happen!
12.2.05
ja nemlig ja!
For helvede Fucking pisse lort din luder gris idot! Og líka Fúff for satans!
Það er gaman að segja þetta þegar að maður er útlendingur og það er alveg þogn í bekknum! Prófaði það um dagin og fékk mjög góð viðbrogð, ja kannski ekki samt frá kennaranum sem að þessu var beint til (eða horfði á síman minn þegar að ég sagði þetta en ég meinti þetta með hjartanu til kennarans!) En krakkarnir segja að núna kunni ég donsku, og ég megi alveg koma með svona fallega blöndu af blótsyrðum aftur, eða góðu orðunum eins og þau orðuðu það!
Allavega ætti ég kannski að segja ykkur hvað þessi LORTA kennari sagði við mig á fimmtudaginn, helvítis rastista kelling!! Til að þið skiljið pointið í sögunni þá ætla ég að koma með svo aðdraganda svo þið skiljið hvað þessi *píp* er *píp*miklil *píp*
En skrifa soguna á morgun, er þreytt, var að koma af djamminu og klukkan er orðin 4, svo að ég er að fara í spinning klukkan 11 í fyrramálið svo að ég er farin að sofa!
8.2.05
Já ég er búin að komast að því að það er ekki sérlega sniðugt að blogga þegar að maður er svona þreyttur. Allavega í dag þegar að ég kíkti á síðuna mína þá varð ég voða hissa, og hélt að einhver hefði komist inná svæðið mitt og bloggað. En svo fattaði ég að ég hafði gert það sjálf í einhverju móki, og ekki munað eftir því daginn eftir. Skiljanlega því að 5 min eftir að ég bloggaði þá lá ég steinsofandi uppí rúmi.
|
7.2.05
Fór í dag og vígði kortið mitt, og tók brennslu, lyfti og fór í Maga, rass og læri tíma. Og OH MY DOG! hvað ég er með miklar harðsperrur, þetta eru eiginlega ekki harðsperrur heldur bara verkir. En það stoppar mig ekkert, og ég mæti á á morgun aftur.
Shahad vinkona mín er sko með mér, og við erum að fara á miðvikudaginn að tala við einkaþjálfara og han ætlar að gera prógrömm fyrir okkur, svona persónulegt prógram. svona hvaða vöðva við eigum að styrkja og eitthvað. Svo er ég nátturulega með minn persónulega þjálfara, einhver íslendingur sem að mamma fann í skólanum sínum, gaurinn er menntaður einkaþjálfari og sagði að hann myndi vera einkaþjálfarinn minn ef að ég talaði bara Dönsku við hann. Því að ég er náttúrulega snillingur í þessu kartöflutúngumáli..HUH
En eg held að ég sé bara farin að bulla nuna, og er heldur ekki að getað skrifað vegna verkja í hondunum (þetta sínir bara formið sem að ég er í ;))
Æji ég skrifa meira seinna, verð að fara uppí rúm.
Og gleðilegan BOLLE-dag, ég fékk reyndar engar rjómabollur, en einhver Bölvuð tófa sem ég kannast lítilega við stakk uppá að ég myndi bara mjóða einhverjum gaurum heim í Bollur...
(sumir fatta þetta síðasta:))
Flettiði Bolle upp í orðabók, þá fattiði hvað ég á við.
23.1.05
Thetta var looong fæding, og mjog erfid. Verkirnir byrjudu a fostudaginn fyrir viku, og frumburdurinn var ekki fæddur fyrr en a fimmtudaginn klukkan 14.00 og mikid urdu foreldrarnir gladir. En mikid var samt otrulega skemmtilegt ad bua hann til, thratt fyrir blod svita og tar. (og af gefnu tilefni vil eg taka fram ad frumburdurinn er stuttmynd, svo ad thad verdi enginn misskilningur)
En nog tal um frumburdinn, madur er bara einn eftir i baunalandi, og that er verd eg ad segja midur skemmtilegt. Restin af hjordinni for til islands a fimmtudaginn, og eg sakna eiginlega ad koma heim og allt a fullu, Frodi kemur hlaupandi til manns adur en madur kemst innur dyrunum, mamma ad brjota saman thvott eda eitthvad alika, madur fer ad rifast i ungunum um TV-id eda bara eitthvad tilfallandi. Nuna kemur madur bara heima og allt hljott, og thad passar sko ekki vid mitt hus, thad er alltaf einhver heima thegar ad madur kemur heim ur skolanum. En nuna fær madur ad kynnast thvi fyrir alvoru ad vera fatækur namsmadur i utlondum. Modirin skyldi mig eftir med x haa upphæd fyrir mat, skemmtunum og neydartilfellum, thannig ad eg for a laugardaginn i bilka og versladi, A TILBODI!! Og eiginlega thad eina sem ad var a tilbodi var grænmeti, svo ad eg keypti fullt af thvi, svo poppmais, og eina jogurt. Fer svo ad versla aftur a moegun eda eitthvad. Svo var eg ad spara strætokortid mitt(er med klippikort, en ekki svona passa.) Svo ad eg labbadi fra Bilka til Stensballe, og thad eru um thad bil 8km.
En eg var veik i thokkabot, med sma hita, flokurleika, kvef daudans og hofudverk. Thegar ad eg kom heim var eg nær dauda en lifi og gat ekki hugsad mer ad fara ut ad djamma svo ad eg var heima, pantadi pizzu, drakk pepsi max og horfdi a nokrar danskar myndir.
Mjog kosy bara.
En eg get svo svarid fyrir thad ad eg er ordin hrædilega donsk i mer. nuna sidan ad mamma for tha er eg bara buin ad tala islensku i 55 minotur af 4 dogum. og eiginlega ekki buin ad heyra neitt annad en donsku. thvi ad eg tala nottla bara donsku i skolanum, svo kem eg heim og er bara eitthvad ad gera ritgerdina mina A donsku, og svo fer eg i mat til christine, søren og strakana, og thau eru donsk eins og nofnin gefa til kynna svo ad thad er bara tolud danska thar a bæ.
Svo kem eg liklega ekkert til islands fyrr en i sumar, ef ad eg kem tha i sumar. held samt ad eg lifi ekki svona langan tima af an thess ad hitta alla, Solku og bara alla;)
Jaa, nu ligg eg uppi rumi i Spongebob squarepants boxerunum og hlirabol, med fartolvuna ona mer og er ad blogga. thihihi thad er svo gaman ad vera eg nuna...
18.1.05
Ég er farin að halda að ég sé eitthvað klikkuð. Alltaf bloggandi bara, einhver ritræpa á minni sko. Eníveis þá var þetta bara mjög góður dagur hjá mér í dag. Eða svona þannig lagað. Fór í skólann klukkan átta í morgun og hélt að ég myndi deyja fyrstu tvo tímana eða svo, því að kennarinn byrjaði bara að blaðra og blaðra um háskóla og eitthvað crap. Meðaleinkunina ef að maður ætlaði að fara að læra Pædego í Álaborg, sem er BTW 9,3.En hins vegar ef að þú ætlar að læra það sama í Árhus verður maður að hafa 7,5 - Svona bara svo að þið vitið það ef að þið ætlið að fara að læra Pædego.
Svo sagði hún þegar að hún var búin að blaðra um þetta í tvo tíma: jeh, men det var bare lidt saadan go´morgen til jer! - Jáh einmitt...
Svo um 11 leytið þá fórum við Trine, Shahad og Lulu að taka upp stuttmyndina okkar. Reyndar var það svolið mikið strætóferðir útum allt, en samt mjög gaman. Okkur tókst að gera myndina en það tók okkur líka hálfann daginn að gera hana, þvi að við hlógum svo mikið.
Við Trine komumst samt að mjög skemmtilegri niðurstöðu í dag. Ég var eitthvað að spurja Shahad um hvort að hún væri múslimi (hún er frá íran) En hún er það ekki, hún er kristin. Svo fórum við Trine að segja að við tryðum eiginlega ekki á Guð og jesús, og þá komum við með þessar líka brilliant kenningar.
-Jomfru Maria/maría mey hún hélt framhjá jósef með Guði, eða hún hélt ekki beint framhjá, en hún bar samt barn annars mans undir belti , og það telst jú til framhjáhalds.
-Jesús og allir hans lærisveinar voru alltaf Pisse-stiv
-hann var alltaf að breyta vatni í vín og þar fram eftir götunum svo að við höldum að hann hafi verið virkur alkahólisti.
-Þess vegna hefur hann bara verið á einhverju sírutrippi með lærissveinunum þegar að hann labbaði á vatninu. þá hefur hann og lærisveinarnir bara verið svo fullir og eiinhver hefur sagt, ji sjáiði, jesús labbar á vatninu...
Ja þetta eru okkar kenningar, þær voru fleiri en ég man ekki allar í augnablikinu. Annars þá trúi ég eiginlega ekki á þetta stuff., trúi bara á það góða í manninum. Og finnst að börn ættu ekki að fermast fyrr en um 16-17ára. ég allavega var svo lítil og vitlaus að ég gerði bara eins og allir hinir. Ef að þetta val hefði verið sett fyrir mig núna þá myndi eg pottþétt ekki fermast. Held að börn nú til dags velji þetta bara útaf gjöfunum.
Ég ætla heldur ekki að skíra börnin mín, bara að nefna þau og þau geta svo sjálf ákveðið þegar að þau verða stærri hvort að þau vilji skíra sig, eða ferma. Ég vil sko ekki taka svona ákvarðanir fyrir þau.
Allavega nóg um það.
Þá núna senni partinn þá komu Sören og Kristine með strákana í heimsókn. Eyjólfur og Marcus léku sér saman og ég og Viliam lékum okkur saman;) Svo ákváðum við að borða saman og svona, voða hygge í gangi...
17.1.05
Nei plís ekki fara, þetta er bara úr lagi með Sahara Hotnights, sem að eru BTW aðalmálið núna.
Ahh þær eru ædolin mín eða eitthvað, það verður sko seint tekið af þeim coolið. Þetta er sko Sænskt STELPU-rokkband. Þær gera allt sjálfar, ekki bara eins og VÆLON eða ÆLON eða hvað þetta smápíkuband á ísland heitir. Sahara hotnigts þær spila meira að segja á öll hljóðfærin sjálfar.Geggjað COOLAÐAR píur.
Annars er allt gott að frétta, ég fer alltaf í þennan skemmtilega skóla minn og fyllist lífsgleði á að vera þar...eða ekki. Alveg komin með feitasta leiða á þessum ÓGEÐSLEGA LEIÐINLEGA skóla. En maður verður víst að klára. Það eina sem að er að halda mér í þessum skóla er að það eru ágætlega skemmtilegar og ruglaðar stelpur þar, eða allavega í mínum bekk. Og svo nottla íslendingarnir, sem að eru svossem í lagi;)
Jámm held að við segjum þetta bara gott af´bloggi í bili, og ég fari að gera eitthvað að viti.
COOLISTAR!!!!
12.1.05
Eníveis lets start the blogg:)
Eldsnemma um morgunin 18 desember var lagt í hann útá lestarstöð með fulla tösku af jólagjöfum og Mp3 spilarann til köben að hitta Ingu Rós serm var þar í shopping túr með foreldrum sínum, litla bróður og vinafólki. Ég ákvað að slást í hópinn þar sem að ég var hvort eð er á leið til Íslands með sama flugi og þau á sunnudagskvoldið, og alngaði að vera með ingu minni að versla og nennti ekki að gista einhverstaðar inná einhverju af þessu fólki sem ég þekki í köben.
En þetta var bara gaman og við versluðum soldið, bæði í Fields og á strikinu. Svo á Laugardagskvöldinu var skellt sér í tívolí, Jólatívolí. Það var ekkert smá gaman þótt að það hefði verið snjókoma og flest tækin lokuð. en við gerðum bara gott úr því og fórum í hringegjurnar og svona, og já töluðum við einhverja gaura sem að voru þarna og svona. Og reyndum að fatta af hverju Danirnir urðu svona skrýtnir þegar að snjórinn kom (allavega ég, inga skildi ekki hvað þeir sögðu:) hehe djók) En þeir voru eins og þeir hefðu barasta aldrei séð snjó áður.
Eftir umþað bil 3 to go (heitt kako í götumáli) fórum við að borða á geggjað góðum stað sem að heitir The Poul, því að Inga átti afmæli. Og að því tilefni fengum við kampavín og svona skemmtileg heit. Mjög Góður matur líka, við inga fengum okkur humar og graskerssúpu, rosa gott.
Svo á sunnudeginum var nú bara farið í búðir og flippað eitthvað á strikinu, sem var mjöög gaman. Um kvoldið var svo bara flogið heim, og það var náttúrulega seinkun eins og venjulega, því að einhver sigríður sem að var nbúin að tjekka sig inn í flugið, kom bara ekki og eitthvða vesen.
En við komumst heim í snjóinn á íslandi á endanum, þó að það hafi verið aðeins of seint að mínu mati. Og þá fékk ég að sjá sölkuna mína, sem er orðin svo stór og farin að tala svo mikið, ohh hún er algjört æði þetta barn! "klistín amla stóla systir" og svo segir hún "sakka er klútt og dúllurass" jæja egóið er allavega í lagi hjá henni, en þetta er reyndar satt sem hún segir.
Allavega þá voru svo jólin góð og áramótin líka. ég fékk auðvitað mín tíu tonn af jólagjöfum, og er mjög sátt bara, enda ekki annað hægt.
Það er of mikið að skrifa um allt sem að ég gerði á íslandi fir jólin, en það er mjöög mikið, hringiði bara í mig ef að þið viljið vita meira um dvöl mína á íslandi.
Hápunktur ferðarinnar (og ársins held ég bara) Gerðist samt þegar að ég var á Chillinu niðrí vinnu hjá pabba og það var áramóta þáttur hjá þeim í kastljósinu. Og ég var þarna eitthvað að glugga í séð og heyrt og spjalla við eitthvað fólk þegar að Idolið mitt birtist bara eins og þruma úr heiskýru lofti. Sjálfur meistari Múgison bara mætti á svæðið, og ég get svo svarið fyrir það að ég kikknaði í hnjáliðunum þegar að ég sá hann. Svo sætur er hann, og þvílíki hæfileikinn sem að þessi drengur hefur, jeminn eini, í hvert skipti sem að maður hlustar á hann þá fyllist maður svo miklu þjóðarstolti að maður veit ekki hvert maður ætlar. Allavega ég! Þessi drengur á pottþétt eftir að meika það á erlendri grundu.
Annars þá fór ég til baka til DK 6 jan, og þar beið mín skemmtilegur jólapakki, Sjálfur Fróði litli. Sem að er 9 vikna Beagle hvolpur. Ekkert smá sætur og góður. Gott að fá svona yndislega veru uppí hendurnar eftir frekar erfiðan tíma...
Allavega þá á þessi hvolpur sko hug og hjarta okkar allra, og sérstaklega mömmu held ég bara, þetta er búið að vera draumur hennar mömmu að fá svona hvolp síðan að hún sá hvolpin hennar katrínar sem að var með mér í bekk. En Já ég er alveg veik líka fyrir honum, og þykir rosa gaman að vera að standa í svona hundastússi.
Jæja held að það sé ekki mikið meira til að segja ykkur í bili. Það eru myndir af Fróða
Hérna
Og svo er mamma með blogg, ef að þið viljið vita öll fjölskyldu leyndarmálin og beuty leyndarmálin okkar:) það er
hérna
Annars held ég að það sé kannski kominn tími til að kynna ykkur fyrir Karlmanninum í mínu lífi, þar sem að það gegnur eiginlega ekki að halda þessu leyndu lengur. Þannig að mamma og pabbi, hérna er mynd af honum, ég veit að þið eruð búin að bíða spennt eftir að fá að sjá hann. Vessgú!
31.12.04
22.12.04
Þá er ég skriðin yfir á klakan, lennti hér heilu á höldnu aðfaranótt mánudags. Eftir ansi skrautlega en SKEMMTILEGA köben ferð með Ingu Rós!
14.12.04
Óskalisti!
En ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar nema tvær, en klára það á morgun eða fimmtud. reyndar fer fimmtudagurinn í að pakka niður, því að föstudagurinn fer í einhverja vitleysu eins og að sofa eins mikið og ég get og party..thss ætti held ég frekar að vera heima og lesa pollíönnu...
1) Ipod eða Ipod mini,lífsnauðsyn fyrir mig. Þar sem að ég er tónlistarfíkill og er líka búin að klára plássið á tölvunni minni með tónlistinni sem að ég Downloada. Þess vegna er Ipodinn lífsnauðsin því að hann tekur um 10.000 lög inná sig, en Ipod mini um 1000 lög. sem er mjöög gott. (Ipod mini kemur í 5 rosalega flottum litum)
2)fyrir fólk með skódellu á haú stigi er þetta mjög sniðug gjöf. Og þar sem að ég er skósjúklingur þá langar mig að sjálfsögðu í skó í jólagjöf...
3)snyrtidót. Held að það skýri sig bara sjálft, ég get ekki litðið út eins og kjáni í kringum alla þessa myndarlegu, Søreni, kaspera og Rasmusa...
4)Einhver mjöög djúsí náttföt til að chilla í á íslandi í kuldanum...
5)Ugg boots er líka nauðsyn í vetur, og já þetta eru stígvél sem að ganga við allt, og eru GEGGJAÐ mjúk og æðisleg. Salka á einmitt eitt par af þessum skóm og Oprah winfrey líka:)
6)boxers strákanærbuxur til að sofa í...BARA þægilegt
7)Friends..Auðvitað!
8)Tónlist í hvaða formi sem er..bara góða tónlist. that´s my pachion!
9)Eyrnalokkar og eitthvað svoleiðis dúllerí, eða fylgihlutir...
10)Einhvern geggjaðan bol, með flottri mynd eða setningu. eins og bolirnir úr nonnabúð, Dogma og ósoma...
Okei, þetta er svona það helsta..og mig langar í miklu meira. En annars þá er þetta ekki topp tíu listinn,heldur bara raðað niður af handahófi. Fyrir utan Ipodinn, sem er NR EITT!!!!!
11.12.04
Það er allt rosa gott að frétta frá mér, ég byrjaði í nýjum bekk á mánudaginn og er núna með Pernille í bekk. Sem er mjog fínt bara. Reyndar var ég orðin mjog þreytt í endann á vikunni, eftir að hafa talað dönsku nánast stanslaust síðan á föstudaginn í síðustu viku, og það er bara of mikið fyrir mig.
Annars er fátt sem að kemst að í hausnum á mér núna þessa dagana fyrir utan það að ég og Inga Rós erum að fara að hittast í Köben eftir eina viku! Ég er alveg að farast ég hlakka svoooo mikið til. Við erum að fara að versla og hygge os. Svo fljúgum við saman heim til íslands næsta sunnudagskvold. það verður æðislegt hjá okkur.
Svo á sunnudagskvoldið fæ ég að sjá Pabba gamla og Birnu og Sindra og svo Auðvitað aðal skvísuna, hana Sölku.Ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa hana í kremju..!!!
2.12.04
Annars er allt gott að frétta ég er að fara að hitta ingu mína eftir rúmlega tvær vikur, og shiiit hvað ég hlakka til! Þá verður allt gert vitlaust í Köben maður, og í flugvélinni á leiðinni heim.
Svo kemur Pernille og Joinar á klakann 28 des og verður á áramótunum. og fer svo aftur heim með mér 5 janúar, það verður bara gott að hafa ferðafélaga báðar leiðirnar til og frá DK, og auðvitað gaman að fara til íslands og hitta alla og svo að fá að vera svona GUIDE um landið(höfuðborgarsvæðið)
En jólin eru að koma og ég bara komin í þetta fína jólaskap, en það veðrur líklega ekki neitt að alvöru fyrr en maður kemur heim í kuldann á íslandi.
Talandi um jólin, þá svona smá fyrir þá sem að vilja fá jólagjöf frá mér, þeir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við mig, svo að ég geti gefið þeim upp reikningsnr og kennitölu. Svo að þeir sömu geti lagt inná mig pening, svo að ég geti keypt jólagjafirnar. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég er fátækur námsmaður í Útlöndum sem hefur ekki efni á jólagjöfum.
en ég er farin. blessbless
En í lokin kemur ein yndisleg mynd...
óóóó, hvað ég sakna hennar litlu sistur mikið!
29.11.04
jeg håber bare at I kan godt forstå hvad jeg skriver, men hvis I ikke gør, kan I bare skrive det i "komments"
Aníhú, så var weekenden fin, altså meget rolig. Eller måske ikke fredag. Fordi at der var låra og jeg på Paddys. Det var jo herre sjovt men det var jo en fejl, at låra ikke kunne danse, og jeg savnede DING. Så jeg tror at jeg kom hjem ved 02:00 tiden.
I lørdags lavede jeg ikke en skid, fordi at jeg var så doven at jeg lå i min seng hele dagen og så fjernsyn. Om aftenen var jeg så pisse træt at jeg bare blev hjemme og hyggede mig, mor og far var til fest hos vores venner så det var jeg og de små som var hjemme.
I søndags var jeg også doven, og jeg havde fucking hovedpine og sådan noget.
Nu tror jeg ikke at jeg har mere at sige, så jeg smutter..HEJ
21.11.04
Þetta er dúkkan sem að allar litlarstelpur hafa verið að bíða eftir í ofvænni rosa lengi, og svo kemur bara þetta FREAK. Meira að segja Bratz dúkkurnar eru fallegri en þetta, og ekki eru þær nú sætar.
Mér finnst þetta bara móguð við Birgittu, því að hún er svo ótrúlega sæt stelpa, og maður sá að hún var ekkert alltof hrifin afþessu.
Greyið stelpan að það sé verið að líkja þessu við hana!
19.11.04
Fór til Tannlæknis á miðvikudaginn og það var skorið fullt í munnin á mér og eitthvað vesen. Og svo var saumað fyrir, frekar ógeðslegt að vera með sauma í munninum en það er annað mál.
Var með mikla verki á Miðvikudaginn og fimmtudaginn, allt stokkbólgið og svona huggulegt. Og svo í morgun þegar að ég vaknaði var allt orðið miklu meira bólgnara og ég hélt að það hefði rifnað upp saumarnir eða eitthvað, því að þetta var svo ógeðslega vont. Hringdi í lækninn minn og hann sagði mér að koma við hjá sér áður en ég færi í skólann, sem ég gerði. þá er bólgan orðin svo mikil að hún er farin að þrýsta á framtennurnar, og ég var send heim með 600 mg íbúprófín. Og sagt að ég ætti ekki að fara í skólan, og bara fara heim að sofa...
Núna verð ég að vera heima í dag og láta mér leiðast, ég er reyndar að bíða eftir því að fá spólu senda frá íslandi, með 70min frá Miðvikudeginum, þar sem að pabbi minn var víst eitthvað að gera sig að fífli fyrir framan alþjóð. Ég allavega hlakka til að sjá þetta...
16.11.04
Allavega þá kom hann með ógeðslega góðan punkt. Hann var að tala um að hann skildi ekki afhverju múslimskar konur þyrftu að hafa þessar blæjur, það væri bara eins og að mála flott málverk og hylja það svo. (tek það fram aftur að þessi gaur er frá íran og var/er múslimskur)
Og svo kom han með annan MJÖG góðan punkt! hann var að tala um hvað það væri asnalegt að ef að maður væri með hæfileika til að gera eitthvað, en mætti það ekki vegna trúarbragðana, að þá ætti maður bara að horfa til Himins og segja: FUCK DIG!! og fara svo bara að gera það sem að maður ætlar sér, ekki láta trúarbrögð stoppa sig.(er auðvitað að tala um góða hluti)
Maður á að nota hæfileikana sem að maður fær!
10.11.04
8.11.04
jæja á Föstudaginn þá fór Jakob litli til íslands aftur og það finnst mér ekki skemmtileg, en hann kemur líklega aftur í Des, svo að ég ætti að lifa þetta af. Ég hef Láru og fleira ruglað fólk til að skemmta mér með.
Anýhú, þá fór ég svo til Láru eftir skóla, og við vorum eitthvað að spassast með Foldu og hundinum. Um kvoldið gerði Lára svo heiðarlega tilraun til að fylla mig, en það tókst ekki..(haha henni tekst það aldrei þegar hún reynir það) Endaði með að hún drakk einhverja 5 bjóra eða eitthvað fyrir mat, en sagði svo að ég hefði drukkið þá með sér..sem er ekki satt!
Kvoldið varð samt mjog skemmtilegt, Lára fór svo með Mette á eitthvað ball og ég og Folda fórum í Heimsókn til Jóa og Kristjönu.
Laugardaginn vaknaði ég svo um 11 leytið og fór að taka til, og lá svo uppí rúmi og dottaði yfir Robinson allan daginn. Svo um kvoldið þá fór ég að hitta strákana heima hjá Almari, og við löbbuðum svo á íslendingaballið og vorum þar alveg til 4 og skemmtum okkur sko rosalega vel..Allavega ég.
Sunnudagurinn fór í eitthvað rugl, Lára kom til mín og við lágum undir sæng og Horfðum á Miss Match og FRIENDS allan daginn.
Svo seint um kvoldið var svo farið bara að ná í Ömmu og Afa niðrá lestarstöð og svona, Þau komu aðvitað með fullar hendur af íslenskum mat og stuffi..líka 70min 3 og Nýjasta nylon diskinn! ÉG HATA NYLON...
3.11.04
Í morgun fékk ég mína sönnun fyrir því að það verður ekki bundið endi á nein stríð næstu fjögur árin. Þ.E. á meðan að Bush verður áfram við völd í Bandaríkjunum.
Ég er svo hneyksluð á Bandaríkjamönnum að kjósa bush aftur, þegar að stendur svo miklu hæfari maður í þetta starf við hlið hans. Bush er það versta sem hefur komið fyrir bandaríkin í MÖRG ár.
Og svona til að toppa þetta þá segir Davíð Oddsson að endurkjör Bush komi sér vel fyrir íslendinga! þá held ég bara að ég ætli að sækja um danskann ríkisborgararétt....
1.11.04
24.10.04
Já við jakob gerum marga skemmtilega hluti saman og svona. en jakob ætlar að vera erfiður einn og flytja til íslands í nóvember og skilja mig eina eftir hérna með einhverjum kolklikkuðum dönum og bandbrjáluðum íslendingum!
Fallegi félaginn sko, að beila á mér..núna verð ég víst bara að vera ein inn í horsens!!!!!!!!
15.10.04
Mér finnst þetta verkfall svo mikið rugl. En samt ekki, rosa skrýtið að það sé ekki hægt að borga kennurum meira, mér finnst þetta illa launuð og vanmetin stétt. Ég meina hvenrig getur fólk verið að segja að kennarar séu alltaf að kvarta og fái alveg nógu mikil laun?? Ég skil það ekki. Fólk heldur að kennarar vinni ekki mínótu meira en börnin eru í skólanum, en sú er sko ekki raunin. Kennarar þurfa að undirbúa hverja kennslustund fyrir sig, og eru að vinna á STARFSDÖGUNUM, og fleira sem að ég nenni ekki að telja upp.
Kennarar eru heldur ekki í sumarfríi allan tíman sem að nemendurnir eru í fríi, síður en svo.
Æji þetta pirrar mig svo hræðilega, Fólk hugsar ekki dæmið til enda. Ef að Kennarastéttin heldur áfram að vera svona illa Launuð, þá nennir enginn að mennta sig í 3, 4 eða fleiri ár til að verða kennari. Þar af leiðandi fáum við Lítið sem ekkert menntað fólk í kennarastöðurnar, og þá auðvitað fáum við verr menntað fólk útá vinnumarkaðinn í framtíðinni. ÞEssvegna er mikilvægt að fólk gleymi ekki að kennarar eru þannig séð lykillinn að framtíð Íslands. Auðvitað eru það við börnin sem að erum aðal lykillinn, en ef að við fáum ekki ekki góða kennara verður menntun okkar ekki uppá marga fiska og þar af leiðandi hrinur þjóðfélagið, því að við fáum verr menntað fólk í vinnu, ekki satt?
13.10.04
Ekkert alvarlegt, en ég held að það sé vegna þess að mig langi í síða hárið mitt aftur. Varla mikið hægt að gera í því, nema bara bíða og taka b-vítamín.
En alltaf gaman að breyta til, ég get reyndar huggað mig við það að hárið mitt vex mjög hratt, þannig að það tekur svona ár fyrir mig að fá það aftur eins og það var.
Ég veit samt ekki afhverju ég er að kvarta yfir þessu, langaði bara eitthvað að kvarta.
Æji ég er farin að hlusta aftur á Radiohead...
11.10.04
Vá ég er búin að byrja á þessu Bloggi svona 3 sinnum, svo að ég er að hugsa um að vera ekkert að leggja mikla hugsun í þetta innlegg.
Bara svona nokkrar línur svo að fólkið í DK viti að ég sé á lífi og svona. Veit að það eru allir á Bömmer yfir því að ég er ekki þar núna til að djamma með í vetrarfríinu, en ég og Lára ætlum að djamma á sunnudaginn í næstu viku til að bæta þetta upp, en samt er skóli daginn eftir, but who cares?!?! Við erum svo miklar Hardcore gellur sko...
Anýhú, þá skruppum ég og Inga rós á djammið í gær, Linda hélt þetta líka svakalega partý, og ég og Inga Rós mættum Gallvaskar á slaginu hálf níu, þá voru nú flestir komnir bara, en stuðið byrjaði ekki fyrr en að við komum. Allavega þá gerðist margt skemmtilegt og sniðugt í þessu patrýi og kom ég ekki heim fyrr en klukkan 5 í nótt. MJÖG GAMAN
Svo í Dag var ég að "uppfarta" í afmæli hjá frænku minni, hún varð sextug. Mjög gaman, ég var bara að labba um að hella áfengi í glösin hjá fólkinu og svona.
Í kvold var svo bara matarboð hjá Dúddu og Braga(foreldrum birnu) og ég, pabbi, salka og Sindri fórum þangað og hittum fullt af fólki, rosalega gaman að hitta alla aftur.
núna var ég svo að koma heim frá helgu, við vorum þar ég og þlinda að éta nammi og horfa á FRIENDS (kemur á óvart ha?)
ég er farin að sofa, ég kem með eitthvað skemmtilegra næst...
6.10.04
3.10.04
núna er bara þessi skemmtilega bið, biðin endalausa eins og mér finnst hún vera. þetta er biðin um að fá að vita hvaða dag ég kem. erfið þessi bið, ég læt ykkur vita hvenær ég kem, engar áhyggjur.
vá þetta blogg er ekki minn stíll,ég set ekki einu sinni stóra stafi...
ég ætla bara að fara að leggjast undir feld og reyna að finna persónuleikann minn aftur. en hann týndist í flutningunum til DK. ef einhver sér 16 ára persónuleika á þvælingi um ísland, endilega látið mig vita. mér gengur hálfpartinn illa að venja mig við þennan nýja sem er að myndast, og er á góðri leið með að vera algjor andstæða þess gamla. samt er þetta eiginlega mjog gott mál, en ég er eiginlega of óhrædd við hlutina finnst mér stundum, ég bara veð í þá. jæja ég læri á að stjórna því í framtíðinni. það ávíst að vera rosa gott að vera óhræddur við hið ókunna...
2.10.04
Salka fékk aldeilis góð viðbrogð frá lesendum þessa bloggs og líka frá fólki sem að ég hef talað við á msn, en flestir segja að hún sé ekki neitt lík mér, en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Ég er hætt að sofa á nóttunni fyrir spennu, því að ég, Kristín Alma er að koma til íslands eftir nokkra daga. Það er ekki alveg komið á hreint hvenær það verður, en það verður á Þriðjudag eða Miðvikudag. Ég hlakka svo mikið til að ég byrjaði að pakka niður fyrir viku, og gera plan um hvað ég ætla að gera á íslandi. Ég set planið kannski hérna inn einhverntíman á næstunni svo að þið íslendingar góðir, getið vitað hvar ég verð.
Svo fyrir ykkur sem eruð hérna í Danmörku þá kem ég svo heim með fullt af íslensku nammi og svoleiðis fyrir ykkur. Og "Íslenskt" Snickers fyrir ákveðinn aðila...
Á föstudaginn var skóli frá 08:15 til 11:35 og vorum við bara að Horfa á American History X. Sem er Mjog góð mynd fyrir ykkur sem hafið ekki séð hana ennþá, mæli með því að þið farið og leigjið ykkur hana. Ég og Casper sátum og grenjuðum yfir endanum, en ekki láta það á ykkur fá, ég veit ekki með hann en ég grenja yfir Lion king svo að það er ekki að marka.
Í gærkvoldi hittumst við heima hjá Almari og vorum með Family guy maraþon. Ekkert smá gaman. En þegar að Lára lét loksins sjá sig um 10 leitið, hætti ég að horfa og við fórum að hlusta á einhverja eldgamla geisladiska, en svo ákváðum við oll bara að fara heim til Gaua og Láru, því að strákarnir voru eitthvað að fara að drekka, en það varð aldrei meira en einn bjór, og svo var bara horft á FRIENDS til 2 og svo bara farið heim.
Ég er ekki viss hvað á að gera í kvold, en einhversstaðar heyrði ég orðróm um Pobbarolt. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Held að það sé samt ekkert vit í að vera að drekka núna, er ekki í stuði fyrir eitthvað svoleiðis vesen núna, ég verð bara í Pepsí Maxinu...
29.9.04
Okkur Jakobi leiddist SVO rosalega á Nemendaráðsfundinum(eða hvað sem þetta heitir nú) að við fórum að pæla í hversu mikið öðru fólki leiddis,t og festust augu okkar mjog fljótt á Honum Casper! hann var mjog einhverfur og með skemmtilega svipi,störur og geispa! Miklu skemmtilegra að horfa bara á hann heldur en að hlusta á kennarann lesa einhverja sögu, um lítinn bróður sem pissar á sig og stóra bróður sem ég man ekki hvað gerði.
Annars er allt gott að frétta bara held ég. Man ekki eftir neinum öðrum fréttum en þær að ég kem heim eftir 8 daga!
27.9.04
Ég er mjog þreytt eftir þessa helgi, kannski verður maður það þegar að helgin byrjar á því að það er keyrt á mann, ég veit það auðvitað ekki. En ég er samt búin að vera að drepast í fætinum, fyrst hélt ég að þetta væru harðsperrur, en svo fattaði ég að þetta var bara öðru megin, og akkúrat þar sem ég klemmdist, svo að ég er bara stórslösuð eftir allt saman. En ég er nú öll að koma til.
Á laugardaginn skelltum við okkur í bíó, ég Lára og Mette. Það var hin ágætasta skemmtun, nema hvað að myndin var ekki uppá marga fiska. Þetta var víst einhver spennutryllir, og bjuggumst við við að skíta á okkur úr hræðslu, en viti menn, ég HLÓ frekar heldur en að mér hafi brugðið. Það gerðist alveg tvisvar að mér brá. Annars fínasta mynd og fínir leikarar.
Jæja ég ætla að fara að sofa, og svona, þó að ég hafi sofið í 3 tíma í dag, þá er ég bara massa þreytt.
Ég er svo víst að fara að fá lánaðar tvær myndir hjá Jokobi litla! "IT" og "Wrong turn" hlakka til að horfa á þær á morgun, en ég ætla að finna Friends fyrir Jakob litla...
24.9.04
1. Ýta á "Comment" hérna fyrir neðan
2. Ýta á post a "Comment"
3. Fyrir neðan eitthvað svona password dæmi áttu að ýta á "Or Post Anonymously"
4. Núna skrifaðu bara það sem þú vilt segja en mundu að setja nafn þitt undir
Practice makes perfect, Nobodys perfect, So why Practice
Á miðvikudaginn þá byrjaði ég líka í Fjolmiðlafræði, eða einhverskonar afbrigði af henni, sem er mjog skemmtilegt fag þó að það sé á dönsku og nokkuð erfitt að læra hugtökin en samt rosaskemmtilegt. Við erum búin að vera að vinna með Blaðagreinar og svoleiðis núna. Þessu fagi fylgir líka meiri heimavinna og þess háttar, en það er bara gaman.
Fimmtudagurinn var mjog áhugaverður. Eða þannig, það eina sem að var áhugavert var að Casper bakaði pizzu, og svo borðaði ég pizzu!
Annars gerði ég líka eitt stykki ritgerð á Dönsku, kennarinn var mjog ánægð með þessa frumraun mína í danskri ritgerðarsmíð, og ég reyndar líka.
Svo í dag var ég á leiðinni heim úr skólanum á hjólinu, og var að fara yfir gatnamót sem eru á milli Horsens og Stensballe(ég by í stensballe) var að hjóla á geðveikum hraða yfir götuna á GRÆNUM kalli, og þá kemur bara einhver gamall kall, fer yfir á rauðu og rétt svo nær að snarhemla þegar hann sér mig og klessir á mig með þeim afleiðingum að ég klemmi fótinn á milli bílsins og hjólsins. Svo ætla ég að fara að Hrauna yfir kallinn, neinei flautar hann ekki bara á mig eins og ég hafi gert eitthvað og keyrir í burtu!
Danir eru sko ekki hæfir í umferðinni, en þeir eru nú aðeins skárri á hjólunum belssaðir.
Í kvold er það svo Family guy maraþon heima hjá Almari Kallinum, það verður nú fínt. Smá Chill, vonum bara að ég drekki ekki neitt pepsí...
Eitt að lokum, ÉG KEM HEIM EFTIR TVÆR VIKUR!
21.9.04
Eyjólfur litli fékk leir í dag. Hann sat í allan dag og leiraði og fanst voða gaman,mamma var svo að baka pizzu í kvoldmatinn þegar Eyjólfur kemur og segir "mamma, ég ætla líka að lave en pizzu" Hann er greinilega farinn að tala dönskuna í leikskólanum. Mamma hefur miklar áhygjur af því að hann eigi eftir að tala svona blöndu af Íslensku og dönsku,eins og svo mörg íslensk börn gera. en við vonum ekki.
17 dagar í að ég komi í heimsókn til Íslands, það verður alveg fáránelgt að koma í heimsókn til íslands. En ég ætla sko að njóta þess, ég fer sko bara bráðum að pakka niður, ég get svo svarið það. Ég er eiginlega alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera og held að ég setji listan hérna inn við fyrsta tækifæri.
Ég sakna þess svoldið að geta ekki talað í FRIENDS máli hérna, en ég, Inga Rós og Linda eigum eftir að gera það óspart þegar að ég kem.
En ég er farin í lúllið, reyna að ná þessari pest úr mér, og lesa smá í "Hvordan man træner en dreng" með mary kate og ashley olsen.
Jeg er så dygtig!
20.9.04
Ég byrjaði svo formlega að safna Friends á DVD í dag, ekki seinna vænna að byrja að safna, og nota tækifærið hérna í DK, því það kostar bara 99 dkk hver diskur. Ég er samt alveg búin að sjá alla þættina oftar ein einu sinni og oftar en tvisvar, Enda sagði Almar við mig í dag að ég gæti Talað í friends þáttum...sorglegt en satt!
Annars er allt mjog gott að frétta héðan úr Hrossanesinu, allir hressir og kátir, nema að ég er reyndar eitthvað slopp núna, en það er svosem ekkert til að kvarta yfir.
Ég held að ég þurfi að fara að læra, ég á að gera enskustíl sem að ég þarf að nota 3 tungumál í! Hér kemur smá dæmi: De opdagede faktisk fejlen på elektricitetsværket.Men pressen skrev ikke om det-They Actually discoverd the mistake in the powerplant.But the press didn´t write about it.
Skemmtilegt ha? ég hugsa þetta í millitíðinni á íslensku, svo þetta eru eiginlega 3 tungumál. En ég ætti að fara að halda áfram, því að ég á eftir að lesa nokkrar blaðsíður í The Beatch og evo einhverja smásögu sem heitir Revenge, klára stílinn og lesa smá í dönsku...
17.9.04
uhh jahh
Hun kom med bussen, og jeg havde taget roser med.
Vi skulle på det der blind date,
jeg havde arrangerede med en fin middag, og en god flaske hvidvin.
Vi spiset meget spaghetti med kødsovs, det smagte mega godt jahh
det var romantisk og vi spiste ligesom hundene, i den der tegnefilm jahh
Men da vi kom i seng og hun lå nøgen ved mig
var der pludselig noget der bevægede sig,
mellem hendes ben
Hun har en Pik,
hallo hun har en pik
hun har en pik,
hun har en stor pik og det burde hun ikke
hun har en pik,
hallo hun har én pik
hun har en stor pik og det burde hun ikke
Hun så på mig, og jeg kiggede der længde på den.
Så sagde jeg temmelig chokeret:
Er det en tissemand du har der mellem benene?
hun svarede, ja det er så
Måske er det mig der er lidt gammeldags,
men piger med tissemænd, det er noget stas
hvert fald i mit univers
Hun har en Pik,
hallo hun har en pik
hun har en pik,
hun har en stor pik og det burde hun ikke
hun har en pik,
hallo hun har én pik
hun har en stor pik og det burde hun ikke
Pludselig så sagde hun, jeg er jo Hermafrodit.
Jeg har også en kusse, lige der bagved mig pik..
Hun har en kus,
ja tak men også en pik
Hun har en pik
hun har en stor pik og det burde hun ikke
Hun har en kus,
ja ja men også en pik
Hun har en pik h
un har en stor pik og det burde hun ikke
hun har en kus
åhh jaa hun har en pik og en kus
Hun har en pik
hun har både en lem og en skede
hun har en kus
det gør mig, det gør mig, det gør mig så forvirret
hun har en stor pik og det burde hun ikke
Mæli með að þið Downlodið þessu lagi, snilldin ein sko. Þetta er samt Rugl texti eins og þið sjáið en samt fyndið.
Annars er allt gott að frétta, Gummi og maja eru hérna og verða yfir helgina.
3 vikur þangað til að ég kem heim til íslands...Góða helgi!
15.9.04
En fýlan hefur kvatt okkur í bili því að dagurinn í dag gekk eins og í sögu því að ég "snakkaði" alveg fljótandi dönsku í allan dag og fékk svona 100 hrós um hvað danskan mín væri góð. Fór eftir skóla að hitta Láru Litlu og við vorum að skoða föt í bænum og svona svo fórum við hiem til hennar að horfa á pirates of the carabien eða alla vega einhvern hluta af henni, því að við sofnuðum báðar í sófanum með sæng..mmm hvað það var kósý hjá okkur. Klukkan svona 20.00 fór ég heim og var eitthvað að nördast í tölvunni eins og vanalega. Þegar að ég var um það bil búin að gefa upp alla von um að eitthvað kraftaverk myndi gerast í kvold þá hringir síminn klukkan 24.00 og það var hann pabbi að tilkynna mér að ég er að fara til Íslands þann 8 október!! Ég er Svo ánægð að ég get ekki farið að sofa, og ég get ekki hætt að hugsa um hvað það verður æðislegt að vera á íslandi í 10 daga!!!!
Vildi bara tjá ykkur það að ég er formlega hætt að vera í þunglyndi og núna er það bara að telja niður 3 vikur og 1 dagur..vííí
hér er svo playlistinn sem ég hlustaði á í kvold...
Blind Date-Drengerne fra Angora
Bohemian Rhapsody(live)-Guns N´Roses and Elton John
Auf Achse-Fred Ferdinand
Little by little-Oasis
Don´t look back in anger-Oasis
Tie up my hands-starsailor
Champagne Supernova-Oasis
Jessie paints a picture-Billy Joel
Stand by me(Acoustic)-Oasis
Supersonic-Oasis
My favurate game-The Cardigans
Where the wild roses grow-Nick Cave and Kylie Minogue
...og svo uppáhaldið mitt One með u2
Guð geymi ykkur öll og gangið hægt inn um gleðinnar dyr, þangað til að ég kem til ÍSLANDS!!!!!
P.s. Inga Rós, pabbi spurði mig hvort við héldum að enginn lesi kommentakerfið..hmm og hann veit hvað pik þýðir svo að við ættum að fara að tala um eitthvað fallegra en þetta á minni síðu..kannski getum við talað um pik á þinni síðu!
13.9.04
Ég vil fá hérna smá útrás fyrir tilfinningar mínar, en er of þreytt til að skrifa samfelldan texta þannig að ég gef ykkur hérna smá hugmynd um hvað er að plaga mig þessa stundina.
Ég sakna: Pabba, Birnu, Sölku, Sindra og allra vina minna, og fjolskyldu,Skyr.is, cheerios, Metalica pulsanna, Kókómjólk, kúlusúkk, Djúpur, Birgittu og Jónsa súkkulaði, sítrónu egils kristall, og toppur,17 búðana, Centrum,Focus, Oasis,(búðin) top shop, Nonnabúð, Dogma, brynju ís,(fékk streka longun í hann í dag:S) Garðabæjar, Reykjavíkur og nágrenni, kaffihúsana, og svo miklu meira sem að ég sakna frá íslandi að ég gæti halið áfram í alla nótt.
Svo er það þessi leiðinlega Danmörk: Ég þoli ekki þegar að ég er að tala donsku og mig vantar eitt og eitt orð, ég þoli ekki hvað ég hef ekkert að gera í skólanum, námið er hundleiðinlegt, ókrefjandi og ófjolbreytilegt, ég sé eftir að hafa farið í 10 klasse, og ég vil helst bara fara í Handelskolen núna strax, því þá þarf maður allavega að læra eitthvað.
Svo er líka fólk hér í DK sem að fer óendanlega mikið í taugarnar á mér þessa dagana fyrir að vera leiðinlegt og óþroskað.
ég er farin að sofa úr mér þessa geðvonsku, og kem örugglega með eitthvað afsökunarblogg á morgun. BLESS
11.9.04
Ég var á staðnum og hvatti mitt fólk auðvitað til dáða, eða þannig. Auðvitað hjálpaði ég aðeins til eins og mín er von og vísa, en þó tel ég mig hafa verið með fullu viti þó að ég hafi misskilið eitt eða tvö orð, sem voru sögð við mig á dönsku, En það kemur fyrir mig á hverjum degi, bara ekki í þessu samhengi...
Ég gisti svo bara heima hjá Láru og Gaua um nóttina og það var reyndar ekki mikið sofið, ég náði samt að sofa í 3 tíma og svo vorum við Lára dottandi yfir DVD allan daginn.
Núna er maður svo bara að passa, því að það er eitthvað ball hjá Íslendingafélaginu hérna í Horsens.
En ég hef ekkert meira sniðugt að segja svo að ég kveð að sinni.
Og ég vil minna á að það eru 3 vikur og 5 dagar í haustfríið, og ég er að vonast eftir að komast til íslands þá!
8.9.04
Annars er allt gott að frétta héðan úr Danalandinu, ég er farin að "snakka" dönskuna hægri vinstri, eða svona ég tala enga ensku lengur.."jeg snakker kun dansk nu" en ég kann sko ekki apaskít í stafsetningunni, en það kemur nú bara með kalda vatninu.
Ég var í Matematik Hjælp í dag, og mér Pernille og Jenny vorum ekkert alltof mikið að pæla í stærðfræðinni. Við erum búnar að gera "díl" um að ég kenni þeim íslensku og þær kenni mér dönskuna betur. Í dag var ég að kenna þeim og þær eru bara andskoti móttækilegar fyrir þessu, en það sem þær lærðu í dag var: ÉG heiti, ég kem frá danmorku,bósi ljósár, ég skil þig ekki, ég hlakka til jólana og Amælissöngin.
Sólin er farin að láta sjá sig aftur og er frekar ljúft að koma heim úr skólanum klukkan 14:00 og leggjast út í sólina í 25 stiga hita í september.
En jæja ég er þá farin að gera eitthvað af viti, eins og að fara út að tala við Broddgeltina eins og mér einni er lagið. Svo skal ég lofa að það kemur blogg um eða eftir helgina, Þar sem að það á víst að skola niður eins og einum eða tveimur "?" og kíkja á mannlífið í Horsens.
Ef þið hittið einhverntíma Dana, biðjið hann þá að segja "fiðrildi" Það er snilldin ein að heyra þá segja þetta, og ef að hann spyr hvað þetta þýðir þá er fiðrildi "Summerfugl" på dansk...
P.S.Þetta er fertugasta bloggið sem ég skrifa inná þessa síðu, og þið getið reiknað með því að svona það sextugasta verði á dönsku.
2.9.04
Ég er líka freðin núna, ég nenni ekki að blogga en samt vil ég blogga svo að...
Ég fór í afmæli í dag, hjá honum Daníel. Daníel varð tólf ára í dag. Til hamingju! Jakob á líka afmæli í dag. Jakob varð sextán. Til hamingju!
ÞAÐ ER AÐ KOMA HELGI!
Sören og Casper lærðu nýtt orð í dag og notuðu það óspart! Orðið var íslenskt og ekki prenthæft á síðu sem foreldrar lesa.
1.9.04
Helgarnar í Danmorku eru vægast sagt skrautlegar! Íslendingarnir (vinir) mínir missa sig í einhverju sem að ég bara hreinlega man ekki orðið yfir á íslensku. Aldrei hef ég nú upplifað annað eins, en þó er fjorið aldrei jafn mikið og þegar að danir bætast í hópinn(sérstaklega stelpur)...þá er bara DRAMA DRAMA DRAMA!!!!
Annars þá er ég bara að stíga uppúr þessari all svakalegu flensu 40 stiga hiti og einhvað vesen í hálsinum sem ég er á pensilíni útaf.
Ingibjorg fékk blóðeitrun í fótinn um daginn og er líka á pensilíni útaf því svo að það er ástand á bænum!
Skólinn gengur annars eins og í sögu og ég verð að segja að ensku og donsku tímarnir eru skemmtilegastir, Freðið fólk á stóran part af áhuga mínum á þessum tvemur fogum.
Held bara að það sé því miður ekkert meira sem að ég hef frá að segja núna, en ég skal lofa að blogga oftar...sérstaklega um helgar!
31.8.04
21.8.04
Eniveis tha er ekkert merkilegt buid ad gerast herna i Danaveldinu, fyrir utan ad eg held ad eg se ordin eitthvad skrytin. Thannig er mal med vexti ad eg get sofid endalaust. Vanalegatha sofna eg a milli 10 og 10.30, Vakna klukkan 7.00 rosalega hress (midad vid ad eg er morgunfulasta manneskja i heimi) kem heim ur skolanum um 2 leitid sofna i svona 1til 2 klukkutima og sofna samt a vanalegum tima. Eg er samt aldrei beint threytt bara thegar ad eg se rumid mitt, kannski er thetta bara einhvert timabil til ad baeta upp allann svefninn sem eg hef misst i gegnum tidina.
I dag er eg bara buin ad vera heima i nattfotunum ad tjilla, en aetli madur fari ekki a eftir ad hitta Almar og Ragga eda eitthvad...
13.8.04
- Frést hefur hingað í Danaveldið að hitabylgja sé á klakanum, ég vona bara að þið klakabúar njótið þess að hafa 20 stiga hita. Sjálfri finnst mér það ekki mikið og er longu hætt að kippa mér upp við ef að hitinn fer uppí 40 stig í sólinni á meðan að maður er innilokaður í skólanum. Alveg merkilegt hvað maður getur aðlagast nýjum hlutumm og umhverfi fljótt. maður er T.d farinn að drekka 2-4 lítra af donsku vatni á dag, ((ég kom því ekki niður alla fyrstu vikuna) vera í skólanum í þessum hita,þurfa að tala og hlusta á dönsku allan daginn er líka komið uppí vana hjá mér.(fyrstu dagana í skólanum var ég komin með hausverk í lok dagsins)
Á fostudaginn eftir skóla þá tók ég lestina til Odense, þar á Banegarden beið hún Brynja eftir mér og við tókum strætó til Rosengardcenteret, sem er HUGE kringla þar í bæ. Þar Spásseruðum við í nokkra klukkustundir og keyptum eins og við myndum aldrei geta keypt fot aftur, þá sérstaklega í H&M. Rosalega er gaman að fara með einhverjum úr öðru landi að versla, því að þá þarf maður ekkert að spá í hvort að maður sé að kaupa alveg eins eða hvað.
Svo núna var ég að koma heim úr þessu heljarinnar Teiti niðrí mosa, sem að ég get alls ekki kvartað undan. hitta íslendingana og svona...
ORÐIÐ: Svekkjandi
SNILLDIN:Amar, gaur sem að er með mér í bekk, hann talar svo mikið en maður skilur bara svona 3ja hvert orð sem hann segir, algjor steik ég og hann kobbi kongulóarbani getum sko hlegið endalaust af honum.
7.8.04
You are going to Marry Josh Hartnett. He is really
shy, but don't let that fool you. He is really
outgoing and sweet with those he loves and will
be loyal to them for the rest of his life.
Congrats!!
Which male celebrity are you going to marry? (14 choices now!!)
4.8.04
3.8.04
Verslunarmannahelgin var aldeilis "vidburda mikil" hja mer. Flatamagadi til skiptis a strondinni eda uti i gardi, Horfdi a gamla thætti m.a. Beivots, 7th haven, the Nanny og fleira, Var reyndar bodid i tvo party herna i mosanum en eg akvad ad gerast felagskitur svona einu sinni og afthakkadi,(kemur a ovart fyrir tha sem ad thekkja mig!) og svo ma ekki gleyma thvi ad eg for til Tannlæknis i dag ALEIN og taladi Donsku! Mjog skemmtileg helgi, en eg vona ad their sem ad gerdu eitthvad skemmtilegt i rigningunni a islandi skemmtu ser vel, tha serstaklega Thjodhatidarfararnir, thvi ad vid Linda erum byrjadar ad plana næstu...
Eg hef komist ad thvi ad Danir eru mjog myndarleg thjod, serstaklega karlkynshelmingurinn og thvi hef eg akvedid ad verda Dani thegar ad eg verd stor. En eg hef lika sed ad Danskir strakar eru miklu betra mannsefni en Islenskir (flestir) svo hver veit nema ad eg komi heim med einn Søren, pabbi minn...
28.7.04
Fyrstu nætur gestirnir okkar komu i gærkvoldi,med lestinni fra Køben thad voru heldur ekki gestir af lakari endanum, sidur en svo, thad var litlí bordir mommu og stori brodir minn(sami madurinn) og kærastan hans. Thad er buid ad vera mikil dægrastytting ad hafa thau her, tho ad thad se alveg fullt ad gera annars.
Eg var ad fa thær ÆDISLEGU frettir ad hun Brynja Run kemur hingad til Danaveldis 11 Agust og er tha meiningin ad koma ad heimsækja mig..tho ad eg verdi byrjud i skolanum ætlar thessi nybakada frænka ad koma til min thegar ad hun er buin ad kikja a litla prinsinn i Odinsve.
Pabbi, Birna og Salka litla eru nu a leid til Rimini ad eg held. Vildi oska ad thau væru frekar ad koma til min, thvi ad eg sakna theirra SVO MIKID...
26.7.04
Eg hjola allavega eins og dani, borda eins og Dani og er mjog lige glad (veit ekki hvernig thad er skrifad aftur a moti) eins og dani.
En eg sakna samt Islands rosalega mikid og eg ætla mer ekki ad bua her forever,bara eins lengi og eg nenni.
Annars tha er lifid ljuft bara, eg for i klippingu i dag og thad var bara roslalega fint, en samt skrytid ad thurfa ad tala donsku vid konuna allan timann thvi ad hun taladi ekki ensku! Fyrsti Daninn sem ad eg hitti her sem talar ekki ensku, en hun sagdi vid mig: Du snakker meget pen dansk. Svo ad eg hlyt ad vera eitthvad ad skana i thessu ollu saman.
Thegar ad eg var buin i klippingunni tha forum vid oll i bæinn ad spoka okkur i solinni en svo foru thau i Bilka ad versla tha for eg heim, skrifadi eitt bref og for svo ad horfa a Dr phil og Opruh, eg er ordin hugt a Opruh, mer finnst hun bara algert ædi...You go girl. Sofnadi reyndar yfir henni i dag, en svona er lifid...
25.7.04
Svo reif unglingurinn sig a lappir kl 11:49 og tha var thessi fullkomna islenska-danska fjolskylda audvitad uti i gardi ad plokka upp arfann a milli hellanna i gardinum, eitra fyrir maurum, og reyta arfann i blomabedinu i...27 stiga hita og sol. Thannig ad unglingurinn fekk ser af bakkelsinu, setti musik a fonin og for ut og hjalpadi til vid gardverkin thangad til ad hann gat ekki meira og lagdist i solbad og la thar og dormadi milli thess sem hann fekk ser sopa af limonadinu og setti a sig meiri solarvorn.
Nu er klukkan næstum 10 her i Danaveldi og unglingurinn einn nidri bæ a netkaffi ad skrifa thessa fallegu sogu um goda unglinginn sem for fra islandi og ætlar ad bua i Danaveldi næstu arin og læra ad tala joskuna med hreym....
Ordskyringar: Joska=danska sem er tolud a jotlandi
23.7.04
En annars er allt gott ad fretta af okkur, Nonni byrjar i skolanum 2 agust, og vid systurnar 5 agust(uff snemma) og Eyjolfur byrjar i leikskolanum 16 agust.
jæja eg hef ekki mikid meira ad segja nuna i bili, eg er ad hugsa um ad fara ad ko9ma mer heim af thessu netkaffi thvi ad thad eru bara einhverjir kallar a aldrinum 19-25 her allir ad spila einhvern luda tolvuleik og horfa a mig eins og eg se geimvera...
17.7.04
Thad var hrædilega erfitt ad kvedja alla adur en ad eg for a fostudaginn, en thad lagadist reyndar thegar ad vid vorum komin i frihofnina. Flugferdin gekk eins og i sogu,eiginlega betur en thegar ad vid vorum ad bida eftir fluginu i leifsstod. Vid vorum a sagaklass sem var fint. Eg sat hja Eyjolfi, og eg bjost alveg vid ad thurfa ad hafa mikid fyrir honum alla leidina en onnur var raunin. Thegar ad vid vorum buin ad borda tha sofnadi hann og steinssvaf i ruma 2 tima sem ad er næstum allur flugtiminn.
Frida frænka okkar sotti okkur og for med okkur heim til sin, thar sem ad vid erum nuna og husid hennar er eins og i ævintyri!!! thad er 280 ara gamalt og er meå stra thaki og hengirumi i gardinum og allskonar avoxtum.
I dag forum vid i tivoliid sem var audvitad svakalega gaman, og mikid fjor. Eg nenni ekki ad blogga meira nuna thvi ad eg er ordin frekar pirrud a thessu danska lyklabordi. Blogga liklega aftur adur en ad eg fer til Horsens, og 28 juli faum vid stafrænu myndavelina okkar, og tha set eg inn myndir af husinu og måske noget flere...
Eg er komin med danskt gsm nr, og vil gjarnan fa sms fra ykkur til ad sja hvernig lifidgengur an min!! NR er: 0045 2732 3705
14.7.04
ég tildæmis fór með Ingu Rós í bíó í gær og við skvísurnar létum auðvitað ekki bjóða okkur neitt minna en V.I.P Salinn. Myndin var góð, poppið ferskt gosið kalt og sætin þægileg.
Núna stendur birna á haus í eldúsinu því að hún og pabbi eru með kveðjuveislu hér í kvöld til heiðurs mér...
11.7.04
Ég set þetta bara inní myndum og tek fram að ég vissi ekki hvað var að ske, og að ég hélt að ég væri bara að hitta Ingu Rós,Ástu og Evu.
Hér er ég á leiðinni í bílnum með stelpunum, frekar hrædd,því að þær sögðu að ég væri að fara í íslenska busavígslu þar sem að ég fer ekki í menntó á íslandi.
ég með ísinn minn sem að ég fékk í eftirmat *slurp*
og hér erum við allar með flottu ísana okkar:P TAKK FYRIR MIG STELPUR!! KISSKISS
Í kvöld fór ég svo með Tvíburafrænkunum mínum, þeim jakobínu og Elínu og frænku okkar henni Karinu út að borða og á Stokkseyri. Á Stokkseyri var einhverskonar Bryggjuhátíð, eða FESTIVAL eins og við útskýrðum fyrir Karinu (sem er Kanadísk) og hún sá fyrir sér einhverja rosa hátíð, en önnur var nú raunin. En við skemmtum okkur þó allsvakalega vel að spjalla og svona. Við fórum aftur í bæinn svona um tólf leitið og þá fórum við að rúnta um bæinn og kayptum ís og sýndum Karinu hvernig Íslendingar djamma.
Þetta var rosalega skemmtilegt, og gaman að hitta Karinu því að við hittumst ekki oft. En á morgun er ég að hugsa um að draga pabba á útsölurnar, ætli maður græði ekki eitthvað þá...
5.7.04
Ég man samt eiginlega ekki hvað ég hef verið að gera undanfarið fyrir utan að vinna. minnir að það sé ekkert spes búið að gerast.
Foreldrar mínir héldu eitthvað kveðjuteiti um daginn, þar voru vinir og vandamenn í misskrautlegu áskigkomulagi sökum áfengis, en þegar að ég mætti þá var þetta nú orðið frekar súrt svo að ég ákvað að staldra ekki lengi við en kastaði þó kveðju á ættmenni mín og hélt svo heim til Pabba sem að var reyndar í Vestmanneyjum og beið þar þangað til seint um nóttina, eða þar til að fólkið var farið heiman frá mér.
Daginn eftir frétti ég svo af því að einhver lítill fugl hafi gaukað því að móður minni að hún væri nú komin á síðasta sjéns með að fara að pakka, þannig að þegar að ég kom heim frá því að vera að vinna á leiknum stóð mamma á haus og tautaði eitthvað um að það vantaði tíma og fleiri kassa.
Ég hef reyndar ekki nennt að stressa mig mikið á þessum flutningum því að ég nenni ekki að að flytja, en í gær og í dag hef ég þó afrekað að taka til í síðasta sinn í þessu herbergi mínu, pakkað öllu í kassa og hennt úr fataskápnum mínum meira en helmingi af fötunum, svo að eftir hálft ár þá verða einhverjir í afríku í hátísku fötum úr sautján og þessháttar búðum. Ekki amalegt það. Svo nu verð ég bara að vera "fatalaus" í tíu daga því að þá kemst ég á strikið að VERSLA allt sem að mig "vantar"
Um helgina var svo tekið á því. Eða allavega á laugardaginn mikið drukkið af vatni og öðrum vökvum svo ekki sé meira sagt og vil ég ekki tjá mig frekar um það mál hér þar sem að það gæti skaðað viðkvæmar sálir sem að lesa þetta blogg. Thíhí segi svona. En "aðgát skal höfð í nærveru sálar" heyrði ég einhverntíman sagt.
Von að ég hafi fullnægt ykkur kæru lesendur, og ég lofa að fara að blogga oftar svo að þið þurfið ekki að lesa þessar langlokur mínar.
þangað til næst, verið góð hvert við annað.
P.S. Myndbandið með Kalla Bjarna sem að ég var að leika í er komið í spilun á popptíví og sést ég alveg einu sinni í nærmynd að drekka kók...massíft
19.6.04
Well well Well
Daginn eftir að ég bloggaði síðast þá fór í á starsailor tónleikana í boði Pabba ehf. Brynja sá sér ekki fært að mæta, þvílíkt svekkelsi! en ég fór í Staðinn bara með Bjarka og Elíasi, vegna þess að það var 20 ára aldurstakmark. Og ekki sé ég eftir að hafa farið því að Starsailor voru Geggjaðir!! Ég var svolítið lengi að ná mér niður eftir þetta..þannig að ég bara fór heim og hlustaði á þá snillingana í tölvunni:P
Daginn eftir það, (laugardagur) fórum við mamma í kringluna og ég fékk: buxur tvo boli og stívél..Thíhí. Svo fórum við í útskriftarveislu til guðrúnar frænku sem að var að útskrifast úr kennó.
Á mánudeginum byrjaði ég svo bara að vinna. Sem var bara alltílæ, ég er á leikslóla og held að það sé kannski aðeins skárra en að vera að reyta arfa allan daginn.
Þriðjudagskvöldið var sko heldur betur skrautlegt..þá var hringt í okkur Kristínu J og við beðnar um að koma að leika í Kalla Bjarna Myndbandinu, við nýja lagið hans sem að er nýkomið í spilun. við auðvitað slógum til. enda ekki á hverjum degi sem að maður fær að leika í myndbandi hjá Idolstjörnunni sjálfri:P
ÞEtta var svaka fjör,en við áttum að vera í einhverri Garðveislu. þetta var reyndar frekar kalt en alveg þess virði, maður kynntist fullt af fólki og svona:P en jámm svon er bara að vona að við vinkonurnar sjáumst eikkað...
Svo á Fimmtudaginn var 17 júní og þá áttum við að sýna atriði úr hárinu, Svo að við vorum mætt á æfingu kl 13:00 og æfðum þetta og allt gekk eins og í sögu.en svo þegar atriðið sjálft var sýnt þá klikkaði allt sem að klikkað gat nema við..það vakti ekki mikla kátínu meðal okar leikenda.
Um kveldið var þetta allt gleymt og grafið og ég skellti mér í bæjinn með nokkrum kátum kunntum. Þá var sko tekið á því! Við erum sko sannir íslendingar og létum kuldann ekkert á okkur fá og skemmtum okkur alveg konunglega.
Núna er ég bara að finna út hvað ég á að mér að gera um helgina.Þar sem að ég er í fríi á mánudaginn í vinnunni. En kannski að maður kíkji á kringlukastið eða eitthvað bara. Who knows..
Njótið hors annars...
10.6.04
Allt er gott sem endar ágætlega..
En jæja lífið heldur áfram og ég er komin á fullt að vinna, Passa Stefán frá 8-6 á degin, mér finnst það nú bara fínt því að maður er svo frjáls að vera að passa svona, við erum alltaf að gera eithvað skemmtilegt, förum í sund á hverjum degi og göngutúra og margt skemmtilegt. Það er líf og fjör að fara með drenginn í sund, hann er alveg á við 3 sko.. ekkert smá fjörugur. Mér var nú heldur brugðið fyrsta skiptið sem að við komum útí laug, þá hljóp hann, kútalaus og stökk útí laugina(hann er tæplega tveggja ára) Ég hélt að ég myndi fá hjartaáfall, en svo komst ég að því að hann er bara svona flínkur í sundi að hann þarf ekki kúta ef að maður er að fylgjast með honum! mér finnst það æðislegt hvað hann er duglegur að fara sjálfur uppá bakkann og stökkva útí og fara í kaf. Svona eiga lítil börna að vera!:P
En núna þessa viku hefur verið heldur betur skrítið veðurfar í RVK og nágrenni. Maður vaknar við það að sólargeislarnir brjótast innum gluggan hjá manni og kítla mann í nefið, Svo labbar maður úti og hugsar þetta verður sólríkur dagur,ekki ský á himni og hreyfist ekki hár á höfði. En nei um það bil klukkan 9 er allt orðið skýjað! hvernig er hægt að gera manni þetta? Í gær var meira að segja komin rigning um 10 leitið þannig að ég og stefán fórum ekki í sund þann daginn. Svo fær maður fréttir af vinum og vandamönnum sem að sitja í próflestri úti í garði í 25-28 stiga hita í London og Köben..thiss (ég er reyndar að fara að flytja til DK...:P)
En kannski að ég sé hætt að kvarta núna því að veðrið er búið að vara þokkalegt í dag, sól og hiti en samt reyndar þessi leiðindargola. En það var frábært að fara í sund áðan, láta sólina skína á kroppinn og svona.
Á mánudaginn fer ég að vinna í unglingavinnunni, en ég verð ekki í þessu hefðbundna reyta arfa og raka saman gras, því að ég fékk inn á leikskóla, nánar tiltekið Lundarbóli, og verð þar frá 8:30-16:00 á dagin, sem er mjög fínt, en ég verð náttúrulega bara í einhvern mánuð, því að þá flytjum við út.
jæja best að fara að drífa sig útí sólina á meðan að litli stúfur sefur, ég kveð að sinni og segi bara Lifi ljósið eins og mér einni er lagið, bæ
8.6.04
Auglýsing auglýsing!!!
3.6.04
Forsetinn hefur talað og...
Æji nóg af þessari vitleysu. Það er búið að vera þokkalega nett veður hérna á klakanum í dag, fyrir ykkur sem ekki vitið. Dagurinn minn var alavega mjög góður. Ég mætti kl 9 í skólann og skilaði bókunum og fékk skápagjaldið endurgreittog svona. Svo var bara labbað uppí Grjótásinn og farið að passa Stefán Atla, og á meðan að hann svaf þá var ég bara úti á svölum í þessari rjómablíðu, og áskotnaðist á því alveg helling af freknum og svona einhverja smá brúnku! Já, það er nú eins gott að vera brúnn og sætur áður en að maður byrjar í sumarfríi..Eða allavega brúnn ég veit nú ekkimeð hitt:P
En Pabbi er víst líka að fara til Krítar á Mánudaginn og þá fær maður ekki að hitta þau skötuhjúin í viku! En ég get nú lifað það af, en það er bara verra að Salka litla verður í pösssun hjá mömmu hennar birnu og ömmu, þannig að ég fæ eitthvað lítið að sjá af henni í þessa viku.
Ég man ekki eftir neinu skemmtilegu sem að ég hef gert núna upás íðkastið þannig að ég kveð bara að sinni, Lífið lífinu Lifandi!!!
kveðja KAS
1.6.04
Sorglegt en satt....

Which O.C. Character Are You? Find out @ She's Crafty
Ég má reyndar til með að deila með ykkur skemmtilegri lífsreynslu sem að ég lennti í í gær. ÉG FÓR Á KORN!! og það var snilld...VÁÁÁ
Svona nú ég er að fara ég kannksi blogga meira einhverntíman seinna, og verður það blogg þá innihaldsríkara og lengra en þetta hér.
eigið sólríkan dag í rigningunni á Íslandi!




